Tíminn Sunnudagsblað - 03.03.1968, Side 3
■<* V ,1U
<A« K
í+Sií rtS5fiiii|"i
/A'J'AVl
rtt.Vhf.
í þjóðsögum, sem gengið hafa meðal sjómanna i útlönd-
um, er oft getið draugaskipa. Fræ0ast þeirra hefur orð-
ið Hollendingurinn fljúgandi, sem sigldi mannlaus um
höfin, ár og síð og alla tíð. Risavaxið skrímsli hafði
dregið alla mennina niður í djúpið sagði sagan.
Hverju leyna hafdjúpin? Áttu gömlu sögurnar um skrimslinl
ekki við nertt að styðjast? Fyrir nokkrum árum fundu mennj
á rannsóknarskipi tröllaukið dýr út á Atlantshafi. Firna stór
smokkfiskur með þrjátíu metra langa arma bylti sér í sjávar-
skorpunnl.
Mörg undarleg kvikindi eru í sjón-
um. Þar er til dæmis þessl kyndugi
mathákur, sem eltir síldartorfur
og troðfyllir sig, svo að hann líkist
poka.
í fljótu bragði sýnist þessi fiskur
helzt á þrem næsta löngum fótum.
En þetta eru bara uggar. Á þeim
sveiflar hann sér í boga niðri á tvö
þúsund metra dýpi.
Á fimm hundruð mefra dýpi er lítill og
skrítinn flskur, silfuruxinn. Hann er
allur raflýstur og slær birtu í kringum
sig, hvar sem hann fer.
Viðsjálsgripir bregða upp tálbeitu
til þeess að ginna til sín bráð. Svo
er farið marhnútstegund einni, sem
lifir á miklu dýpi. 'Hann er skæður
forvitnum smáfiskum.
Stundum er sagt, að einhver sé með
augun út úr sér. Niðri í djúpum döl-
um hafsins leynist mjósleginn fisk-
ur, sem á seiði með augu á löngum
stiklum.
Annar úthafsfiskur er furðulega kjaft-
víður. Hausinn á honum er eins og
haganlega gerð töng, sem unnt er að
glenna svo sundur, að undrum sætir.
TfMINN - SUNNUDAGSBLAfi
17