Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1964, Síða 9
Tvö afbrigSi Síamskatta, en það kattakyn nýtur nú síaukinna vinsælda.
Það er skrítið, þetta með kettina.
Fólki getur yfirleitt ekki staðið á
sama um þá. Annaðhvort eru menn
kattavinir eða kattafjendur, hlutleysi
er naumast til í afstöðunni til katta.
Og kannski er þetta ekki svo skrítið,
þegar öllu er á botninn hvolft, því að
persónuleiki kattanna er sterkari en
flestra annarra dýra, sem menn hafa
laðað að sér Kötturinn er húsdýr,
sem þó hefur aldreí verið tamið og
verður ekki tamið. Hann fer sínu
fram, hvað sem hver segir.
Áhugi manna á köttum hefur auk
ist geysilega síðustu árin í flestum
löndum, ekki hvað sizt vestan hafs.
Kattasýningar, sem þar eru haldnar,
eru fjölsóttari með hverju árinu, sem
líður, og stöðugt fleiri heímili koma
sér upp ketti. Áhugamenn um katta-
rækt í Bandáríkjunum hafa auðvit-
að með sér samtök, og kattavinafé-
lög, sem ná til allra ríkjanna, eru
þar hvorki meira né minna en sex
að tölu. Hið fjölmennasta þessara
sambanda hefur síðustu árin skráð
að meðaltali 10.000 ketti á ári. Á
árunum frá 1900 til 1957 skráði sam-
bandið um hundrað þúsund ketti, en
síðan það ár hafa bætzt einir sextíu
þúsund við á skrána, og má af því
sjá, að kattaáhuginn fer ört vaxandi.
Talið er, að árið 1961 hafi kettir í
Bandaríkjunum verið um 22 milljón-
ir og fjórða hver fjölskylda átt einn
eða fleiri ketti. í þessari skýrslu eru
ekki taldir með kettir í sveitum né
flækingskettir ,en þeir skipta millj-
ónum.
Af köttum eru til ýmis afbrigði,
en algengasta tegundin á Vestur-
löndum er hinn venjulegi húsköttur.
Hann er talinn vera kominn af
egypzkum fornköttum, sem blönd-
uðust villiköttum Evrópu. Þetta katt-
arkyn hefur verið að ryðja sér smám
saman tíl rúms í Evrópu fyrstu þús-
und árin eftir fæðingu Krists, og
það berst til Ameríku, þegar eftir
fund álfunnar. Langflestir kettir í
heiminum eru af þessu kyni.
En til eru geysimörg afbrigði og
kyn katta, og vinsældir þeirra
Það er hægt að hafa kött í bandl, ekki síður en hunda, en auðvitað er það kött-
urinn, sem hlýtur að ráða ferðinni.
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
753