Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Page 6
lingsson, Benedikt Gröndal og
Jónas Hallgrímsson. Og eitt sinn
var gefið út feort af Daða Níels-
syni fróða, sem efeki lærði að lesa
fyrr en hann var orðinn tvítugur,
en varð samt þjóðkunnur fræði-
maður.
Eitt af skemmtilegri manna
myndakortum er af þvi, þegar aí
þingismenn koma frá guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni á leið til þing-
hússins, með Hannes Hafstein í
broddi fylkingar. Gengur hann
þar við hliðina á séra Árna frá
Skútustöðum. Það er næstum átak
anlegt að sjá lotninguna í svip
þeirra, sem þarna horfa á glæsi-
mennið, Hannes Hafstein. Hann er
í einkennisbúningi og með bátlaga
einkennishúfu á höfði. Þetta var
árið 1905.
Fyrir um það bil tuttugu árum
komu út tólf kort af einkennileg-
um mönnum. Raunar voru sumir
þessara manna ekkert einkennileg-
ir, þótt þeir veldust í þennan flokk.
Af sumum þeirra er svo mikil
saga, að næstum heilar bækur hafa
verið skrifaðar um þá. Má þar til
dæmis nefna óla pramma og Sæ-
finn með sextán skó. Tvo þeirra
má telja merka menn: Jón söðla,
sem uppgötvaði Þorstein Erlings
Þjóðfrægir utanveltumenn á kortum.
Nítjánda öldin: Sæfinnur á sextán skóm.
Tuttugasta öldln: Oddur sterki af Skaganum
ingum yfir öðrum doðranti engu
minni. Hvað skyldi þá vera með
áhugann inni í slíkri stofnun, þeg-
ar sumir gefa sér ekki einu sinni
tíma til að fara inn með skræð-
umar? Það eru bæði lífsgleði og
góð fyrirheit i þessari snjöllu
mynd.
Þá mætti minnast á hinar vin-
sælu og ágætu leikkonur, þær
Stefaníu Guðmundsdóttur og Guð-
rúnu Indriðadóttur. Þessar gömlu
leiklistarstjörnur eru báðar til á
kortum. Myndir af ýmsum leikur-
um hafa verið gefnar út á korti,
en ekki í seinni tíð.
Það er töluvert til af kortum
af merkum mönnum, til dæmis
skáldum okkar, en allar slíkar út-
gáfur hafa strjálazt mjög á seinni
tímum, því miður. Af gömlu skáld
unum má til dæmis nefna Stein-
grím Thorsteinsson, Matthías Joch
umsson, Pál Ólafsson, Þorstein Er-
942
T í M 1 N N
SUNNUDAGSBLAÐ