Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Side 17
/
hefur verið sýnt í miklum ljöida ieik
húsa um allan heim.
Morðið í dómkirkjunni er Ijóðleik-
rit, sem fjallar um morð erkibiskups-
ins og dýrlingsins Thomasar Beckets
árið 1170. Þetta verk var engan veg-
inn síðasta trúarleikrit Eliots. Hann
hefur ort þau mörg síðan, en þau
hafa breytzt frá því að vera sviðsetn-
ing sögulegs atburðar í það að verða
nútímaleikrit, þar sem vandamál
vorrar aldar speglast í Ijósi kristin-
dómsins. Eitthvert frægasta verk
hans, The Cocktail Party, var frum-
sýnt á Broadway arið 1950. Með því
verki voru trúarleikrit flutt inn á
það svið, sem veraldleg leiklist hafði
áður talið sér bera einni að skipa.
Þetta verk ruddi brautina ekki aðeins
fyrir síðari verk Eliots, heldur einnig
fyirr leikrit eins og The Living Room
og The Potting Shed eftir Graham
Greene, A Man for All Seasons eftii
Robert Bolt og Luther Osbornes.
Árið 1951 var Félagi trúarleikja i
Bretlandi falið að annast leiksýning-
ar í kirkjum i sambandi við listahá-
tíð Bretlands, sem haldin var það
ár. Félaginu tókst þá að fá Christop-
her Fry til þess að skrifa leikrit sér-
staklega til þeirra nota. Fry hafði
hafið rithöfundarferil sin með fögru
trúarleikriti The Boy with a Cart,
og síðan getið sér mikið orð- sem lei
ritaskáld með The Lady’s Not for
Burning, sem sýnt var lengi í leikhús
um í Lundúnum. En nú samdi hann
Svefn fanganna, verk, sem látið er
gerast í kirkju. þar sem fjórir her-
menn eru fangar um næturskeið.
Svefn fanganna var sýnt í fjölmörg-
um kirkjum um gjörvallt England og
síðan hefur það verið leikið unl all-
an heim. Þetta verk er öflug h:-
hvöt þess, að venjulegir menn, ég
og þú, höfum hugrekki kristinnar
sannfæringar til að bera.
Margt hefur lagzt á eitt til þess
að efla kristilegar leikbókmenntir. Á
stríðsárunum gafst tækifæri til þes-3
að flytja góða trúarleiki fyrir fólk
sem flutt hafði verið frá heimkynn-
um sínum og þarfnaðist trausts og
aukins krafts í trúnni. Browne stóð
þá fyrir leiksýningum farandflokka,
sem tóku til meðferðis flest þau t’
arleg leikrit, sem þá voru fyrir hendi.
Þessir umferðarleikflokkar settu verk
sín á svið í kirkjum, samkomuhús-
um, skólum, tjaldbúðum og loftvarn-
arbyrgjum, ekki síður en í leikhús-
um. Þetta háfði í för með sér að
hægt var að ná til miklu stærri á-
horfendahóps en unnt hefði verið á
friðartímum. Einnig hleypti þetta
leikritum inn í margar kirkjur, sem
annars hefðu verið lokaðar fyrir leik
sýningum, og forystumenn þessara
safnaða sáu, að trúarlegar leiksýning-
ar voru verðmæti, sem þeir síðar
vildu ekki verða af.
FjárhirSirinn er bandariskt leikrit, sem fjallar um sögu Abels og Kajns. Þar er sú
saga sögS sem ævintýri úr villta vestrinu.
Upp úr þessu spratt gnótt nýrra
skáldverka, ekki sízt hjá þeim söfn
uðum, sem höfðu vaknað til skiln-
ings á gildi trúarleikja við komu um-
ferðarflokkanna. Pamela Keily hafði
þar mjög forgöngu, en hún hafði sjá
leikið á stríðsárunum, en eftir strí
ið tók hún við forystu um útbreiðslu
trúarleikja í Norður-Englandi. Eink-
um lagði hún rækt við sýningar ai
því tagi, sem höfðu hafizt í Englandi,
þegar Browne setti á svið Veg kross-
ins, stuttan passíuleik eftir Ilenri
Gion, en það var eitthvert eftirsótt-
asta leikrit stríðsáranna. Það er skrif-
að fynr lítinn hóp leikenda, sem hef-
ur hlutverk kórs, en einstakir Jeik-
endur stíga til skiptis fram og fara
með einstaklingshlutverk. Richard
Ward beitti sömu aðferð í Holy
Family, en vinsælasta leikritið í þess
m flokki mun þó vera Christ in the
Concrete City eftir Philip Turner,
sem var prestur í Leeds, pegar hann
samdi leikritið.
En þróunin beindist í fleiri áttir
en þessa. í mörgum verksmiðjum var
telcið á móti leikflokkum í matartím-
anum, ef þeir höfðu eitthvað það að
flytja, sem erindi ætti til manna. Með
aðstoð stáliðnaðarmanna í Sheffield
samdi K. M. Baxter stuttan leikþátt
um vandamál þeirra sjálfra T ’Other
Shift (Hin vaktin), sem hefur verið
sýndur í fjölmörgum kaffisölum og
jafnvel í verksmiðjusölunum sjálf-
um. Félagið lét leikflokka sína koma
þessum verkum á framfæri.
Um leið og fitjað var upp á ýmsum
nýjungum af þessu tagi, var reynt
að endurvekja mysteríuleiki miðalda,
alþýðuleiki þeirra tíma, þar sen' ,
1 i M I M N - SUNNUUAGSK’ AÐ
305