Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Page 14

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Page 14
Þessi mynd af leiðtogum vlnstrimanna héngu víða á þili á dönskum sveitabæjum á árunum upp úr 1880, þegar baráttan við gerræðisstjórn Estrups tók að harðna. Kristinn Berg er á miðri mynd, að baki honum, efst á myndinni, Frede Bojsen og Sófus Högsbro, en neðan Viggó Hörup og Hleiðrugreifinn, Holstein-Ledreborg. „Danavirki í brjósti“ hvers einasta manns“ v. Við létum þar staðar numið síðast, er Jakob Brönnum S~avenius Estrup varð forsætisráðherra rið 1875 eft- ir langt þóf. \lls urðu ráðherrarnir sex, og /oru fjórir heirra ár , ,rn verzlunarbankans í Kaupmannahöfn. Fjórir þessara , ráðherra reyndust harðskeyttir stjóri...'álamenn, og harðskeyttastur þeii a allra var Est- rup sjálfur. Hann hatöi verið and- vígur júnístjórnarskránni árið 1849 og alla tíð spyrnt eftir mætti gegn íhlutun alþýðunnar um stjórnarmál efni hvers konar. Þii.græði var glap- ræði í augum hans. ijðræði -íma og Úr stjórnmálasögu III stjórnleysi, enda var ur. hans daga títt að kalla þá alla stjórnleysingja, sem ekki voru ríkisstjórninni að geði, líkt og nú um langt skeið hefur verið tízka víða um heim að nefna alla kommúnista, sem ekki segja já og amen við öllu atferli Bandaríkja- stjórnar, til dæmis, eða jafnvel < Id- wato~s og Suður '.fríkustjórn . Estrup var orðinn forystumaður gósseigenda, og það var trú hans, að miklar jarðeignir fæddu aí sér á menn, sem stjórnuðu Danmörku með mestri farsæld. Að öðru ieyti' var hann sneyddur öllum stjórnmálaskoð unum. í daglegu lífi hlóð hann um sig múr og umgekkst fáa menn. Hann tók engan þátt í starfi þess flokks, sem veitti' hor.um brautar- gengi, þó að hann r. jL..í hann óspart sér til styrktar. Svo lítt hirti hann um aðra menn, að sagt er, að hann hafi tæpast munað nöfnin á þeim þingmönnum sumum, sem sátu í nefndum með honum. Þrátt fyr- ir langan stjórnarferil, hraut honum aldrei af munni setning, er gædd væri því lífsmagni, að hún væri £ minnum höfð, þegar til lengdar lét, og samt var hann alls ekki lélegur ræðumaður. En fjarri fór því, að hann væri málsnjall og andríkur. Af samstarfsmönnum hans kvað mest að Nellemann. Hann komst á þing í aukakosningum, og var þá tal- inn þjóðfrelsismaður, en tók sér fljótlega stöðu í Miðflokknum. Hægrimönnum gekk hann á hönd, þegar vinstrimenn settu fram kröfu sína um þingræði, og varð hann síð- an einn lögskýringarmanna Estrups, er hann tók að stjórna með bráða- birgðalögum. Hinir ráðherranna, sem vert er að nefna, voru Eiríkur Skeel, józkur gósseigandi, sem lítt hafði komið við sögu fram að þessu, og J.C.H. Fischer, er fór með kirkjumál og kennslumál. Var kirkjumálaráð- herrann sumum þyrnir í auga, því að hann hafði ekki einungis ástund- að nokkuð lífsnautnirnar, heldur ráð izt á prenti á margar af kennisetn- ingum kirkjunnar. Það var ljótt strik í lífsreikningi hans, því að kóngur- inn og hægrimenn lögðu ríka áherzlu á hreina og sanna trú. En Fischer hafði í öndverðu verið vinstrimaður, síðan gengið hægrimönnum á hönd, og Estrup sagði, að hann hefði svo lengi þjónað með dyggð, að nú yrði hann að hljóta umbun. í foringjaliði vinstrimanna var Berg, sem áður hefur verið getið. Þar var og lénsgreifinn frá Hleiðru, Lúðvík Holstein, þótt sýnast mætti, að hann væri borinn til forystu í annarri fylkingu, nýkominn í flokk- inn. Hann var um margt óvenjugáf- aður maður, ræðusnillingu hinn mesti, frjálslyndur mjög í kirkjumál um og skólamálum, r. 'kill gáfumað- ur. Framar ber þó að nefna Viggó Hörup, sjálenzkan kennarason, sem ekki hafði enn náð kosningu á þing, er Estrup myndaði stjórn sína, frá- bæran áróðursmann og áhlaupa- mann. J. A. Hansen var Jíka enn á dögum, en hrap hans skammt undan. Vinstrimenn stofnuðu blað í Kaup mannahöfn árið 1873. Það nefndist Morgunblaðið. Viggó Hörup réðst þar til starfa. og þar vann hann sér mikla frægð, enda hafði hann neð sér straum tímans. Hann var raióg andvígur herbúnaði og kvað herinn skipa „nauðalitlu máli fyrir heiður landsins, sjálfsjæði og samheldni," sem yrði að hvíla á „miklu styrkari stoi'um en her-ómyndinni.“ Hugsjónir vinstrimanna fengu þó ekki að njóta þessa síðustu áratugi aldarinnar, og starf þeirra bar ekki sýnilegan ávöxt um sinn. Valdi var 86 T í M I N N — SUNNUDAUSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.