Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Page 6
hér á landl eru mjög gagnlegar, og að því er ég veit hefur hann einn hér í Árnessýslu tekið og reynt að ala upp hreindýrskálfa. Þó að fyrsta tilraun hans um þetla heppnaðist honum ekki, sýnir þó sjálf tilraunin óþreytanlegan áhuga hans að vinna gagn, þar sem tilraun hans mundi, ef vel hefði tekizt, hafa oröið upphaf gagnlegs atvinnuvegar á íslandi, sem með tímanum hetði ef tii v'll veitt þúsundum manna framfæri. Að öðru leyti er hann þekktur sem vandaður og valinkunnur dánumaður, og vil ég því mjög mæla með umsókn ha.is til öflugs stuðnings yðar hávelbormheita. Skrifstofa Árnessýsiu 12. ágúst 1823 Undirgefnast Th. Sveinbjörnsson. Yðar hávelborinheit herra stipt- amtmaður V. Hoppe. Þessi umsókn Ófeigs bar þann árangur. að honum voru veittir fimmtán ríkisbankadalir sem verð laun fyrir smíðar sínar og aðrar framkvæmdir. Hefur sýslumaður tilkynnt Ófeigi þetta með bréfi þann 14. ágúst 1826 svohljóðandi: „Með bréfi 15. júní í ár hefur Suðuramtið tilkynnt mér til auglýs ingar fyrir yður, að rentukammer- ið hafi eftir bréfi sínu af 13. s.m. í ár gefið yður 15 rbd. í seðlum, handverki yðar til frama, hverra peninga þér hafið að vænta hjá landfógetanum. — Th. Svein- björnsson.“ í sambandi við þessa verðlauna- veitingu má geta þess, að Ófeigur hefur síðan verið sæmdur silfur- peningi, medalíu, að líkindum frá Landbústjórnarfélaginu danska, með áletruninni „ærulaun iðni og hygginda.“ Þegar dánarbú Ófeigs var skrifað upp, er medalían virt til peninga, sem síðar verður að vikið . Árið 1834 mun Ófeigur hata látið af búskap í Heiðarbæ. Tóku þá jörðina tveir bændur, þeir Vig- fús, sonur hans, kvæntur Önnu Gísladóttur frá Villingavatni, og mágur hans, Jón Kristjánsson (síð- ar bóndi í Skógarkoti),_ er kvænt- ist Guðrúnu, dóttur Ófe'^s. Þeir mágarnir bjuggu saman f Heiðar bæ um nokkur ár. Þegai Ófeigur lét af búskap gerðist hann ásamt konu sinni hútiKaður í Heiðarbæ um tveggja ára skeið og stundaði ««. þá smíðarnar eingöngu. Við mann- tal í Heiðarbæ 1835 eru heimilin talin þrjú og þetta fólk á þeim. 1. Jón Kristjánsson, 24 ára, kvænt- ur húsbóndi. Guðrún Ófeigsdóttir, 27 ára kona hans. Hildur Ófeigsdóttir, 37 ára ógift vinnukona. Sigríður Grímsdóttir, 10 ára, tökubarn. 2. Vigfús Ófeigsson, 32 ára, kvæntur húsbóndi. Anna Gísladóttir, 28 ára. kona hans. Jón Jónsson, 19 ára, vinnumað- ur. 3. Tómthús: Ófeigur Jónsson, 66 ára, kvænt- ur, lifir af smíðum. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir. 62 ára, kona hans. Þorkell Þórðarson, 8 ára, töku- barn. Þann 29. nóvember 1835 andað- ist Guðrún Ófeigsdóttir, kona Jóns Kristjánssonar „af barnsförum“, 27 ára gömui, og lézt barnið með henni. Höfðu þau Jón og Guðrún þá aðeins verið hálft annað ár í hjónabandi. Ætla má, að dóttur missir með þessum hætti hefi ver- ið þeim gömlu hjónunum, Ófeigi og Þorbjörgu, nokkurt áfall. Ár- ið áður en þetta gerðist hafði Ingi- björg dóttir þeirra gifzt