Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Síða 14
— Hvað skyldu vera mörg hæl- isrúm á öllu landinu núna? — Mér telst svo til. að þau séu rétt um tvö hundruð og sextíu. Rétt er þó að geta þess, að bæði nú og áður eru fleiri vistaðir á þessum stofnunum en húsrýmið er ætlað fyrir. — Það er sem sagt alltaf ásetið og meira en það? — Já, mikil ósköp. Framkvæmd irnar fullnægja ekki þörfinni, enn sem komið er. íslendingar eru nú orðnir tvö hundruð þúsund, eins og öllum er kunnugt, og senni- lega er ekki of hátt áætlað, að þjóðinni fjölgi um hálft fjórða til fjögur þúsund á ári næstu árin. Sé það rétt, sem mér sýnist, að okkur vanti um það bil 140 hælis- rúm til viðbótar núna, táknar þetta það, að við þyrftum að taka í notkun fimmtán hælisrúm annað hvert ár til þess að mæta aukn- um fólksfjölda. — Það er nú þegar orðið Jjoft af samtali okkar, Björn, að hér komast færri að en þurfa, en þó mun þurfa talsverðan mannafla til þess að sinna öllum þessum sjúkl- ingum. Hversu fjölmennt starfslið hafið þið hér? — Við hðfium fjárveitingu handa sjötíu og fimm manna starfs liði, og eru þá allir meðtaldir, frá yfirlækni til gangastúlkna. Hér eru tveir læknar, ein yfirhjúkrun- arkona og önnur, sem leysir hana af. Kennarar eru hér þrír, tveir almennir kennarar, sem reyndar kenna einkurn handavinnu. og svo einn tónlistarkennari. Tónlist hef- ur miklu hlutverki að gegna á svona stað. Auk þessa fólks eru svo sérmenntaðar gæzlusystur og almennt starfslið. — Þú minntist þarna á sér- menntaðar gæzlusystur. Hvar hafa þær fengið menntun sína? — Þær hafa nú fyrst og fremst fengið hana hér. Þetta herbergi hérna til hægri er kennslustofan þeirra. Hér kenna læknarnir þeim um sjúkdóma og meðferð lyfja, og ég kenni uppeldis- og sálarfræði. — Hvað eru margir nemendur hjá ykkur núna? — Þeir eru fjórtán og kennslu- stundirnar tvær. — Eru ungar stúlkur fljótar að ná valdi á því að umgangast sjúk- linga af þessu tagi? — Já, það l'emur mjög fljótt. Auðvitað eru öll störf þannig, að Kennari aS sýna nemendum, hvernlg belta á söginni. það tekur fólk ofurlítinn tíma að komast inn í þau. Þannig er það á öllum vinniustöðium og líka hér. Það tekur til dæmLs nokkurn tíma hérna að læra að þekkja alla sjúk- lingana með nöfnum. En ef þú átt við það, hvort nemarnir okkar þjá- ist af hræðslu eða óhugnaði, þá get ég fullvissað þig um, að slíkt er fjarri öllu lagi. Jafnvel þótt slíkt geri eitthvað ofurlítið vart við sig allra fyrst, þá fer það undir eins af. Og þegar fólk sér, hve þörfin fyrir það er brýn, þá verður áhug- inn á verkinu öllu öðru yfir- sterkari. — Hvernig er með heimsóknir til þessa fólks hér? — Heimsóknir eru leyfðar. og þær eru meira að segja æslúlegar. — Á virkum dögum eru engir fast- ir heimsóknartímar, en á helgum dögum koma svo margir, að ekki verður hjá því komizt að setja tím anum einhverjar skorður. Þá hefst heimsóknartími um hádegi og stendur til klukkan fimm síðdegis, en endist þó oft nokkru lengur. — Ég sé hér nokkurs konar skólatöflu, og eru þar á lauslega límdir renningar — önnur ræman svört, en hin rauð. Þær mynda í sameiningu mannsnafnið Halli. Er- uð þið að kenna sjúklingunum lest- ur? — Það er nú ekki hægt að kalla það því nafni. Hingað er fólk ekki sent, nema það sé veikara en svo, að hugsanlegt sé að kenna því að lesa. Þó eru sumir svo á vegi stadd ir, að þeir geta lært að þekkja nafnið sitt, ef þeir sjá það á prenti, þótt þeir séu ólæsir með öilu. Aft- ur á móti geta margir lært ýmis- lega handavinnu. —■ Já, þarna stendur vefstóll. Er hann notaður af 'sjúklingum? — Já. Það sem í stólnum er núna, er unnið af vistfólki hér, og teppið, þarna uppi á veggnum, það er líka unnið af sjúMingum hérna. Það er líka talsvert gert að því að búa til burstang kústahausa. — Seljið þið ef til vill slíkar vörur hé.r? —■ Nei, ekki er það nú. Að mestu leyti fara þessir hlutir til notkunar hér á hælinu, en ef eitt hvað verður afgangs, tekur skrif- stofa ríkisspítalanna það af okkur og kemur því í verð. — Það er þanirig ekki hægt að segja, að fólk sé iðjulaust hér? — Nei, það er nú öðru nær. Margir sjúklingarnir eru hinir 62 T í M I N N — SUNNUÐAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.