Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Side 5

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Side 5
Þórsmörk — Landslagsmyndir Páll Jónsson. var mjög vinsæll ferðamannastaður, qg iðulega voru sextíu til sjötiu þátt- takendur í hópferðum þangað. Þá var ekki komin brú á Hvítá þar efra, og varð að ferja fólk yfir og ganga síð- qn í Hvítárnes.-Í Hvítámessferðum var Íjarnan gengið i Karlsdrátt, og það ér óuíaksins vert, þótt að vísu verði að vaða ár til þess að komast þang- að. En nú vill fólk sækja lengra, á ílveravelli og í Þjófadali. Og ekki má gleyma ferðum á Snæ- fellsnes. Þá var farið með skipi vestur á Stapa og jafnan gengið á jökulinn. Stundum voru á annað hundrað þátt- takendur í slikum ferðum. Einhverju sinni fóru áttatíu manns vestur með Eldborginni, og var þátttökugjald fimmtán krónur. Mér er sagt, að þessar tólf hundruð krónur hafi stað- ið undir kostnaði af ferðum félags- ins það sumarið. — Hefur annars jafnan verið tvennt til með það, hvort ferðir fé- íagsins bæru sig? — Já, það mun hafa verið upp og ofan. Til að mynda dró brátt úr áhuga á sunnudagsferðum, og til skamms tíma mun yfirleitt hafá verið tap á þeim. En ég held, að óhætt sé að segja það, að hjá þeim, sem mest og bezt hafa starfað fyrir Ferða- félagið, hafi hugsjónin jafnan setið í fyrirrúmi, en ekki von um umbun. — Hverjir voru helztu forvígis- menn Ferðafélagsins á fyrstu árum þess? — Forseti félagsins var Björn Ól- afsson, síðar ráðherra, en fararstjórn mæddi mest á þeim Skúla Skúlasyni, ritstjóra, og Helga Jónassyni frá Brennu. — Eru margir, sem hafa ferðazt jafnlengi með félaginu og þú hefur gert? — Já, til eru þeir, svo sem Jóhann- es Kolbeinsson, trésmiður. — En ann- ars vil ég taka það fram, að ég spjalla ekki við þig sem fulltrúi Ferða félagsins eða Bandalags íslenzkra Far fugla, þótt ég sé félagi í báðum þess- um samtökum. — Já, vel á minnzt, Farfuglar. Gam an væri, að þú segðir okkur eitthvað frá þeim félagsskap. — Bandalag íslenzkra Farfugla var stofnað árið 1939 og er grein á meiði alþjóðlegra samtaka, er á ensku nefn- ast International Youth Hostel Asso- ciation. Erlendis er starfsemi þess- ara samtaka einkum fólgin í því að reka sérstök Farfuglaheimili, þar sem félagsmenn einir fá aðgang. En hér heima hefur starfsemin orðið með nokkuð öðrum hætti og einkum beinzt að skipulögðum hópferðum og skemmtunum. Farfuglar eiga raunar hús við Laufásveg, skála á Selfjalli og helli í Valabóli undir Valahnjúkum og hafa gistiheimili á sumrin í Vest- mannaeyjum og á Akureyri. En net Farfuglaheimila. er ekki fyrir hendi. Ég fer jafnan í hvítasunnuferð með Farfuglum I Þórsmörk, og þá svífur alltaf^ sami góði andinn yfir vötnun- um. í Þórsmörk höfum við helgað okkur Sleppugil, og þar höfum við grisjað skóg og unnið að landgræðslu. Landgræðsluframtak Ljónaklúbbanna líkar okkur mjög vel, og er vonandi, að framhald verði á, því að vissulega er stórátaks þörf í þessum efnum. — Gjarnan má koma fram, að hin ágætasta samvinna er með Ferðafé- laginu og Farfuglum, og eru margir félagar í báðum samtökunum líkt og ég. — Eru ekki til fleiri félög hérlend- is á þessu sviði? — Ja, deildir úr Ferðafélaginu eru starfræktar á ýmsum stöðum úti urn land, og svo starfar félagið Fjalla- menn innan Ferðafélagsins. Fjalla- menn eiga sér skála á Fimmvörðu- hálsi og á Tindfjallajökli og hafa mjög lagt stund á jökulgöngur. Þeir eru eini aðilinn hér á landi, sem geng- izt hefur fyrir námskeiði í fjallgöng- um. Svo má ekki gleyma Jöklarann- sóknafélaginu, sem heldur sig við jökla eins og nafnið bendir til og hefur unnið stórmerkt starf. Þá er til Litli Ferðaklúbburinn og Skandi- navisk Boldklub, en þeir Skandína- varnir ganga á hverju ári yfir Eyja- fjallajökul. „ — Um hvaða slóðir hefur þú eink- um ferðazt? — Einkum um Suður- og Vestur- land og öræfin upp af þeim lands- hlutum. Aðrir landshlutar hafa orðið nokkuð út undan, og erlendis hef ég aðeins ferðazt lítið eitt um Danmörku. Óþarfi er að geta þess, að ísland og T í M I N N — SUNNUDA™,n ’Ol

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.