Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 14
Sviðsmynd frá sýningu Þjóðleikhússins á Sölumaður deyr: Indriði Waage (Willy Loman) og Jón Aðils (Ben frændi). en allir hlutir séu til samtímis í brjóst um vorum. Skilin milli gengins tíma og líðandi stundar verða aldrei glögg. Form þessa leikrits miðaði að því að reyna að sýna það, sem fram fór i huga Willys Lomans. Rithöfundur getur dæmt áhrifamátt formsins eft ir því, hve mikið af hinni upphaf- legu hugsýn hans og tilfinningu kemst til skila. Miller kveðst hafa æskt þess að tala um sölumanninn, eins og honum þótti bezt hæfa, og reyndi að halda sig við það, hvað sem leið áhrifamætti eða leikrænni nauðsyn. Ekki var miðað að því að skapa sí- vaxandi spennu, meiri áherzla var lögð á á heildaráhrifin. Uppbygging- in átti að sýnast tilviljunarkennd eins og í Öllum sonum mínum, en þó með öðru móti. í Öllum sonum mínum var leitazt við það að færa sönnur á hluti, rekja samhengið milli orsaka og af- leiðinga. En í Sölumaður deyr er ráð fyrir því gert, að ekki þurfi að sanna neitt. Gengið er ift frá því sem gefnu, að allir þekki Willy Loman. — Næst víkur Miller að því, að gegn vilja sínum hafi leikritið Allir synir mínir borið þess merki að vera sam- ið af rithöfundi. f Sölumaður deyr komi þetta atriði enn skýrar í ljós. Willy Loman gefur ekki í skyn, að hann sé þrotinn að kröftum og finni sép enga réttlætingu framar, hann seg ir það fullum fetum strax í upp- hafi. Sama máli gegnir um sundur- þykkju þeirra feðganna. Allt, sem í leikritinu felst, er boðað í byrjun þess. Miller vildi, að í Ijós kæmi, að leikrit þetta væri samið af listamanni ARTHUR MILLER FJALLAR UM SÍN EIGIN VERK v. Samning Allra sona minna hófst á stríðstíma, og Miller telur verk sitt hafa verið svar við því, sem lá í loftinu. Hann taldi sig afhjúpa það, sem allir vissu en enginn kvað upp úr með. Jafnframt hélt hann sig segja fréttir og átti hálfpartinn von á því, að bornar yrðu brigður á sann leiksgildi þeirra. Sú varð þó ekki raunin á. Leik- ritinu var mjög vel tekið, og kom Miller það á óvart. Uann líkir fyrsta sigri á sviði leikritunar við það að ýta á hurð, sem skyndilega er opnuð hinum megin frá. Hugsanlegt er, að maður steypist á höfuðið, en allt um það er nú opið herbergi, sem lokað var áður. Miller þótti þessar viðtökur mjög uppörvandi, og þær hvöttu hann til frekari átaka. Ilonum fannst hann vera staddur í vinsamlegum heimi. Miller fannst Alla syni mína skorta sívakandi trylling til viðbótar við líf ræna einingu sína. Hann áleit leik- formið ekki vera nægilega skynjan legt, og tímaskilningur þess kom í bág við reynslu hans sjálfs. Kveikjan að Sölumaður deyr, (Death of a Salesman) var sú, að Miller fannst hann sjá risastórt and lit opnast upp á framsviði í leikhúsi þannig að sæist inn í mannshöfuð. Fyrsta hugmynd að titli var The Inside og His Head, er mætti þýða sem Inni í höfði hans. Mynd þessi var andstæða Allra sona minna. Mynd sölumannsins byggðist frá upphafi á því, að ekkert í lífinu komi „næst“, — en það skyldi gert með því að hafa leikritið „ólistrænt“ og ekki til- gangsbundið, með því að láta ekkert liggja í þagnargildi, sem komið hefði í ljós í lífinu sjálfu, jafnvel þótt með því móti drægi úr leikrisi og spennu. Aðeins eitt lá Ijóst fyrir, þegar samn- ing verksins hófst: að Loman myndi tortíma sjálfum sér. Miller hafði þá engar áhyggjur af því, hvernig þetta myndi verða. Hann var aðeins sann- færður um það, að rifjuðust nægar minningar upp fyrir Willy, myndi hann farga sér. Bygging leiksins ákvarðaðist af því, sem nauðsynlegt var til þess að vekja minningar Lo- mans. Bygging leikritsins er spegilmynd hugsanagangs Wyllis Lomans á þessu skeiði lífs hans. Hann er maður af 710 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.