Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1968, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1968, Blaðsíða 3
Sovétmenn og Kínverjar greinir á. Samt var stofnaö til kínversks ástarævintýris í Moskvu vorið 1966. Sí-sí frá Lundúnum og An-an í Moskvu eru einu risa- pöndumnr utan Kínaveldis, og þess vegna var flogiö með frúna Sí-sí tii Moskvu í von um fjölgun. Risapandan er eitthvert fágætasta dýr jarðar. Heimkynnl henn- ar er í ógreiðfæru hálendi Kína við tíbezku landamærin. Um nætur er hún á ferli í þéttum bambusskógum og ætur nægju sína af mjúkum, ungum bambussprotum. Á daginn sefur hún eða lætur að minnsta kosti lítið á sér bera. Kinverjar sömdu barnabækur um það leyti, er forfeður okkar voru víkingar. í meira en þúsund ára gömlum barnabókum þeirra eru myndir af risapöndum. Hvít ir menn „uppgötvuðu" risa- pönduna fyrsf fyrir 100 árum. Lítið er vitað um lifnaðarhætti, feril og þróunarsögu risapöndunnar. Hún lifir á mjög næringarlitlum bambussprot- um, og þess vegna veitir henni ekki af hálfum sólarhringnum til beitar, ef svo má að orði komast um fæðuöflun henn- ar. Fyrsta lifandi risapandan kom til Banda ríkjanna 1936. Hún vaktl undir eins mikla athygll. Til þess er að rekja tH- komu leikbangsanna og vinsælar teíkni- syrpur, þar sem pandan er aðalsögu- hetjan. ' O *!■ j Pandan Sí-sí í Lundúnum er virt á hér um bil tuttugu milljónir króna. Á kassann, sem hún var send í til Moskvu var skrifað: „Brúðarför til Sovétrikjanna. I Moskvu varð Sí-sí ástfangin af rússneskum gæzlumanni. An-an var latur og sinnulaus biðili. Bæði höfðu alizf upp meðal manna og virtust telja sig menn, en ekki pöndur. 1964 ól risapandan afkvæmi í kín- verskum dýragarði. Englendingar vildu þá reyna sæðingu við Sí-sí, en Rússar brugðu á gaman og sögðu, að An-an myndi þykja sér misboðið. TÍMI N N — SUNNUDAGSBLAÐ 363

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.