Tíminn Sunnudagsblað - 09.02.1969, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 09.02.1969, Síða 9
„ónei, hann or toara i Þvorfe- ; gilinu núna, ég sá hann á holtun- ; um,“ sagði strákur otg lét sér hvergi bregða við brigzlin. Jú, það var nú rétt hjá strákn- um, þarna birtist okkur riddari á götunni upp úr gilinu. „Þetta er hún Imba,“ galaði Odda systir og hoppaði af kæti, því að Imba prestsins var jafnaldra hennar og bezta vinkona. „O-o, þetta getur alveg eins ver- ið hann Siggi,“ sagði ég og vildi nú vera spákona líka. „Síðan hún Imba var klippt eins og strákur í vor, þá er ómögulegt að þekkja hausana á þeim að svona langt til.“ Þetta var alveg satt, því að bæði voru þau með sólskinsbjart hár, þótt ekki væru þau systkin. „Jú, víst er það Imba,“ sagði Odda. „Heldurðu ég þekki ekki rauðu peysuna hennar kannski?" Og það var satt, hvítur kollur, eldrauð peysa, — og ég varð víst að láta í minni pokann. „Og hún er á Skjóna,“ bætti Odda enn við. „Siggi hefði verið á Skol gamla.“ „Eigum við þá ekki að hlaupa á móti henni,“ lagði ég til mál- anna. Og við hlupum út fyrir túnið á móti þessari góðu vinkonu okkar og heilsuðum henni með miklum fögnuði. Það var allt of sjaldan, fannst okkur, að hún kom svona í sendiferðir síðan Siggi fór að gefj farið milli bæja. Hún var nú líká; farin að ganga út, slátturinn Vícf5 byrjaður og það var kominn júlTmánuður. Það var masað af hjartans lyst, og á leiðinni heim til bæjar spurðum við hana um erindið. En þá varð hún dálítið dularfull á svipinn og sagði hálf- stríðnislega: „Þið eigið að koma í próf á morgun út eftir til okkar.“ „Við? í próf? Núna?“ Við urðum báðar að upphróp- unar- og spurningarmerkjum og létum undrun okkar og forvitni óspart í ljós. En Imba leiddi okk- ur í allaíl sannleika um erindi sitt. Það var einhver málfræðidoktor á ferðinni, sagði hún, og hann boðaði tíu til þrettán ára börn 1 lestrarpróf. í dag var hann á Ströndinni, en á morgun var hans von að Stað, og þá ætlaði hann að prófa krakka úr dölunum. Við áttum að koma klukkan tvö. Jæja. Það var naumast! Doktor. tri-Hrrí „Það er einhver að koma að ut- ian,“ kallaði Diddi litli bróðir óða- mála, í því að hann reif upp skelli- hurðina í krossgöngunum á leið- inni inn í eldhús til að segja frétt- irnar. Við systurnar steðjuðum út til að gá og geta, hver væri á ferð, en sáum engan. „Þú skrökvar", sögðum við, og litum Óblíðum augum til Didda,, sem hafði elt okkur út á hlaðið. T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ 105

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.