Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 6
'ur frá Grund, systur Vigfúsar á Gullberastööum. Hún er ekkja Jónatans frá Hæli. Sjálfur þekki |ég hana lítið, en allir, sem þekkja hana, bera henni gott orð“. 6. Blindur á báðum augum Kjartan Helgason frá Birt- ingaholti var prestur í Hvammi í Dölum, frjálslyndur kenni- maður, áhugamaður um flest, sem til mannbóta gat horft, og mikill ættjarðarvinur. Á þess- um árum óðu uppi hraklegar lýsingar á íslandi í Vestur- heimsblöðum, líklega eins kon ar sjálfsvörn manna, sem und- ir niðri voru haldnir sektar- kennd vegna brottflutnings síns. fslenzku prestarnir vestra voru ekki barnanna beztir í þá daga, löstuðu flest hérlendis og næsta ómildir í dómum um guðskristni á ætt- arlandinu. Eitt haustið var séra Kjartan samnátta séra Friðriki Bergmann. Hann skrifaði Brynjólfi 6. nóvember 1899: „f Ólafsdal var ég samnátta séra Friðriki Bergmann, en lítið tóm var til að spjalla við hann. En það lítið það var, þá féll mér það ekk- ert vel í geð. Hann gerði lítið úr öllu, sem hann hafði séð hér — eða réttara sagt: Hann hafði ekki séð neitt gott á allri ferð sinni um endilangt landið — engar framfar- ir í neina átt: Húsakynnin væru jafnbágborin, túnin jafnþýfð, veg- irnir jafnófærir eins og þeir voru fyrir fimmtán árum, þegar hann fór. Enga kirkju sá hann, sem hægt væri að messa í, og svo fram- vegis. Að ferðast heilt sumar á íslandi svona starblindur á báðum aug- um fyrir öllu góðu — það finnst mér bera vott um eitthvað annað en brennandi kærleika. Menn álíta hér almennt, eins og Þjóðólfsgrein arhöfundurinn, að séra Friðrik sé bara agent Kanadastjórnar, og ég á fullt fangi með verja hann fyr- ir þeim óhróðri, enda hefði mér sjálfsagt gengið það betur, ef ég hefði ekki heyrt hann sjálfan tala“. 7. Hitinn og fjörið Upp úr aldamótunum kvað hér allmikið að trúboði manna, sem annað tveggja þótti prest- arnir orðnir mildir um of í kenningu sinni eða voru í þjónustu einhverra sértrúar- safnaða. Séra Kjartan fór ekki varhluta af þessu, og gekk svo Iangt, að fólk í sóknum hans, er áðhylltist Hjálpræðisher- inn, reisti sérstakt samkomu- hús. 12. maí 1901 skrifaði séra Kjartan: „Sáluhjálparherinn eflist á Fellsströndinni, enda hefur nú Boj sen sjálfur setið þar um tíma í vor til að styrkja þá í trúnni. Ég tók þeirri hreyfingu ekkert illa fyrst, en alltaf fellur mér ver og ver við skoðanir og aðfarir hers- ins hér, eftir því sem ég kynnist þeim betur, svo það er nú orðið nokkuð hart á togunum milli okk- ar. Ég vona, að þessi hermennska PRESTURINN f HVAMMI, séra Kjartan Helgason, hafSi fram- farlr og menningu aS stefnumiSI. Hann hafSi hugann víSa og var bæSi langsýnn og ódeigur, þótt aS stór- ræSum væri stefnt. verði til góðs á endanum — og er viss um það. En langt finnst mér það eiga í land ennþá. Vitið og mannúðina finnst mér vanta svo tilfinnanlega, en ekki vantar hitann og fjörið. Verstur þykir mér gorgeirinn hjá þessu fólki — og dómgirnin. „Sumir boða Krist af þrætu- girni“, sem Páll postuli. „En hvað um það? Kristur boðast samt á all- ar lundir, hvort sem það heldur er af yfirdrepskap eða með hrein- skilni, og af því gleðst ég“. Þessi orð þykir mér vænt um, og ég reyni að taka þau til fyrirmyndar í viðureigninni við herinn“. 8. Innrás á Fellsströnd Þessi alda reis hátt og hneig ekki fyrr en eftir mörg ár. Þrautsegja sérstrúarfólksins þar vestra var mikil og trú þess vafalaust einlæg. 15. apríl 1904 skrifaði séra Kjartan: „í næstu viku á ég von á, að Hjálpræðisherinn úr Reykjavík flói vestur yfir Fellsströnd til að styrkja sóknarfólk sitt í trúnni. Ég býst við að mæta þeim við kirkjuna fyrsta sunnudag í sumri. Og nýlega hefur Sigurbjörn Á. Gíslason boðað mér komu sína (í júní). Þetta fólk ætlar að fara að leggja sig eftir okkur Dalabúum. Það vantar ekki annað en að Öst- lund komi líka. Ekki hef ég trú á því, að þess- ir menn bæti fólkið, en ég hlakka samt til að kynnast Sigurbirni“. 9. „Falleg skepna" Þegar grasafræði Stefáns Stefánssonar kom út, opnaðist mörgum nýr heimur. Með henni fékk almenningur þau gögn í hendur, að það gat sjálft lært að þekkja jurtir, og þess voru dæmi, að áhugasamir prestar færu út fyrir garð með eitthvað af söfnuðinum eftir messu til þess að skoða plönt- ur. Séra Kjartan liafði yndi af grasafræði, og clztu dælur hans, Unnur og Elín, voru enn kornungar, er þær fóru að koma sér upp jurtasafni með aðstoð föður síns. Sjálfur hélt hann uppi spurnum um fágætar jurtir á ferðum sín- um. 8. október 1902 skrifaði hann: „Hjartanlega þakka ég þér fyrir bréf með síðasta pósti og þann glókollótta, sem innan í var. Það er falleg skepna og mesta prýði í safninu, sem krakkarnir eru nú að byrja að koma sér upp. Hann var alveg óskemmdur og prýðisvel pressaður. Safnið okkar er lítið ennþá, því safnendurnir eru frem- ur klaufalegir enn sem komið er. Ég man ekki, hvort ég minntist á það við þig í sumar, að ég frétti þá á suðurleiðinni til jurtar á Klungurbrekku á Skógarströnd, sem kölluð væri þyrnirós. Nú hef ég fengið grein af jurtinni og sé, að það er rosa pimpinellifolia. Líka hef ég frétt til hennar á Vals- hamri í Geiradal, en veit ekki um sönnur á því. Hún er máski al- gengari en menn halda. Skyldi ekki bæjarnafnið Klung- 414 T f M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.