Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Side 13
Réne Magrifte. — „Laeknir" — 1937 Surrealismi.
Surrealisminn á rót sina að rekja til hins svokaliaða dada-
isma, sem er afkvæmi fyrri heimsstyrjaldarinnar. alokkrir
listamenn, er héldu hópinn, uppmáluðu menninguna '*m at-
gjört tilgangsleysi. Þeim virtist lifiS einskisvirði i failvait-
leika sínum. Eftir stríðið kom hóþurinn saman til þess að
semja stefnuskrá dadaismans, en þá varð isminn að engu
í sínu eigin stefnuleysi. Upp af rústum hans éx Surrealism-
inn.
Charies Ceeler. „Klassískt landslag" — 1931 — Natural
ismi. Ceeler tók fjölda margar Ijósmyndir fil þess að
undirbúa sig, áður en hann máiaði þessa mynd. Mál-
verkið virðist líkara fyrirmyndinni en Ijósmynd getur
verið. Naturalismi fyrirmyndarinnar er alls ráðandi, —
andstætt naturalisma Bissiers hér vlð hliðina
Westermann. — „Minnismerki um hugmyndina að mann
inum, ef um hugmynd væri að ræða". — 1958 Poplist.
Poplistin er upprunnin \ Bandaríkjunum. í fyrstunni ætiuðu
listamennirnir að koma á óvart með því að setja saman
myndir úr ýmsum hversdagslegum hlutum. Það tókst. En
nú hafa hinir frökkustu þeirra gengið lengra: Þeir bjóða
áhorfandanum inn í sýningarsal, sem er um leið laíksvið
fyrir ýmis konar skringilæti.
Julius Bissier. — „Teikning" — 1957. Abstrakt eks-
pressinismi. Mjög marglr nútimamálarar vinna í þessum
anda. Pensillinn virðist dreginn tilviljunarkennt yfir
léreftið, en máiarinn reynir að gæða pensilstrikin lifi
með því að hagnýta tilviljunina til heildarmyndunar.
Þetta er naturalismi áhaldsins og efnisins.
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
709