Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Síða 2
★★ Síðustu vikur hafa orðið talsverðar umræður um launa- mat og kaup og kjör ríkisstarfs manna. Hafa þar ýmsir talið sig vanhaldna, einkanlega í samanburði við aðra. Meðal ann ars hafa orðið hnippingar um það, hversu hnika skuli kaupi kennara eftir lærdómi þeirra og prófum og tilkostnaði við nám til undirbúnings starf- inu. Nú ætla ég mér ekki þá dul að blanda mér í þær um- ræður, lærdómslaus maður, er þó ber fyllstu virðingu fyrir þeim, sem hann eiga í pússi sínu. Aftur á móti virðist ekki úr vegi að minnast þess, að kennarastétt er til vegna nem- endanna, sem hún á að manna og fræða, svo að þeir vaxi að þekkingu, skilningi og vilja til gagnlegrar þátttöku í þjóðlíf- inu, hver á sínu sviði. Kennara- stéttinni ber þeim mun meiri þökk og virðing sem hún leys- ir þetta hlutverk betur af hendi. ★★ Allir eru trúlega sammála um, að hvort tveggja sé mikils virði: að vekja og glæða og miðla þekkingu og kunnáttu. Mestir skólamenn hafa þeir að h'kindum jafnan verið taldir, er megnuðu að hrífa nemendur sína, opna augu þeirra fyrir nýj um verðmætum, tendra áhuga, sem náði út yfir námsefnið, hefja þá á hærra þroskastig. Þeir kennarar, sem slíks eru umkomnir, geta bókstaflega gefið lífi margra nýtt inntak. Þeim ber mikill heiður. En aldrei verður það með tölum táknað, hverju þeir koma til vegar, þótt að því megi oft leiða margvisleg rök, er fram líða stundir. Þekking sú, sem nemendum heyjast í skólum, er aftur á móti þess eðlis, að hana má mæla og meta með aðferð- um, sem gefa að minnsta kosti nokkuð örugga vísbendingu, þótt ekki séu þær ætíð alls kostar óyggjandi. Til þess er prófum beitt í svo til öllum skólum og einkunnir ákvarðað- ar. Það er mælikvarðinn, sem lagður er á nemenduma. Hér er það, sem þeir verða að standa eða falla, að minnsta kosti hman veggja skólanna. Sýni mælikvarðinn, að nemand inn hafi tileinkað sér þá lág- marksþekkingu, sem heimtuð er, eða þaðan af meira, getur hann gengið sína braut. Ella lokast honum leið. ★★ Hér er það, sem mig lang ar til að staldra ögn við. Mér skilst, og að því þykist ég geta leitt gild rök, að einkunnir nem enda séu ekki einungis vitnis burður um getu þeirra sjálfra og ástundun, heldur segi þær líka sína sögu um skólann og getu og vilja kennaranna, sem þar starfa. Það er sem sagt ekki undir nemendunum einum kom ið, hvernig þeim famast í námi, heldur kemur þar einnig til greina andinn í skólanum og hæfileiki kennaranna til þess að kenna: Það lag, sem þeir hafa á því að laða og brýna nemendurna til þess að taka á við verkefnin og vekja áhuga þeirra á þeim, hæfileiki þeirra til þess að fjalla skýrt og skil- merkilega um námsefnið og sú samvizkusemi, sem knýr þá til þess að leggja þá rækt, sem ávöxt ber, við nemendur sína. Lélegar einkunnir segja ekki ævinlega þá sögu eina, að nem endumir séu trassar eða skuss ar — ef til vill eru þeir það alls ekki þrátt fyrir lága einkunn — heldur kann kennarinn að vera maður, sem lent hefur á kenn- arastól af misgáningu. Þetta er talsvert veigamikið mál, þegar þess er gætt, hve miklu af Ufi sínu fjöldi ungra íslend- inga ver innan veggja skól- anna. ★★ Nú er það mikil kenning, sem oft er ítrekuð, að hagnaðar vonin sé 1 senn keyri og töfra sj)roti í mannlegu samfélagi. Eg skal játa, að mér finnst það enginn fagnaðarboðskapur. Á hinn bóginn felst í því réttlæti að vissu marki, að hver beri það úr býtum, er hann vinnur til. og þó sérstaklega, að hver og einn njóti þess, ef hann leggur sig allan fram. Nú ætla ég, að auðveldlega megi kanna, hvað reynslan segir vera eigi meðaleinkunn þeirra nemenda, sem fengið hafa til dæmis sjö í stærðfræði eða dönsku á landsprófi, þegar þeir næsta ár ganga til prófs í neðsta bekk menntaskóla. Á sama hátt mætti kanna, hvaða einkunna er að vænta stig af stigi í skóla kerfinu, ef allt er með felldu. En þá gæti það líka verið hugs anlegt fyrirkomulag, að þeir kennarar, sem tekst kennslan betur en í meðallagi. fengju ábót á laun sín í hlutfalli við árangurinn. Þá kæmj af sjálfu sér, að langskólamennirnir f kennarastéttinni yrðu betur launaðir, svo fremi sem há- skólapróf gera þá hæfari kenn- ara, eins og telja verður senni legt. En þjóðhagslega skipti væntanlega mestu, að kennarar, sem á annað borð láta sig ein- hverju varða kaup sitt, reyndu af fremsta megni að eiga við nemendur sína það samstarf, er beztan árangur gefur. Ég efa að vísu ekki, að margir, mjög margir, gera það af samvizku semi sinni og trúmennsku einni saman, án þess að til launanna sé horft. En hér og þar kunna þeir að leynast, sem þarfnast einhvers þess meðals, sem ork- ar eggjandi á alúðina. J. H. 5* T í M I N N — SUNMJÐAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.