Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 20
Spámenn, sem aldreí þreytast á aí boða fólki heimsendi m ur fundið upp hárgreiðslu, sem er reglulega smart. Á ég að leggja á borðið. Hva-að er nú? Míranda hafði gleymt sér og starði orðlaus á Karólu. — Ekkert, sagði hún dreym- andi. — Ég ætla að fara að finna Pollý. Poiiý var í baðherberginu. — Hvað finnst þér um hárið á mér, mamma? — Það fer ágætlega, sagði Mír- anda. — Það er alveg hræðilegt í hnakkanum, sagði Pollý. — Alls ekki, þetta er ágætt hjá þér. Pollý horfði á hana áhyggjufull. — Þú segir þetta bara, þú mundir segja það, hvernig sem hárið á mér væri. — Nei. al!; ekki. Það var komin áhyggjuhrukka á enni Míröndu. — Mér þætti fróðlegt að vita í hverju ég get verið í samkvæm- inu. — Ó, þú átt við. samkvæmið með drengjunum. — Hvern fjandann ætti ég ann- ars að meina? — Hva-? sagði Míranda. — Hvað sagðirðu? Henni fannst sem hún svífa í lausu lofti. Hún lokaði augunum og haliaði sér upp að veggnum. — Þú hiustar ekki, sagði Pollý. — Það hlustar enginn á mig. I-Iún henti hárburstanum á borðið og strunsaði fram h.já Míröndu að dyrunum. — Pollý, sagði Míranda, — bíddu, Poliv. líttu á mig. Pollý sneri sér stirðlega við, svipur hennai- gaf til k.vnna, að á þoiinmæði hennar hefði verið reynt til hins ýtrasta, og auk þess hefði hún verið særð og henni misboðið á hinn freklegasta hátt. — Nú, hvað viltu mér? spurði hún. Míranda andaði djúpt, hún horfði í augu Pollýar og það var sem hún væri að horfast í augu við bláókunnuea manneskju. — Ekkert. vina. svaraði hún og dró að sér framrétta hendina. Ég verð að leggja mig út af stundarkorn, hugsaði hún. ég verð að gera það. Pollý er aðeins þrettán ára —. Hún lét fallast þungt ofan á rúmið. Ó bara að hún gæti sofið — sofið næstu árin. Þórunn Elfa íslenzkaði. Það er ekki nein nýlunda, að menn búizt við heimsendi þá og þegar. Eins lengi og sögur herma hafa ætíð komið fram spámenn, sem boðuðu það, að heimurinn myndi farast á einhverju tíma- skeiði, er þeir nefndu, og þeir> sem vissastir þóttust í sinni sök hafa jafnvel nefnt dag og stundu. í Bandaríkjunum er trúfélag, sem nefnist Hið sanna ljós Krists kirkju. Það á sér einkum fylgis- menn í Karólínufylkjunum hinu nyrðra og syðra. Leiðtogar þess höfðu sagt fyrir, að heimsendir myndi verða árið 1970 og dóms- dagur upp renna. Varla verður á móti því mælt, að þessi spá hefur brugðizt, því að enn virðist allt með kyrrum kjör- um, þótt komið sé fram á annan ársfjórðung 1971. Eins og gefur að skilja hefur sú staðreynd vald- ið ekki litlu fjaðrafoki í hinum karólínska ljóssöfnuði, sem allur var sannfærður um lokadægur veraldarinnar. Eftir langar og strangar umræður hafa safnaðar- leiðtogarnir komizt að þeirri nið- urstöðu, að sjálfur upphafsmaður trúarhreyfingarinnar. Cunning- ham Boyle að nafni. eigi sök á skekkju trúarlærdómanna. Cunn- ingham Boyle var uppi á nítjándu öld og spáði raunar heimsendi og dómsdegi árið 1870. Það brást eins og kunnugt er, en var þá svo skýrt, að hann hefði villzt á öldum. Það er eitt af því. sem veldur fólki í Ijóssöfnuðinum vandræð- um. að margir sögðu upp vinnu sinni í fyrra, svo að þeir gætu helffað sig trúariðkunum og bæna- gerð og búið sig á verðugan hátf undir það, sem koma átti. Nú er allmikið um atvinnuleysi í Banda- ríkjunum, og fer vaxandi, og þessu trúrækna fólki hefur gengið illa að fá vinnu á ný. Atburðir af þessu tagi gerast oftar en menn munu ætla. Nálega hvert einasta ár rís einhvers stað- ar upp spámaður, sem boðar dóms dag og endalykt veraldar, og það er eins og spámönnunum gangi illa að temja sér meiri varfærni, liversu oft sem spádómar slíkra manna bregðast. Ekki eru nema þrjú ár síðan hin dularfulla Orthon-regla spáði dómsdegi. Áhangendur hennar í Kaupmannahöfn leituðu athvarfs í loftvarnarbyrgjum utan við borg- ina um jólin 1967. Þegar þeir skriðu loks upp úr byrgjunum eft- ir jólin, kom það heldur betur flatt upp á þá, að jörðin valt um ás sinn sem áður og hafði hreint ekki orðið fyrir kjarnorkuárás þeirri, utan út geimnuin, er þeir töldu vofa yfir. Það var fimmtíu manns, sem hírzt hafði í byrgjunum alllangan tíma. Hafði fólkið með sér firnin öll af niðursoðnum matvælum og gerilsneyddri mjólk, og þykkar blýplötur hafði það keypt til þess að þekja með byrgin og umhverfi þeirra. Þetta blý átti sem sé að koma í veg fyrir. að geislun næði niður í byrgin. En þessi blýkaup, sem ekki voru smálítil, urðu því einmitt til happs, því að blýverð steig til muna meðan það beið liinnar leyndardómsfullu kjarn- orkuárásar fjandsamlegra ábú- enda annarra hnatta. Fyrir tíu árum voru margir ind- verskir stjörnuspekingar sann- færðir um, að jörðin myndi um- turnast hinn 4. febrúar 1962. Þetta höfðu stjörnuspádómar fært þeim heim sannin um. Þeir töldu, að meginklasi Himinlægjufjalla myndi sökkva niður í undirdjúpin og meira en þriðjungur jarðarbúa farast í þeim hamförum, er þá yrðu — jarðskjálftum og fárviðr- 428 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.