Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Side 7

Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Side 7
um eftlr beztu getu þarna I velferðar- riki fjörunnar. Enn koma menn að kaupa fisk, þó komtnn sé matmálsttmi og við- gkiptin malast rólega áfram í veður- bliðunni. Þetta eru einkar notaleg viðskipti. Mér líður svo vel þarna i sólbökuðu fjörugrjótinu, að ég gleymi mér alveg. Áður en mig varir, eru þeir feðgar búnir að hengja upp alla grásleppuna og eru að fara heim í mat og taka hrognin með sér. „En ég á eftir að frétta ýmisleg um meðhöndlun hrognanna." „Þú verður þá að koma aftur í kvöld, ég er orðinn þreyttur og svangur," segir Björn og svo eru þeir horfnir, en ég ein eftir 1 fjörunni ásamt fuglunum. Að lokum drattast ég heim. Um kvöldið fór ég aftur á stjá og gerði þelm feðgum heimsókn í hrognabúrið. Það er stóreflis bílskúr, sem þeir hafa útbúið sem vinnustað. Þar kennir margra grasa. Mest ber þar á tunnum, flestar þeirra fullar af hrognum. Þorvarður er að himnu draga hrognin. Á miðju gólfi er helj- arstórt sigti — kassi, ca. 2x 1,5 fer metrar — með fremur grófu neti í botninum. Undir sigtinu er annar kassi jafnstór að ummáli en helm- ingi dýpri. Á hann er strengdur strigadúkur. Við hlið stóra sigtisins eru tvö önnur minni með mjög þéttu nylonneti í botninum. „,Jæja, Björn, hvað þarf nú að gera við hrognin, svo að þau verði 'verzl- unarvara?" „Eins og þú sást í morgun, setj- um við þau í tágakörfu með striga- dúk í botni um, svo að sjórinn fái sigið úr þeim og flytjum þau hingað. Við setjum hrognin fyrst upp í stóra sigtið þarna á gólfinu og himnudrög- ttm þau i þvi, þ.e. við hrærum í þeim fram og aftur, svo að hrognin hrynja í gegnum netið og niður á - strigadúkinn, en himnurnar vera eft- ir í sigtinu. Síðan ausum við hreins- uðu hrognunum upp í hin þéttari sigtin, til þess að sjórinn sígi þar úr þeim. Til þess þarf nokkurn tíma. Seinni hluta nætur ætti því að vera iokið. Við förum á fætur um kl. 4 á nóttunni til þess að salta hrognin og jafna þau, og við erum hæfilega búnir að þvi, áður en við förum á sjóinn um kl. 7. Þegar við svo komum aftur, höfum lokið að- gerð, matazt og hvílzt, ausum við hrognunum úr sigtunum upp í tunnur. Þar verða þau að biða nokkra daga í opinnj tunnunni og „brjóta sig,“ sem kallað er. (Það orðtæki þekkist einnig um súrt skyr). Þegar það hefur gerzt á réttan hátt, eru öll hrognln orðin jafnlit, rauðblelk, og þó eins og glær. Þá má loka tunn- Og þarna hangir hún uppi, steindauð, og vekur vegfarendum löngun í munni. unni. Þó verður að gæta þess að endastinga tunnunum við og við, helzt einu sinni á sólarhring, þar til varan er flutt burtu sem söluvara. En nú er að verða þröngt hjá okkur,“ segir Björn að lokum. „Því að við veiðum og tökum meira að segja hrogn í umboðssölu, en ennþá hefur ekkert selzt." Ja, það er nú meiri snilldin ef menn geta grætt á svona atvinnu, hugaði ég. „En hvað svo, þegar — eða — ef — varan selzt?" „Hrognin fara öll á erlendan mark- að. Kaupendur þeirra lita þau svört og selja sem kaviar og þá er sagan öll. En sumir þurfa ekki svo fína meðferð á hrognunum til þess að hafa lyst á þeim. Það hafa komið til mín útlendingar, sem hafa hámað þau í sig beint úr tunnunni." Ég vildi óska, að ég hefði geð á að gera slíkt hið sama. Þvi að ásamt mjólk oé eggjum eru hrogn áreiðan- lega _ bezta og hollasta fæða, sem til er. í hverju hrogni býr lífsneisti nýrrar veru og jafnframt öll forða- næring handa henni, þar til hún er sjálfbjarga, og það er ekki svo lítið. Eftir nokkrar atrennur herði ég mig upp til þess að bragða hrognin og bryðja þau. Og ef satt skal segja, fann ég ekkert bragð nema saltbragð. svo að mér er enn öldungis hulíð, hvernig menn geta borðað þetta sem sælgæti. Það er orðið áliðið kvölds, þegar þeir feðgar hafa lokið störfum og lún um mönnum mál að hvílast. Þeir ætla að rísa árla næsta morgun og heyja áfram sitt indæla stríð. Ég kveð Björn og þakka fyrir skemmtilegan og lærdómsríkan dag. Ásgerður Jónsdóttir, Þeir, sem hugsa sér að halda Sunnudags- blaðinu saman, ættu þvf að athuga fyrr en síðar, hvort eitthvað vantar í hiá þeim og ráða bót á því. _____________ 1 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 559

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.