Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Qupperneq 13

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Qupperneq 13
fara flj6tt yfir sögu: Ég kvæntist Konan mín hafði þá alveg nýlega lokið námi í læknisfræði, en auk hinnar almenmu menntunar sinnar í faginu. hafði hún sérstakan áhuga á afbrigðilega gefnu fóTki. Þar sem við nú vissum það bæðl, að áhugamál okkar féllu svo ákjós- anlega saman, á'kváðum við að drífa okkur til útlanda til þess að afla okkur meiri menntunar á þessu sviði. Við fórum til Sviss skömmu eftir að við höfðum geng- ið í hjónaband, og þar sbundaði ég nám í meðferð afbrigðilegra barna. — Varstu lengi þar? — Það urðu þrjú ár, sem ég var í Sviss, en í heimleiðinni stað- næmdist ég í Danmörku og var eitt ár við nám þar. Að þessu loknu kom ég heim til íslands. Það var haustið 1955. — Hvað tók svo við, þegar heim kom? — Fyrsta janúar 1956, með öðr- um orðum örfáum mánuðum eftir heimkomuna, hóf ég störf við Kópavogshælið, sem þá hafði starf- að í rúm þrjú ár, og hér hef ég verið síðan. — Starfsemin hér hefur auðvit- að verið smá i sniðum fyrst? — Já. Kópavogshælið tók til starfa 13. desember 1952. Þann dag komu fyrstu tveir vistmenn- irnir, og þá var fyrsta deildin hér tilbúin. Nokkrum vikum síðar, eft- ir áramót þann vetur, voru pilt arnir á Kleppjárnsreykjum fluttir á Kópavogshæli, sem einungis var fyrir pilta fyrst í stað. — Hvenær fóruð þið að taka vistfólk af báðum kynjum, — Tvær fyrstu kvennadeildirn- ar tóku til starfa 16. júlí 1958. Um næstu áramót voru deildirnar orðn ar fjórar og vistmenn 72, 31 stúlka og 41 piltur. Árið eftir bættist svo ein kvennadeild við. Vorið 1962 fluttust starfsstúlkur. sem búið höfðu í eldri húsunum hér, í nýtt s-tarfsmannahús og þá var hægt að stækka hælið um eina deild. Var vistfólk þá við árslok 99 manns og vistmannadeildirnar orðnar sex. — Þetta hefur þokazt svona í áttina hjá ykkur? — Ojá. Víst hefur það alltaf sigið í áttina. Árið 1963 var haf- inn undirbúningur að byggingu nýrra hælisdeilda. Ákveðið var að byggja þrjár fimmtán manna deildir ætlaðar karlmönnum. Tvær fyrstu deildirnar voru tekn- ar í notkun 24. septvmber 196H, og voru þá vistmennirnir í lok þess árs orðnir 140, það er að segja 87 piltar og 53 stúlkur. — Hvað eru vistmennirrir margir núna? — Nú eru hér 153 vistmenn. 96 piltar og 57 stúlkur. — Á hvaða aldri er þetta fóik? — Tæpur þriðjungur vist.manna er innan við tvítugt. Og það vil ég taka fram, áður en við höldum lengra, að þetta er mun fleira vist- fólk en núverandi húsnæði er gert fyrir. Ástæðan til þess ,að við höf um tekið hingað fleira fólk en hús- rýmið raunverulega þolir, er ein- faldlega sú. hve óskaplegur skort- ur er á hælisrými fyrir svona sjúkl- inga. Og þó hefur efcki verið hægt að sinna umsóknum, sem taldar hefðu verið hrein neyðartilfelli í nágrannalöndum okkar. — Eru ekki uppi áform um að stækka hælið? — Núna eru í byggingu tvær barnadeildir, sem eiga að rúma tólf börn hvor. Þessar byggingar eru fokheldar núna, og ég vona, að þær verði langt komnar að ári liðnu. — Og hvaðau koma peningarn- ir til þessara framkvæmda? — Alltí sem byggt hefur verið hér síðan árið 1959, hefur venð gert fyrir framlög úr styrktarsjóði vangefinna, sem var, eins og kunn- ugt er, stofnaður að tilhlutan Styrktarfélags vangefinna. — Hvaðan hefur styrktarsjóður vangefinna fjármuni sína? — Vorið 1958 samþykkti al- þingi lög um aðstoð við vangefið fólk. Þá var samþykkt að leggja sérstakt gjald á öl og gosdrykki, svokallað tappagjald, og skyldi það Björn Gestsson. (Ljósmyndir: Tíminn GE) fé, sem þannig safnaðist. notað t'i þess að reisa fyrir það .stofnanir handa vangefnu fólki. Þessi sjóð- ur er í vörzlu félagsmálaráðuneyt- isins, og það ráðstafar fénu að fengnum tillögum Styrktarfélags vangefinna. Síðan sjóðurinn var stofnaður hefur gjaldið tvisvar ver ið hækkað, það var árið 1962 og 1966. Áður en farið var að veita úr sjóðnum, telst mér svo til að um það bil eitt hundrað hælisrúm hafi verið til á landinu öllu og auk þess sextán rúma deild, sem var í smíð- um hér í Kópavogi. rÍIUINN SUNNUDAGSBLAÐ 61

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.