Tíminn Sunnudagsblað - 19.02.1967, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.02.1967, Side 13
ar, i flestum löndum Norðurálfu á fyrri tímum. Þeir voru meira að segja einnig á Norðurlöndum áð- ur en sögur hófust. Þangað hafa þeir fylgt framrás skógarins eftir isaldirnar. Talið er, að þeir hafi hafzt við í Danmörku í þrjú til fjögur þúsund ár, og hafa oft fund- .izt þar bein úr þeim og stundum heilar beinagrindur, einkum i fenj- um, er þeir hafa álpazt út í eða flúið í undan veiðimönnum. í einu tilviki fannst einmitt óddur tinnu- örvar í slíkri beinagrind. Steinaldarmaður, sem hætti sér í návígi við úruxa eða vísund, hef- ur áreiðanlegt teflt á tvær hættur. Það hefur ekki ævinlega verið veiði maðurinn, sem hrósaði sigri. En það var til mikils að vinna. Nauts- skrokkur var steinaldarfólkinu mik ið búsílag, og auk þess voru bein- in gagnleg til margra hluta, þegar kjötið hafði verið nagað af þeim. Margs konar verkfæri úr slíkum beinum hafa fundizt í gömlum ból- stöðuni steinaldarmanna. Þótt uxar hyrfu af því landsvæði, þar sem nú er Danmörk, lifðu þeir við bezta gengi sunnar í álfunni, einkum í Mið-Evrópu. Þegar Sesar fór herfarir sínar um þau lönd um miðbik fyrstu aldar, kynntist hann veiðiaðferðum Germana: Þeir veiddu uxana í gryfjur. Miklir veiði menn söfnuðu hornum uxanna og höfðu til sýnis, sér til ágætis, og hlutu af mikla frægð. Af þessum hornum gerðu höfðingjarnir sér drykkjarhorn, er þeir skreyttu Úruxamynd úr þýzkri náttúrufræði frá byrjun sextándu aidar. silfri. Til slíkra horna eiga hin silf- urslegnu drykkjarhorn íslendinga væntanlega að rekja uppruna sinn. Uxaveiðarnar hafa án efa verið fast sóttar á þessum öldum, er sam an fór gagnleg bráð og mikil veiði- frægð. Þó stóðst uxastofninn þenn- an ófrið nokkurn veginn, allt þar til skotvopnin komu til sögunnar. Þá gerðist leikurinn harla ójafn. Þá þurfti ekki lengur stórum meiri fræknleik til þess að leggja uxana að velli heldur en sunnudagsskytt- urnar, er fara til rjúpnamorða á Hellisheiði og Bláskógaheiði, hafa til að bera. Dagar uxanna voru senn taldir í flestum löndum. Þeir þraukuðu einungis á afskekktustu og ógreiðfærustu stöðum. Það er auðvelt að gera sér í hug- arlund vaxtarlag úruxanna. Beina- grindurnar sýna, að fullorðinn tarf ur hefur verið nær fjórir metrar á lengd og upp undir tveir metrar á herðakamb. Þó hefur verið á þeim talsverður stærðarmunur. Sesar segir uxana litlu minni en fíla, en að útliti öllu, lit og vaxtar- lagi áþekka nautgripum. Hann rómar, hve sterkir þeir séu og fljótir að hlaupa, og eigi sér ekkert vægðar að vænta, er á vegi þeirra verður, hvorki menn né dýr. Óger- legt segir hann að temja þá og venja þá við návist manna, og gildi einu, þótt kálfarnir séu handsam- aðir nýfæddir. Til uppbótar uxabeinum og því- líkum lýsingum á dýrum þessum, eru svo teikningar ýmsar og skurð- myndir, gerðar á meðan dýrin voru enn á ferli í skógum álfunnar. Einnar slíkrar myndar hefur þeg- ar verið getið, og önnur, sem sízt var lakari, fannst á málverki í Ágsborg. Á síðustu árum hafa menn orð- ið varir við nautategund eina í Suðaustur-Asíu, sem virðist skyld úruxum. Enn er þó ekki rannsak- að til hlítar, hve skyldleikinn er náinn, enda eru rnorð og tortíming verkefni, er þar hafa þótt brýnni um alllangt skeið, heldur en rann- sóknir á lifandi verum. Á hnútu úr úruxa, sem fannst í mýri á Sjálandi árið 1940, eru elztu myndir, sem kunnar eru af fólki á danskri grund. Þetta er dálítill hópur manna, og þeirri hugsun skýtur undir eins upp, að þetta sé fólk, sem komið hafi auga á úruxa í skógum heimkynna sinna. Þetta er að minnsta kosti hópur, sem hefur numið skyndilega stað- ar og horfir á eitthvað af mikilli athygli, kannski ekki búinn að átta sig á því, hvað til bragðs skuli taka. (Heimild: Tímaritið Skalk). Úruxi á gömlu málverki, sem lengi var varðveitt f Ágsborg. T I M I N N - SMNNUDAGSBLAÐ 157

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.