Tíminn Sunnudagsblað - 19.02.1967, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 19.02.1967, Blaðsíða 9
Hér að ofan er mynd af Inkabók frá 1613, sem skrifuð er á blendingi Inkamáls og gamallar spænsku. Til vinstri er. mynd af Indíánagoöi frá Perú, er gert en af skíra gulll, en neðan er sýningarhorn af skreyt ingum Indíána í Mexikó á stórbyggingum sinum. Frá blómaske íði Indíána Þegar hvitir menn komu til Vest- urheims, var þar víða blómleg Indií- ánamenning. Margar Indíánaþjóðir voru á undraháu menningarstigi, og bera miklar byggingar og margir fagrir listmunir þessari menningu vitni. Einkum voru það þó Inkar og Mæar, sem bjuggu við háþróaða menningu. Það var Indíánum mikill ógæfu- dagur, er Kólumbus og menn hans stigu á land í Vesturheimi. Hvítir menn komu í flokkum að leita gulls og gróða og ævintýra, og Indíánarnir sem héldu fyrst, að hinir hvítu menn væru sjálfir guðirnir, voru brotnir á bak aftur og undirokaðir. Veldi þeirra var lokið og menning þeirra ofurseld tortímingunni. Sjálfs kyns Indiíána beið ófarnaður og niðurlæg ing, og hefur það ekki síðan borið sitt barr. Yfirleitt búa Indíánar í Vesturheimi við hin aumustu kjör, og er örbyrgð og drykkjuskapur að jafnaði hlutskipti þeirra. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 153

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.