Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Síða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Síða 12
 Nr. 2 — Völundur, átta ára. r. 1 — Sigrún, átta ára. TEIKNINGAR BARNA Fyrir rúraum 50 árum fóru menn að gefa gaum að teikningum barna, rannsaka þær og skoða fná ýmsum sjónarhornum. Fyrsta bókin um barnateiknun kom út árið 1887. (L ‘Afte dei bamlbini). Höfundurinn, list- fræðingurinn Corrado Ricci, segir f bókinni frá því, er hann varð eitt sinn að leita sér skjóls fyrir regni í súlnagangi einum, þar sem börn höfðu gert nokkrar teikningar á vegg inn. Vakti það strax athygli hans, að teikningarnar voru mjög mismun andi eftir því hvað hátt þær voru ieiknaðar á vegginn. Þetta hvatti lann til að rannsaka, hvort ekki etti sér stað einhver lögmálsbundin þróun í barnateikningum. Síðan hafa ijölmargir listfræðingar, listamenn, sálfræðingar og kennarar rætt og rit- að um teikningar barna með þeim árangri, að í dag eru barnateikning- ar virtar sem mikilvægur þáttur í listmenningu 20. aidarinnar. Smábörn tjá sig með því að gefa frá sér hljóð, gráta ef þeim líður llla og hjala ef þeim líður vel. Einn- ig gefa þau til kynna líðan sína með nreyfingum. Fyrst getur barnið ekki tjáð sig með orðum, ekki með dans, látbragði eða viðlíka aðferðum, að eins með fálmkenndum hreyfingum. Þegar fram líða stundir verður tján- ingarmáti barnsins margbrotnari. Það fer að segja orð og orð, og það lærir að brosa og hlæja. Barnið hef- ur einnig ánægju af að marka hreyf- ingar sínar. Fyrstu teikningarnar eru nokkurs konar línurit af hreyfingum barnsins. Fyrst aðeins skástrik frá vinstri til hægri hjá rétthentum börn- um og öfugt hjá örvhentum. Barnið hefur ekki vald yfir hreyfingum nema um axlarlið. Fljótlega tekst því að hreyfa hendina samtímis um öxl og olnboga. Þá verða myndirnar fjöl- breyttari. Barnið getur dregið hring og í hvaða átt, sem það lystir. Á þessu skeiði gefur barnið myndinni oft nafn. Það er mynd af mömmu eða pabba t.d.: „Krotið“ breytist svo úr því að verða mörkun hreyfingar í tákn. Samtímis fá hlutirnir nafn í huga barnsins. Ummæli barnsins takmarkast af nafninu, það getur að- eins sagt, „voff, voff,“ eða „kis, kis,“ o.s.frv., en með teikningunni getur það gert nánari skilgreiningu á hlutn- um. Geri barnið mynd af kettj get- ur það teiknað klær, veiðikár, rófu- og margt fleira, sem einkennir kött- inn. Fimm til sex ára teiknar það jafnvel heila sögu í sömu myndina, sem það getur ekki orðað nema að takmörkuðu leyti. Áður en barnið fer í skóla, hefur áhuginn beinzt að ýmsu því í um- hverfinu, sem kitlað hefur forvitnt þess. Það kann fjölmarga leiki og þekkir sitt nánasta umhverfi jafnvel betur en hinn fullorðni. Námslöng- un þess verður sjaldan fyrir beinni hvatningu, en það velur sér fyrir- myndir. Það ætlar að verða vélstjóri, smiður eða hjúkrunarkona. Svo leik- ur það hlutverkið á svipaðan hátt og viðkomandi starfshópar haga vinnu sinni. Leikinn tekur barnið svo alvarlega, að ef það er truflað kostar það oft grát og gnístran tanna. Með skólagöngunni verður barnið að nema undir aga, sem hlýt- ur að vera hindrun eða breyting 4 þeirri frjálsu þróun, sem það hefur notið fyrstu 7 árin. Eitt mikilvæg- asta viðfangsefni skólans veður því að gera einstaklingum kleift að viðhalda sköpunargleði barnsins, svo hann verði hæfari að taka sjálfstæða afstöðu til lifsins. í skólanum lærir barnið að lesa, skrifa og reikna. Því opnast nýr heimur. Lestrarkunnátt- an gerir barnið hæft til að lifa æv- 564 TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.