Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Page 3
Enn geta dýrafræðingar gert uppgötvanir. í þrjátíu ár trúðu menn því, að fingurdýrið á Madagaskar væri út- dautt — síðasta dýrið hefði geispað golunni í dýragarði árið 1933. Eftir væru aðeins myndir af skrítnum apa, sem svipaðl til refs. Fá ár eru síðan það vitnaðist, að franskir náttúrufræð- ingar höfðu fundið fingurdýr á ný árið 1957. Þeir höfðu meira að segja fengið yfirvöldin á Madagaskar til þess að friðlýsa skógana, þar sem það hélt sig. Óbyggð eyja var gerð að þjóðgarði. Fingurdýrið minnir á silfurref, og það klifrar í trjám eins og íkorni. Það sést sjaldan að degi til. Þá sef- ur það í holum trjástofnum eða gjótum einhverjum. Það fer á kreik, þegar skyggir, og stekkur fimlega grein af greln. Við og við gefur það frá sér einkenni- legt hljóð, sem er þvi líkast, að málmklumpar nuggist saman. Iðulega hangir fingurdýrið á aftur- fótunum á trjágrein á meðan það seilist eftir hnetum og skordýrum eða hreinsar á sér eyrun með fingr- unum. Heyrnin er því mikilvæg. Elkkl er nafnið á þessum hálfapa út ( bláinn. Fingurnlr eru langir, og neglurnar minna á klær, Þumalfing- urinn er fattur, og einn fingurinn er sérlega langur og mjór. Hann er dýrinu mlkið þarfaþing. Með þessari sannnefndu löngutöng heggur dýrið sig í gegn um trjá- börk, likt og spæfur gera með nef- inu. Það heyrir, ef skordýr er und- Ir berkinum, og með fingrinum langa nær það því úr smugu sinni. Menn á Madagaskar .bera ótta- blandna virðingu fyrir fingurdýr- inu. Þeir hafa hugboð um djöfulinn, og þegar fingurdýrið lætur til sín heyra í náttmyrkrinu, ætla þeir hann kominn á kreik. rtMINN — SUNNUDAGSBLAÐ 939

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.