Tíminn Sunnudagsblað - 06.08.1967, Side 22

Tíminn Sunnudagsblað - 06.08.1967, Side 22
a'ð ávalít má greina nokk- ur blæbrigði á lit kameljónsins, því að innbyrðis afstaða húðlag- anna er ekki fvllilega hin sama, hvar sem er á líkamanum. Astæður fyrir litbrigðum kame- Ijónsins geta verið af ýmsu tagi, eins og áður getur, og hefur þeg- ar verið minnzt á hinn svarta illsku lit. Annað dæmi um litaskipti vegna geðbrigða er það, að karl- dýrið skiptir i sífellu um lit, þeg- ar það rekst á kvendýr á fengitím- anum. Vill karldýrið sennilega vekja á sér athygli með þessu móti. Ekki er síður skemmtilegt að veita athygli breytingum sem verða, þegar einhver hluti líkama dýrsins lendir í skugga. Liggj kameljón hreyfingarlaust og beri aðeins á það skugga eins laufblaðs, myndast fölur, lauflaga blettur í húðinni. Og þeir, sem halda kameljón sér til gamans og hafa sett það -út í glugga, vita, að sú hliðin, sem frá glugganum snýr, verður langtum ljósari. Að endingu skal reynt að út- skýra, hví það var hald manna, að kameljón lifðu á loftinu. Þess er áður getið, að dýrið getur þanið sig út, og það getur komizt af án fæðu í mánuð eða lengur. Þá hefur værukærð dýrsins ugglaust verið þessari trú til styrktar, en það bærir oft ekki á sér langtím- um saman, einkum þegar svalt er í veðri. (Helzta heimild: More Animal Legends eftir Maurice Burton). Rætt við Björn Þorsteinsson Framhald af bls. 456. breytingar, og það þarf að mat- reiða fortíðina fyrir ungu kyn- slóðina. Sagan gefur okkur kjöl- festu hér í úfnum sjó Norður- Atlantshafs, því að án hennar vær- um við fortíðarlaus ættflokkur — ættlaus og vitlaus öreigalýður á útskeri. Á barnaskólastigi er eðlilegt, að sögukennsla sé í því fólgin að segja sögur, en því er nú verr og miður, að kennslan er lakari á hærri skólastjgum — og íslenzk sagnfræði yfirleitt er nálægt þessu barnaskólaviðhorfi. Sjálfur kaus ég íslenzku fremur en sögu að kennslugrein í gagnfræðaskóla, svo að ég tala ekki af miklum kunnugleika, en ég tel, að það sé rangt að hafa sama náms- efni til landsprófs og kennt er í tveimur bekkjum á und- an. Ég álít æskilegast að losna við fornaldarsögu úr menntaskól- um, og það væri auðvelt, ef nemendur fengju ný efni til meðferðar landsprófsvetur- inn: forsögu, fornleifafræði, þjóðfélagsfræði og fornaldar sögu. Með þessu móti myndi traust ari grundvöllur lagður að sögu- námi í menntaskóla en nú er raun á. Eins og kom fram hjá okkur áð an, tel ég haopadrýgst að greina fslandssögu sem minnst frá al- mennri sögu og reyna að gera nem endum ljóst samhengi við líf for- tíðar Qf ýmisleg áhrif, sem borizt hafa milli landa. Annars vil ég alls ekki kasta neinni rýrð á sögu- kennara með þessum ummmæl- um um sögukennslu. Ýmsir hafa gert lofsverðar tilraunir, tíl að mynda að láta nemendur skrifa ritgerðarkorn og styðjast þá við handbækur. En mörgu þyrfti að breyta, og hvað sem öðru líður, er það óréttlætanlegt hneyksli að kenna erlendar bækur um sögu. Það hlýtur að vera eitthvað til, sem kallazt getur menningarhelgi. — Myndirðu telja heppilegt, að nemendur í framhaldsskólum fengju að kjósa sér eitthvert svið sögunnar sem sérgrein og síður væri skeytt um að fara yfir sem flest tímabil? — Valfrelsi af þessu tagi er mjög æskilegt, en það er því að- eins hugsanlegt, að hætt verði við tossakver og námsefninu komið á breiðari grundvöll, auk þess sem slík breyting er illframkvæmanleg í einni einstakri grein. En auðvit- að rekur að þessu. Ég held, að það sé miður heppilegt að ætla nemendum að fá nasasjón af öllu, en komast svo aldrei neitt lengra. Lausn 27.krossgátu Þetta grautarsjónamið — to put a label on everything, eins og enskurinn segir — er mjög vafa- samt, en það tröllríður til að ' mynda tungumálanámi hér. Anna Borg sagði, að sá hefði ekki lært tungumál, sem ekki hefði öðlazt nýja sál með því. Sögunám á að miðast að því að læra að skynja „sál“ aldanna. Það er miklu meira menntandi að taka eitthvert tíma- bil til rækilegar meðfer:ar og vita þá alls ekkert um sum önnur en læra eitthvert sundurlaust stað reyndarhrafl um alla tíma. Er sá, sem veit ekkert um fornöldina nema hluti á borð við þá, að Neró var vondur keisari og Kleópatra fékk ekki glapið Oktavíanus, í rauninni miklu nær? Nei, það þyrfti að leyfa nemendum að fjalla rækilega um einhver tiltekin efni, sögu einhvers tímabils eða sögu byggingarlistar eða tízku, svo að dæmi séu tekin. Slíkt nám getur orðið lykill að sjálfsnámi siðar meir. Og ég vil leggja áherzlu á það, að því meira val, sem um er að ræða, því betra. v—Hvað þá um sögukennslu við háskólann? — Mig brestur kunnugleika til þess að dæma um skipulagið, eins og það er nú. Við verðum að bíða og sjá, hver árangurinn verð- ur. Þarna felldum við Björn talið að sinni. En næsta sunnudag verð- ur greint frá spjalli okkar, er fund um bar saman á nýjan leik. I.S. Í?T TSpJSHSJSlS V<lf |T;t;i •* f |T T. I daaaiái Ás /*> F ciúíh íFi n\ t sitITÍÍÍIí LLíl jL UNjNTöjnTl -P; ~Rf A j iv. o 1 /? fí?' 1 j\| ;G;u|ivr.R!\E]ö j a\ T n' Ejíj\ LíGIH; í|JjS --------------------- fl /TlNjX'L p|s:~i ■g'u o jT i\' n '• r RlUlfiifiX .IRj fí 6|» r'flic. 7X! K K \. ísKj’rTýX 5jK -(j .fTo;líO;k]\Íf1h rk.fl.'IíTp1 •__ rC » . > » jVTtv ?, lK’! ° |\; Kj UjSj1 £JI]Tt\ v p \ ."i i . svVJa.u 670 TÍHINN - SUNXUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.