Tíminn Sunnudagsblað - 09.05.1965, Síða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 09.05.1965, Síða 15
Þegar Þorsteini Eriingssyni voru sendar Kínaauglýsingar með fyrir- heiti um rfflega þóknun, vék hann þeim heim til föðurhúsanna og hóf grimmilegar árásir á kynjalyfin. lega og gerðist meðalgöngumaður fyrir íslenzka kaupmenn í Kaupmannahöfn — útvegaði þeim útlendan varning og seldi fyrir þá íslenzkar afurðir. Það var þessi mað- ur, sem færði okkur lífsvekjarann og fleira gott, sem síðar verður vik- ið að, og kemur enginn íslenzkur maður skörulegar við sögu kynja- lyfjaverzlunarinnar en hann. Maður sá, sem fundið hafði upp lífsvekjarann, nefndist Heskier pró- fessor. Kom hann upp verksmiðju á Friðriksbergi, þar sem lífsvekjarinn var soðinn. Þar var líka búið til Lífsins te og Austurlandablómið, óvið jafnanleg handsápa. Jakob Gunnlaugs son fékk einkaumboð til sölu á þessu á íslandi og í Færeyjum. íslending- ar voru ekki nein sápuþjóð, svo að Austurlandablómið fór að miklu leyti fyrir ofan garð og neðan. En þeir voru öllu líklegri til þess að þekkjast lífsvekjarann, enda lagði umboðsmað urinn sig meira fram um að sann- færa þá um kosti hans. Birti hann auglýsingar miklar í blöðum landsins og sérstök auglýsingablöð voru að auki vafin utan um glösin: „Lífsafl, og þar með framlenging ævinnar, sem fyrir flesta er allt of stutt, getur maður öðlazt með því að neyta daglega þrjátíu til fjörutíu dropa af hinum nafntogaða elixír, Sybilles Livsvækker. Þessi undursam- legi elixír er búinn til úr hinum sjaldgæfustu og áhrifamestu jurtum, sem þekktar eru í ríki náttúrunnar." Þetta vottuðu margir danskir menn með hinn ágæta lækni, Melchior í Kaupmannahöfn í broddi fylkingar, góðkunningja þeirra, sem lesið höfðu auglýsingar um suma aðra lifselixíra, er þaðan komu. Enn var það fleira, sem hingað barst, landsmönnum til heilsubótar, áður en öldin var úti. Nafn íslands var orðið svo vel þekkt meðal þeirra manna, sem ástunduðu að sjóða „und ursamlega elixíra, að einum þeirra þótti _ tilvalið að nefna verksmiðju sína ísland. Þaðan kom íslandsbitter, „samsettur úr ómenguðu jurtaseyði," fundinn upp árið 1&'57, þótt svona lengi drægist að hefja framleiðsluna. Hann var laus við öll æsandi og óholl efni og „sökum sinna ágætu eigin- leika með réttu talinn nauðsynlegur, jafnvel fremur en matur og drykk- ur.“ Hann læknaði til dæmis bæði inflúenzu og sjósótt. Oddgeir Steph- ensen, leikhússtjóri í Kaupmanna- höfn, mælti með honum með þessum orðum: „íslandsbitter er ágætur." Og var furða, þó að maðurinn viðurkenndi það? I dönsku blöðun- um var það jafnvei auglýst, að fólk gæti áhyggjulaust eyðilagt í sér mag- ann: „Það bregzt ekki, að íslands- bitter læknar yður.“ Þessi aldarlokaár komu iíka sagradavínin, búin til úr viði frá Kaliforníu. „Öllum helztu læknum heims kemur saman um, að börkurinn af þessum viði, sem notaður er í sagradavín, sé hið bezta hægðaiyf og meltingarlyf." Það vottaði prófessor einn í Berlín, ásamt fjölmörgum öðrum. Flaskan kostaði ekki nema hálfa aðra krónu, og skyldi tekin inn hálf teskeið þrisv- ar á dag og ein heil eftir mat, „ef betur skal.“ Lárus hómópati brá þegar við og mælti með sagradavíni: „Er þáð hið eina hægðalyf, sem ég þekki, er verk- ar án allra óþæginda, og líka eitt hið óskaðlegasta lyf.“ Þó hélt hann áfram að mæla með Kínábitter við öllum magakvillum. Björn Kristjánsson auglýsti malt- extrakt með járni og kínin við tauga- veiklun og veikleika eftir barnaveiki og taugaveiki, almennt styrkingarlyf, sem hlotið hefur verðlaun fjórtán sinnum. Loks varð sjálfur Valdimar Peter- sen, „mannvinurinn, sem fann upp Kína-lífs-elixírinn,“ til þess að bjóða epn einn kjördrykkinn, lækninga- konjakk. Þannig rann nitjánda öldin skeið sitt á 'enda með meira úrval dásam- legra heilsudrykkja en áður hafði þekkzt á þessu landi. XVI. Á síðustu árum nítjándu aldar varði Valdimar Petersen sex til sjö þúsundum króna árlega til auglýs- inga í íslenzkum blöðum. Það var stórfé í þá daga, er framgengin ær með lambi kostaði tíu eða ellefu krónur á vordögum, og vafalaust hef- ur ritstjóra vikublaðanna, sem oftast voru líka eigendur þeirra. munað í Kínaauglýsingarnar. Veturinn 1896 afréðu tveií kaup- menn á Seyðisfirði, Stefán Th. Jóns- son og Sigurður Johansen, að stofria rlilNN - SUNNUDAGSBLAÐ -199

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.