Vigfúsi Magnússyni í Þormóðsdal, og bjuggu þau nú að Suður-Reykjum í Mosfellssveit. Það varð því að ráði, að þau Ófeigur og Þorbjörg tóku sig upp frá Heiðarbæ sumar- ið 1836 og fluttust til dóttur sinn- ar og tengdasonar að Suður-Reykj- um. Um svipað leyti og Ófeigur lét af búskap hefur hann skipt hluta eigna sinna og afhent börnum sín um. Má af þeirri skiptaskýrslu sjá, að hann hefur verið maður vel efnum búinn, og einnig það, að hann hefur viljað hafa hreina reikninga við böm sin og ganga frá þeim sjálfur áður en hann var allur. Verður nú þessi skipta- skýrsla birt hér að nokkru leyti og niðurlagið af bréfi Ófeigs um fjárskiptin, er lögð voru fram eft- ir hann Iátinn: „Lóðseðill Vernharðs Ófeigs- sonar, vöruverð 248 rbd. 28 skild. Lóðseðill Vigfúsar Ófeigssonar 249 rbd. 28 skild. Iéðseðill Ingi bjargar Ófeigsdóttur 128 rbd. Til eldri Guðrúnar Ófeigsdóttur 128 rbd. Til Hildar Ófeigsdóttur 128 rbd. Til yngri Guðrúnar Ófeigs- dóttur 139 rbd. 84 skild. Hljóp þessi fjárhæð til samans eða eins og Ófeigur sjálfur orðar það. „Til ailra yfir höfuS“ 1021 rbd. 34 skild. — „Allt hér að framan skrtíað hvört eitt barnanna af mér tekið að öðru óreiknuðu, bæði fatnaði, reiðtygjum öllum og fénaði, er þau hjá mér uppólust eftir hvörs þeirra heppni og þau sem ógift við mig skildi, afhenti ég þeim 10 rbd. vöru verðs óreiknað eður óskrifað á móti veizlukosti þeirra, sem gtít fóru frá mér. utan Vernharði. Og þar við foreldrar þeirra héldum ekki rítir fjórða part af eignm okkar á móti því, er bövnin okkar meðtóku, þurfa þau þess vegna ekki að vona til arfs eftir okkur fyrr en bæði erum við skilin. En falli svo, 'að ég deyi á undan henni, hef ég beðið báða hrepp- stjórana, signor Magnús Bjarna- son, frænda minn á Kollafirði, og signor J.B .Stephensen á Korp- úlfsstöðum, að taka hana að sér til umsjónar og ráðstöfunar eftir því, sem þeim kemur saman um og sýnist haganlegast og þénugast hvað ég bið guð þeim bezt að launa, ef til þess kemur. Ófeigur Jónsson“. Ófeigur dvaldist ásamt konu sinni á Suður-Reykjum um sjö ár eða til dauðadags. Hann virðist hafa haldið heilsu og vinnuþreki nofckru fram til þess síðasta og varið öllum stundum sívinnandi að smíðum. Ilann smíðaði enn sem fyrr mikið af rokkum, og voru fjórir fullsmíðaðir eftir hann látinn. Hann stundaði sem fyrr jöfnum höndum tré- og máim- smíðar, og söðlasmíði fókkst hann við fram á síðasta ár. Til er reikn ingur eftir Ófeig yfir útistandandi smíðalaun í ágúst mánuði 1841. Gefur hann góða hugmynd um verk hans, vinnubrögð og verðlag á þeim. Verður hann því birtur hór til fróðleiks: Á Jörfa á Kjalarnesi rokkverð 3 rbd. 48 skild. Hjá Sveini á Helgafelli rokk- verð 3 rbd. 48 skild. Hjá Ólafi í Reykjakoti spesiu- barnstokk 2 rbd. 32 skild. Hjá Jóni Guðmundssyni Reykj- um af rokkverði og treyju 3 rbd. 48 skild. Iljá Narfa á Mosfelli af rokk- verði 10 fiska. 1 rbd. T f 1W T N M e,iTVMimíC«:i)í i n

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.