Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1964, Síða 22
ATHUGIÐ!
Vígalegur aflraunakappi
Fyrir nokkrum árum var það mikil
tízka, að ungir menn temdu sér alls
konar æfingar, sem áttu að hleypa
hinum mesta vexti í vöðva Hkamans
og gera þá firnasterka. Til þess að
ná hinum fyllsta árangri varð að
fylgja stranglega margbrotnum fyrir-
skriftum, kerfum, og varð hver ungl-
ingur, sem gaf sig ab þessu, sér úti
um pésa og bæklinga, prýdda mynd
um af feiknarlega vöðvamiklum mönn
Þar glumdu skógar -
Framhald af 751. síSu
ur — alla leið út á Eyrarbakka. Þeir
Gísli búmann og Vigfús geysir voru
aftur á móti aðkomumenn, sem áttu
fárra kosta völ, og Vigfús svo gerður.
að honum varð lítt fast við hendur
Nú eru kotin, sem þeir og margir
aðrir hokruðu á, komin í eyði. Samt
nær auatursveitin enn býsna langt
inn til heiðar. enda eru þar mikil
lönd og víð og algróin. Þá leið er
nú einnig akvegur að Skaftárdal á
Síðu, því að brú er þar efra á Skaftá.
í Skaftárdal, sem mjög er fráskot-
inn öðrum bæjum á Síðu, er nú þrí-
býli, og mun þar allstórt búið.
um með hnefa kreppta, handleggi
á lofti og kvið strengdan, þar sem
hinn áunni líkamsþroski kom vel í
ljós.
Apinn hér á myndinni stendur i
svipuðum stellingum og vöðvamenn-
irnir á myndunum í þessum bækling-
um og er sýnilegt, að hann er að
hreykja sér, leiða athyglina að þroska
sínum og láta þá, sem á hann horfa,
dást að vextinum og aflinu.
Og enginn skyldi lá apanum Vissu-
lega má hverjum manni þykja gam-
an að vera búinn miklu afli, enda
gagnlegt oft og tíðum, en miklu meira
máli skiptir þó aflið i frumskóginum
en í mannlegu samfélagi þar sem vél
arnar hafa leyst handaflið af hólmi.
Svo langt er kynstafur frænda okkar,
apanna, ekki kominn 1 veraldarvizk-
unni, að þeir séu orðnir vélsmiðir.
*******
Lausn
28» krossgátu
Lesendum blaðsins skal
vinsamlega bent á, a<S það
birtir fúslega vel samdar
greinar um sérkennilega e«Sa
minnisstæ^a atburíi og
greíðir nokkuÖ fyrir þaíJ,
sem birt er.
Þess er óskati, aft grein-
ar, sem því eru sendar, séu
vélritaíar, ef kostur er, og
hóflegt bil haft á milli lína.
leiðrétting
í greininni „Fallbyssuskot til há-
tíðabrigða“, sem birt var í Sunnu-
dagsblaði Tímans 2. ágúst (30. tbl.)
voru prentvillur, sem höfundurinn,
Halldór G. Sigurjónsson, biður blað-
ið að birta leiðréttingar á:
Þar segir í fyrsta dálki (um þjón-
ustugjaldið): „Það hafði ég frétt“.
en á að vera: Það hafði ég frítt.
í fjórða dálki segir: „Ýsa 2 aurar
kílóið”’, en á að vera: Ýsa 4 aurar
kílóið.
í fimmta dálki segir: séra Jón Árna
son, en á að vera: séra Jón Arason.
í fimmta dálki einnig: Bjarni
Bjarnason, en á að vera: Bjarni Bjarn
arson. Sú villa endurtekur sig í síð-
asta dálki.
Loks hefir nafn sonar höf. mis-
prentazt: Sigmundur, en á að vera
Sigurmundur.
Prentvillur, sem hver maður, sem
les, getur leiðrétt, eru hér ekki nefnd-
ar.
766
T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