Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Síða 13
„Eg hélt þéttingsfasf um mittiS á Grétu og hún um mig. Eg sagSist ætla heim, og hún kvaSst fara þangaS, sem ég færi." lét ég berast út í mannliafið. Við ætluðum að hittast aftur undir eik- inni gömlu. Það hafði síður en svo dregið úr hitanum. Hinn ljúfi blær var nú horfinn. Einhver annarleg ró virtist komin yfir mannsöfnuðinn, eins og eirðarleysið hafi rokið burt með blænum. Ég veitti henni athygli eins og maður tekur eftir kú í naut- - gripahópi, af því að hún úðar ekki í sig grænu grasinu eins og hinar, heldur stendur og gónir út -í loftið. Hún stóð úti fyrir söluskúr og spýtti út úr sér þrúgusteinum með letiiegri ró. Ég sá, að hún var vel tennt, sólbrún og mjóslegin í hólkvíðum kjól, sem vel hefði getað verið af eldri systur hennar. Seytján vetra gat hún verið, alls ekki meir. Enga hafði hún sokkana. í augunum var hita- gljái og nefið íbogið. Hárið og hör- undið hafði sama gullna litinn. Hún kvaðst heyra, að ég væri út- lendingur. Hún hafði þekkt marga útlendinga, Grikki. Hún hélt, að ég væri Ungverji, og ég iét hana halda það. Hún vildi ís. Eg spurði, hvort hún hræddist ekki útlendinga. Hún hló og sagðist ekkert óttast. Ég tók nú hönd hennar og hún bauð mér vínber. Mannfjöldinn þrengdi að okk- ur, og ég fann, að líkami hennar var stinnur og grannur Sillí var komin aftur og beið mín undir eikinni. Ég kynnti hana fyrir Sillíu sem gamlan kunni:.gja. Hún kvaðst heita Gréta. Við skáluðum fyr- ir sólinni og öllum útlendingum. Ég gældi við fæturna á Grétu undir borð- inu með mínum. Skegghýjungurinn á efri vörinni á Sillíu hafði aidrei verið eins áberandi og nú, og tenn- ur hennar voru gular. Seiðandi tón- arnir úr fiðlum Ungverjanna mýktu samræður okkar og blönduðust dill- andi hlátrinum og hvítum tönnun- um á Grétu. Sillí var þögu) venju fremur. Ég bauðst til þess að fylgja henni í vagninn. Hún þekktist það ekki. Sillí kvaddi okkur bæði með handabandi, og ég bað að heilsa mömmu hennar og köttunum. Hún sagðist sjá mig aftur. Við Gréta fengum okkur meira að drekka. Það var gott að kyssa hana. Það var sóiarilmur af henni. Við dönsuðum, og hún hvíslaði, að hún hefði nógan tíma. Eyrjað var að rökkva, þegar við leiddumst gegnum undirganginn und ir torgið. Gamli maðurinn dró enn dragspilið sundur og saman, og litli apinn lék listir sínar. Lítið hafði bætzt við skildingana í húfunni, frá því Sillí lét sinn í hana. Ég hélt þéttingsfast um mittið á Grétu og hún um mig. Ég sagðist æ heim, og hún kvaðst fara þangað, sem ég færi. Hún væri ekkert hrædd við út- lendinga. Fólk sat enn á gangstétt- arkaffihúsunum, las blöð, drakk vatn og skoðaði þá, sem áttu leið hjá. Það ískraði í hemlum sporvagnanna, og bjöllurnar hringdu. Klukkum guðs- húsanna var sem óðast hringt til aftansöngs. Á götuhornum voru vænd iskonurnar farnar að þrefa um verð- ið við viðskiptavinina. Enn var sterkjuhiti. Loflið titraði af hita. Mað ur stóð með ól í hendinni og beið eftir hundi, sem hafði stokkið upp að staur. Hitamælir á rómverskum kirkjuvegg sýndi enn meira en þrjá- tíu stig á Celcíus, T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAJÐ 85

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.