Tíminn Sunnudagsblað - 06.06.1971, Síða 11
átti. ÞaS var dýrt að taka tré, sem
talið var eign kirkjunnar á þeitn
dögum. Fyrrnefnt bréf er að hand-
arlagi og rithætti norskt eða
danskt og að málæði dönskuskotið
og talið geta verið eftir einhvern
sveina biskups, og er þá enginn
líklegri en Pétur Gamur ritari
hans. Seinna bréfið er gert að Hól-
um 1. október 1393. Biskup stað-
festir bréf Orms biskups frá 7.
október 1346, þar sem hann fær
Þingeyraklaustri jarðirnar Hjalta-
bakka og Kleifar til eignar. í hvoru
tveggja bréfinu er Pétur kallaður
með guðs og postolligs sætis náð
biskup á Hólum.
í byrjun árs 1394, 12. janúar,
samþykkir Pétur biskup á Hólum
próventusamning frú Ingibjargar
abbadísar á Reynistað og Loðins
Skeggjasonar. Hólabiskup var
ábóti klaustursins á Reynistað.
Atburðaríkt var fyrrnefnt ár á
starfsferli Péturs biskups. Meðal
annarra embættisverka var að taka
á móti Vilkin biskupi, sem kom
til stóls síns og söng fyrstu messu
sína in exultacione sancte crusis
heima í Skálholti. „Var þar veizla
ger svo ágæt, að engir þvílíka
veizlu séð hafa fyrr á íslandi fyr-
ir mannfjölda sakir og allra handa
kostnaðar. Þar var herra Pétur
Hólabiskup og allt hið vildasta
mannval fyrir norðan, vestan og
sunnan á íslandi“. Pétur biskup
hóf veizluárið visitazíu um biskups
dæmi sitt og lét skrásetja þá miklu
og merku máldaga, sem við hann
eru kenndlr og nefndir Pétursmál-
dagar. Til er visitazíubréf biskups,
sem greinir frá, hversu hann hátt-
aði ferð sinni um héruð.
Drottinsdag næstan fyrir Maríu-
messu var Pétur biskup staddur
í yfirreið á klaustrinu á Möðru-
völlum í Hörgárdal. Lenti þar sam-
an sveinum biskups og vó þar
Ormur, maður danskur að ætterni,
Gissur ijósa, annan biskupssvein.
Ormur þessi hafði komið út um
sumarið. Varð víg þetta fyrir fram-
an biskupsstofuna í klaustrinu.
Þegar Ormur lýsti á hendur sér
víginu, nefndi hann sig Nikulás
Ormsson — kvaðst hann með því
nafni skírður hafa verið, en fermd-
ur með Ormsnafni. Mun þarna
hafa verið á ferðinni ævintýramað-
ur, en margir slíkir voru uppi á
þeirri öld. Vígsmál þetta var mjög
nákomið biskupi, þar sem sveinar
hans áttu í hlut. Þá var klaustrið
og saurgað mannsblóði.
í Fornbréfasafni er sagt, að Pét-
ur biskup hafi gert fyrstu yfirreið
sína í ágúst og september og riðið
heiman frá Hólum tii Svarfaðar-
dals 30. júlí og vísiterað svo um
Vaðlaþing og Þingeyjarþing um
sumarið. Árið 1395 er svo talið, að
Pétur biskup hafi vísiterað Húna-
þing og nokkuð af Hegranesþingi.
Kemur biskup við vígslumáldaga
Höskuldsstaðakirkju frá 2. júlí það
ár, sem styður þetta. Árið áður
hefur Pétur þó riðið á nokkra
staði í Húnaþingi, svo sem Víði-
dalstungu, eins og máldagi þeirr-
ar kirkju vottar. Telur I Fornbréfa-
safni, að þar með hafi verið lokiP
embæt íisverkum Péturs biskups á
Íslandí, sem þó er nú algerlega
ókannað mál. Árið 1396 er hann
búivn til skips eins og sést á fyrr-
nefndri eignarskrá Hólakirkju.
Pétur hefur síðan verið talinn
erlendis til 1398. Á öndverðu því
ári er hans getið á íslandi á föstu.
29. marz lætur Steinmóður prest-
ur Þorsteinsson ganga dóm um
eignir Möðruvallaklausturs, og get-
ur þar Péturs biskups á þann hátt,
að hann sé nærstaddur. Hefur
hann þá komið til landsins haust-
ið 1397. Síðan er álitið, að biskup
hafi farið utan sumarið 1398 og
ekki komið til landsins eftir það.
Þó segja þeir feðgar, séra Jón
Halldórsson í Hítardal og Finnur
biskup, í ritum sínum, að Pétur
biskup hafi komið út aftur 1401.
Ef það er rétt, er líklegt, að bisk-
up hafi andazt hér á Iandi í svarta
dauða 1402 eða 1403, en biskup
er talinn andaður um það leyti,
hvort sem hann hefur borið bein-
in hérlendis eða erlendis. Vitað er,
að Pétur biskup er á lífi þann 27.
ágúst 1401 í Helsingjaborg í Sví-
þjóð og kemur þar við bréf, þar
sem Eiríkur konungur af Pomm-
ern lýsir gjöfum Margrétar drottn-
ingar Valdimarsdóttur til ýmissa
klaustra og kirkna í Svíþjóð og
Noregi. Einnig er Vilkin biskup í
Skálholti nefndur við þennan
Framhald á 502. siSu.
TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ
49'