Tíminn Sunnudagsblað - 16.10.1966, Síða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 16.10.1966, Síða 20
Jófríður jCrSstjáBisdóttirs Á dansleik í Staðar- sveit fyrir 54 árum Þegar Ungmennafélag Staðarsveitar varð 50 ára, nú fyrir fjórum árum, hélt það veglegan afmælisfagnað í samkomuhúsi sveitarinnar í Hofgörðum. Eitt það athyglisverðasta, sem þar var flutt, var frásögn sú eftir frú Jófríði Kristjánsdóttur frá Lágafelli ytra, sem lesin var þar af frú Björgu Þorleifsdóttur frá Hólakoti. Þetta var lýsing á einni fyrstu ferð Jófríðar á dansleik, og var hún farin þá fyrir rúmum fimmtíu árum. Ýmsir hafa hvatt Jófríði til þess að birta þessa frásögn og biarga henni þannig frá glötun eða gleymsku, því að þarna kemur fram skýr mynd af aðstöðu unga fólksins í sveit fyrir fimmtíu til sextíu árum. Jófríður bjó lengi í Staðarsveit, fyrst að EHiða og síðar að Furu- brekku. Maður hennar er Páll Þórðarson frá Borgarholti. Þau eru nú búsett í Grafarnesi, og eru ern og minnug á gamla siði og venjur. Jófríður er dóttir Kristjáns Elíassonar og Vigdísar Jónsdóttur, sem lengi bjuggu á Lágafelli ytra. Þau systkini Jófríðar, sem hún nefnir hér ,þau Elías, síðar bóndi í Arnartungu, EHiða og Lágafelli ytra, og Ragnheiður, sem bjó lengst í Straumfjarðartungu og lér.t nýlega, voru bæði stofnendur áður nefnds ungmennafélags. Yngstur þeirra systkina var Jóhann á Lágafelli syðra, sem einnig starfaði í ungmennafélaginu í Miklaholtshreppi. Kristján Elíasson. Formaður Ungmennafélags Staðar- sveitar bað mig í tilefni af fimmtíu ára afmæli félagsins að lýsa og segja frá einhverri af fyrstu skemmtisam- komum félagsins, hvað við skemmt- um okkur við og hvernig vxðhorfið var til skemmtanahalds. Með þá lýsingu í huga gætu svo nútímafélagar borið nútíðina saman við þá tíð, og komizt að raun um, hver munur er orðinn þar á. Það var byrjað á því, nokkru áð- ur en félagið var stofnað, að hafa að vetrinum vikuleg skemmtikvöld. Unga fólkið, sem átti heimangengt, kom þar saman til að skemmta sér. Þá kunnu fáir að dansa, en sú alda gekk þá yfir, að allir vildu læra þá dásamlegu list. Þá bjó j Ytri-Tungu í Staðarsveit ungur bóndi, ókvæntur, Norðlending- ur að uppruna — kátur og fjörugur náungi. Hann hét Guðlaugur Jóns- son. Hann fluttist eftir nokkur ár suður í Borgarfjörð og bjó að Ána- brekku. Þessi maður dansaði og kuniH mikið af laikjum. Hann sagði stundum til gamans sögur af ferð- um, sem höfðu aldrei verið farnar, og mörgu fleira. Þá þykir mér rétt að lýsa hér nokkuð samkomuhúsinu okkar, sem jafnframt var fundarhús sveitarinnar. Það stóð á hlaðinu í Hofgörðum og var þar nyrzt húsa. Stafn þess sneri í suðaustur, en gafl í norðvestur. Það var þannig byggt, að hliðarvegg- ir þess voru hlaðnir úr torfi, svo og gaflveggurinn, en framstafninn var úr timbri. Gluggi var á stafni húss- ins með fjórum til sex rúðum. Hurð- in var slegin saman úr þykkum börð um óplægðum. Engar lamir voru á hurðinni í þetta skipti, en hafa ef til vill verið það fyrr meir. Ekki var heldur nein læsing á hurðinni, held- ur var sperrt við hana að utan með staur. Að innan voru veggir þiljaðir - með borðum, misþykkum þó, allt upp að syllum. Svo voru sperrur og yfir þær voru járnplötur, en súð var eng- in. Svona leit fundarhúsið okkar út þá. Sá fundardagur okkar, sem ég ætla að segja ykkur frá, var laugardagur, en mánaðardag man ég ekki. Þ90 var í febrúarmánuði 1907. Veðri vqr þannig háttað, að lausasnjór var á jörðu, og var hægur útsynningúr þennan dag og fennti í smálognéíj- um. Við bjuggum okkur af stað þrjú systkinin, Elías, bróðir minn, seiii var elztur, Ragnheiður systir og ég. Þegar við vorum ferðbúin, man ég, að pabbi okkar kom inn og sagðí: „Ekki lýst mér á þetta ferðalag ykkar, krakkar mínir. Útlitið er þannig, að mér sýnist hann eiga það til að gera norðanbyl. Þá var hvorki til útvarp né held- ur veðurspár. En leyfi var nú feng- ið til þessarar farar og ekki hugs- anlegt, að hún félli niður, því að mjög hafði verið hlakkað til. Við lögðum af stað upp úr há- degi. Leiðin frá Lágafelli í Mikla- holtshreppi út að Hofgörðum var tal- in röskur tveggja til þ'riggja tíma gangur í góðu færi. En nú tók snjór- inn aldrei minna en í miðjan legg, en var laus. Við systkinin komum í úteftirleið við hjá frænku okkar, sem bjó í Neðra-Hól, sem er í Tunguplássinu. Þar fengum við góðgerðir og hvíld- um okkur um stund. Þegar við kom- um svo um kvöldið út í húsið, voru nokkrir komnir, og eftir það var allt- af að smábætast við. Líklega hafa komið þar saman um sextíu manns. En húsrúmið var lítið, því að húsið var sex álnir á lengd og fjórar til fimm álnir á breidd. Þá voru nýlega flutt að Hofgörð- um hjónin Guðrún Þorsteinsdóttir og Jón G. Sigurðsson, sem voru sér'.ega gestrisin og skemmtileg. Jón var vel skáldmæltur og orti oft skemmtileg ljóð, sem sungin voru á skemmtun- um. Mörg voru ljóð þessi lof um fegurð sveitarinnar. Bæði sungu þau hjónin mjög vel. Jón flutti líka oft erindi í óbundnu máli, og man ég, að við unglingarnir vorum hrifin af þeim. Annars var þarna mikið um söng yfirleitt, og allir reyndu að syngja eftir getu, þótt nokkuð syngi þar hver með sínu nefi eins og geng- ur. Oft voru svo líka lesnar spenn- andi sögur, og ýmislegt annað var til skemmtunar og fróðleiks. Við Lágafellssystkinin sóttum fast að gerast þátttakendur í þessum fé- lagsskap Staðarsveitar. Við áttum allt af meira saman að sælda við Stað- sveítunga heldur en íbúa okkar hrepps, enda á yzta bæ hreppsins, svo að okkur fannst Staðarsveitin alltaf vera okkar sveit. Á Búðum bjó þá stórbóndi, sem auk annars var kaupmaður og hafði sjávarútveg. Þessi maður, sem hét Finnbogi Lájusson, hafði því, eins og gefur að skilja, margt manna í sinni þjónustu. 884 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.