Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Blaðsíða 6
t Hvítárnes. Ðanmörk eru gagnólík lönd, og þar ytra er lítil völ á tjaldstæðum og skylda að vera kominn á tjaldstað á ákveðnum tíma. Slíkum aga væri margur fslendingur ófús að hlíta. En snyrtimennsku og umgengnismenn ingu gætum við lært af Dönum. — Er umgengni íslendinga á ferða- lögum yfirleitt ábótavant? — Ja, góð er hún ekki, það verður að játa. Á fyrstu árum Ferðafélagsins varð töluverð breyting til batnaðar í þessu efni, og fyrir tilstuðlan þess var til að mynda hætt að mála aug- lýsingar á steina við þjóðvegi. En síðan hefur heldur verið um afturför að ræða, þótt í þessu sambandi verði ' að gæta hinnar miklu aukningar á fjölda ferðafólks, og ungt fólk geng- ur allajafna ekki verr um en það, sem er á miðjum aldri. Fjöldi fólks hefur að vísu alltaf gengið prýðilega um, en það þarf ekki nema einn gikk í hverja veiðistöð. Það er eitthvert hugsunarleysi, sem gengur að fólki, og ætti ekki að þurfa neitt stórátak til þess að ráða bót á því. Skemmd- arvargar eru svo séj á parti. Það er hryggilegt að vita til þess, hvernig óviðkomandi aðilar hafa gengið um helli Farfugla í Valabóli. Einhverjir hafa meira að segja lotið svo lágt að stela fáeinum krónum úr spari- bauk, sem þar hafði verið komið fyrir. Þá hefur oft orðið misbrestur á þvi, að fólk gangi sómasamiega um sælu- hús Ferðafélagsins, sem standa öll- um opin. Þar eru iðulega skilin eftir óþvegin matarílát, og stundum er þeim hreinlega stolið. Hér þarf að verða mikil breyting á almenningsálitinu. Pokar þeir, sem Ljónaklúbburinn lætur bílaeigendum í té, eru spor í rétta átt, og fyrr eða síðar hlýtur að reka að því, að þetta mál verði tekið fastari tökum. — Af hafa tagi er það fólk, sem mest tekur þátt í hópferðum Ferða- félagsins? — Það er ærið sundurleitur hóp- ur. Mikið er af ungu fólki og kon- ur oft í meirihluta, og eru þær engu óduglegri að ganga en karlmennirn- ir. Þetta er að nokkru leyti alltaf sami hópurinn, sem þátt tekur í þess- um ferðum, en þó sér maður ýmis ný andlit á hverju sumri. Svo er alltaf slæðingur af útlendingum. — Er annars þorri íslendinga lítt hneigður til gönguferða? — Ja, að minnsta kosti er ólíku saman að jafna hér og í Noregi, veit ég er. Hér eimir töluvert eftir af því viðhorfi, sem brauðstritið hefur skapað, að fáránlegt sé að æða upp um fjöll og firnindi án nokkurs tak- marks og tilgangs eða þá að róa út á sjó án þess að bera það við að veiða. Svo virðist mér stundum áhöld um það, hvort fólkið á bílana eða bílarnir fólkið. Hér á árunum brá ég mér iðulega i bílferð með fjöl- skylduna á kvöidin. En það brást aldrei, að við stönzuðum einhvers stað ar og gengjum út. Bílar eru nefni- lega afar þolinmóðir að bíða. — Finnst þér ef til vill, að íslend- ingum sé tamt að leita langt yfir skammt, þegar þeir fara í ferðalög? —Ég hef alls ekki neitt á móti utanlandsferðum sem slikum, og gæta verður þess, að ekki er ýkja langt síðan þorri fólks tók að geta veitt sér slíkt. En ég held, að sumir geri sér ekki grein fyrir því, að ánægjulegt ferðalag þarf hvorki að vera langt né kostnaðarsamt. Ég er til að mynda sannfærður um það, að svæðið upp af Hafnarfirði hefur gold- ið nálægðar sinnar við þéttbýlið. Ekki þarf að fara langt úr fyrir Reykjavík í leit að fallegum og sérkennilegum stöðum, þar sem tilvalið er að fara í gönguferðir. En hitti maður ein- hvern á slíkum slóðum, er það venju- lega einhver kunningi. Við getum nefnt Álftanes, Gálgahraun, Iírýsu- víkurbjarg, svæðið í kringum Kolvið- arhól, Hengilssvæðið allt og Esjuna. Einhver skemmtilegasta ferð, sém ég hef tekið þátt í, er Jónsmessunætur- ganga á Esju. Þannig var, að fjöl- skyldan sat yfir borðum að kvöldi Jónsmessudags í hinu fegursta veðri, og þá stakk ég upp á því, að við gengj um á Esju. Við vorum ekkert að tvínóna við það og áttum þarna ynd- islega sumarnótt. — Hverjar myndirðu telja þýðing- armestar lífsreglur í sambandi við gönguferðir og fjallgöngur? — Það skiptir meginmáli að ganga ekki of hratt og fara sér rólega af stað. Ég hef tekið eftir því, að óvant fólk verður oft fráhverft gönguferð- um, vegna þess að gengið er of hratt fyrir það og það heldur, að það sé til trafala. Mér finnst sjálfsagt að vera klædd- ur í ull á gönguferðum. Þá finnur maður ekki fil þess, þótt maður svitni eða blotni. Regnklæði geta verið góð, en í úrhellisrigníngu duga þau ekki fyllilega. f fjallgöngum er sjálfsagt að vera í sterkum skóm, sem gefa góða spyrnu, og ullarsokkum. Striga- skór eru óhentugur fótabúnaður i fjallgöngum og reyndar yfirleitt, þeg- ar gengið er á örðugu landi. Annars er það sígild regla, að miða klæða- burð á ferðalögum við versta veður, sem líkur eru til, að komið geti. Sjálfur læt ég mér nægja smurt brauð og kaffi sem nesti í helgar- ferðir, en annars er um að gera að velja mat, sem lítið fer fyrir, hefur mikið næringargildi og er ekki í þung um umbúðum. Það getur til að mynda varla talizt skynsamlegt að bera með sér gosdrykkj^flöskur. Það munar nefnilega töluvert um hvert kílóið, einkum þegar fólk ber tjöld og all- an útbúnað með sér. Og því er æski- 702 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.