Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Side 16
Gleymið ekki að hafa samband við Þjóð- minjasafnið eða Sunnudagsblaðið. 'ií'i .1 HaiwMiafci 'W'y Sntðið á búningnum seg ir Hl um útlendan upp- runa sinn, enda er myndin tekin i Kaupmannahöfn. Eigl að síður mun konan íslenzk. 1 11 Þessi piltur er aftur á * ■k^ múti Austfirðingur eða i tengslum við Austurland. Björn Ólafsson á Vopnafirði hefur tekið myndina. drenginn var farið til Parísar og Itard, lækni við daufdumbraskóla í París, falið uppeldi hans. Itard aðhylltist kenningar Rousseaus og hélt þvi fram, að allar hugmyndir mynduðust við þá reynslu. sem aflað væri með skilningarvitunum. Þar sem drengurinn var mjög sljór, byrjaði Itard að æfa skiin- ingarvit hans á skipulegan hátt. Á fimm árum tókst honum að kenna drengnum svo mikið, að hann gat gengið um á meðal fólks án þess að vekja á sér sérstaka athygli. Honum tókst þó ekki að kenna honum meira en honum var áskap- að að geta numið. Hann varð aldrei betur talandi en barn á þriðja ári, og greindin sambærileg við það. Itard varð víst aldrei Ijóst, að drengurinn var fáviti, en engu að síður var þetta • ein af fyrstu til- raununum til uppeldis vangefins einstaklings, sem fræðileg lýsing er til á. Lærisveinn Itards, Seguin, sem starfaði í París, hélt þeim hug- myndum fram, að andlegur van- þroski væri læknanlegur með því að þjálfa skilningarvitin. Kenning ar hans reyndust að vísu ekki rétt- ar. en sá árangur, sem hann náði með uppeldi og kennslu, varð til þess, að farið var að gefa þessum málefnum verulegan gaum. — Hvar og hvenær var fyrsta fávitahælið stofnað? — Fyrsta hælið fyrir vangefið fólk var stofnað í Austurríki árið 1828 af kennara, sem hét Guggen- mos. Það var hæli handa fólki, sem haldið var sérstökum sjúkdómi, sem kallaður er kretinismus, og var nokkuð algengur í sumum hér- uðum í Ölpunum, en þessum sjúk- dómi fylgir andlegur vanþroski. Árið 1840 stofnaði svissneski lækn irinn Guggenbiihl hæli á Abend- burg í Bernarkantónu í Sviss, og upp úr því fór að koma skriður á þessi mál í Evrópu. — Voru Norðurlandabúar held- ur aftarlega á merinni í þessu efni? — Nei, hreint ekki. Danir voru einmitt með þeim fyrstu. Þar var stofnuninni Gamle Bakkehus kom- ið á fót árið 1854. Aftur á móti vorum við, íslendingar, einni öld á eftir nágrönnum okkar. — Þar sem við erum nú aftur komnir með hugann heim til ís- lands, langar mig að víkja betur að starfi þínu hér á hælinu. Mér dettur ekki í hug að efast um, að þú sért hér réttur maður á rétt- um stað, en er nú ekki samt sitt af hverju erfitt í þínum verka- hring hérna? Framhald á 70. síðu. Piitur við vefnað. 64 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.