Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 8
Landmannalaugar. austur í Skaftártungu. Er það til- hlökkunarefni fyrir ferðaraenn, því að margir fallegir blettir eru á Fjalla- baksleið nyrðri aðrir en Laugar. Ég hef farið alla þessa leið einu sinni, en það er önnur saga. Og Kerlingarfjöll urðu ekki vinsæll dvalarstaður, fyrr en þeir Valdimar Örnólfsson og Eiríkur Haraldsson tóku að reka skíðaskóla sinn þar fyrir fáeinum árum. Til skamms tíma efndi Ferðafélagið til einna eða tveggja hóp ferða í Kerlingarfjöll á ári, og þátt- takan var þetta fimmtán til tuttugu hræður. Það var allt og sumt. — Eru ekki öræfaferðir að miklu leyti bundnar við hásumarið? — Ja, óneitanlega er sumartíminn skemmtilegastur til ferðalaga, og sum arnóttum á öræfum gleymir enginn, sem kynnzt hefur. En þetta er undir veðri komið, og oft er ekkert þvx til fyrirstöðu, að unnt sé að ferðast um fjöll og öræfi á öðrum tímum árs — nemá þá helzt um bláskammdegið og méðán klaki er að fara úr jörðu. — Hverju heldurðu, að þeir er- lendu 'ferðámenft séu einkum að sækj ast eftí| sem koma hingað til lasds? —■ Effi hygg, 'm fíestir þeír, sem leita Jm 4 Öíifígx séu j leit að raun véruiei'ffii öí^^um, kýrrð og næði. Það er víst óvíða erlendis, sem mað- urinn getur verið einn með sjálfum sér. En þegar komin er pylsusala á Kili og íssjoppa á Sprengisandi, þá er úti um þetta, og fólk myndi lík- lega leita til Grænlands í staðinn. — Þér finnst þá ekkert kappsmál fyrir íslendinga að gera sér erlenda ferðamenn að tekjulind. — Nei, alls ekki. Ég vona, að það komi aldrei að því, að við gerum okkur allt að féþúfu í þessum efn- um, eins og tíðkazt í sumum ferða- mannalöndum. Öræfin eiga að fá að vera í friði. Að því getur rekið, að þau verði ekki lengur öræfi, og þá erum við búin að týna þvi, sem við erum að leita að. Ég hef ekkert á móti því, að reist séu sæluhús og skálar á öræfum og bifreiðaslóðir ruddar. En gæta verður hófs í öllu slíku. Ég myndi telja illa farið, ef einhverjar stórbyggingar yrðu reistar í Þórsmörk. Mörkin á að fá að halda sér, eins og hún er. Og svo má geta ess, að oft getur blásið upp út frá ifreiðaslóðum á graslendi á öræfum. — Reynist það ekki kostnaðar- samt að leggja stund á útilíf í jafn- ríkum mæíi Og þú hefur gert? — Þettg getur verið nokkuð dýrt fyrir fj8iskyidu, en fóík sér yfiriéitt ekki eftir þeim fjármunum, sem í ferðalög eru lagðir. Og það er margt, sem meira tekur í pyngjuna. Hægt er að taka þátt í sunnudagsferð með Ferðafélaginu fyrir rösklega hálft and virði einnar brennivínsflösku. — Myndirðu geta sagt um það, hvaða einstakan stað þér þykir vænst um? — Því er vandsvarað, en ég held, að mér sé sárast um Þórsmörk. — Svo ein lokaspurning í sígild- um, stíl: Þú ætlar ekki að ieggja gönguskóna á hilluna? — Ætli það. Menn hverfa af sjónar- sviSinu, — fróðleikur týn- ist. Það eina, sem getur varðveitt hann, er hið rit- aða orð. — Lesendur blaðsins eru beðnir að hafa þetta í huga, þegar þeir komast yfir fróðleik eða þekkingu, sem ekki má glatast. 704 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.