Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Page 4
íslenzklr hestar og knapar á hestamannamóti. Ljósmynd: Si gurffur G. Norðdahl.).
Norömaöur kennir Jót-
um að meta kosti ís-
lenzka hestakynsins
Fyrir fimm eða sex árum
fluttist unigur Norðmaður bú-
ferlum til Danmerkur. Hann
hér Frits Haug. Að nokkrum
misserum liðnum tók hann á
leigu tamningastöð í Tebbeve-
strup við Randers, og litlu síðar
stofnaði hann þar fyrirtæki,
sem nefnist Jydsk Islandsheste
Center. Þar era iiú urn fimm-
tíu hestar, sem hann hefuir
'keypt hérlendis.
Hann ber mikið lof á ís-
lenzka hesta og staðhæfir, að
engir hestar sóu jafnskemmti-
legir. Kaupi menn hesta handa
börnum sínum, sé siiúfsagt að
kaupa islenzkan smihest, en þá
líði ekki heldur á löngu, áður
en faðirinn og móðirin komist
að raun um, að þau geta einnig
haft ánægju af því að bregða
sér á bak, svo fremi sem þau
kunna með hest að fara.
Frits Haug hefur leita/.t við
að sannfæra Jóta um þetta. Og
honum hefuir orðið talsvert
ágengt. Margir Jótar eiga skipti
við hann. Sumir fá hesta leigða,
aðrir festa kaup á hestum.
Frits Haug er samt illa við,
ef hann er kallaður hrossa-
kaupmaður. Það er starfsheiti,
sem ekki lætur vel í eyrum.
Syndir gamalla skúrka hafa
varpað á það skugga. Frits
Haug selur ekki heldur hesta
sína hverjum sem hafa vill-
Hann vill vita það með nokk-
urri vissu, að sá, sem kaupir
hjá honum hest, fari þolanlega
með hann.
Svo mikla trú hefur Frits
Hauig á vitsmunum íslenzkra
hesta, að hann telur líklegt, að
þeir geti orðið blindu fólki
gagnlegir og ánægjulegir félag-
ar. Hann er nú að temja fyrsta
hestinn, sem hann ætlar blind-
um bóndasyni. Mér tekist það
áreiðanlega, segir hann, og
þessi tilraun mín verður von-
andi upphaf þess, að blint
fólk fær hesta. sem það getur
treyst.
52
TÍMINN
SUNNUDAGSBLAÐ