Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Blaðsíða 6
Martin Andersen Nexö: Óli dúfa var enn skjálfhentari en hann átti vanda til. Mjólkur- taumarnir lágu frá skálinni á borð- inu, fram á borðbrúnina, upp nýja vestið hans — og.alla leið upp að munni á honum. Það gutlaðist út úr homspæninum, í hvert skipti sem hann bar hann að vörunum, rétt eins og það riði á því að merkja leiðina, svo að hann rataði aftur að skálinni. En þegar lak niður á vestið, leit Gjarta reiðilega til manns síns, og Óli flýtti sér að þurrka framan af sér með hand- arjaðrinum. Óla þótti seydd mjólk mata bezt. En í þetta skipti fórst honum við- ureignin við soðkökurnar hálf- klaufalega. Þær voru þéttar í sér, soðkökurnar hjá Gjörtu, og erfitt að ná á þeim taki, sem dugði, og Óla gekk illa að klemma þær á milli gómanna. Það var ýmist, að þær skruppu undan út að kinn- um eða hrukku aftur inn í munn- inn, og Óli var hreint í vandræð- um að merja þær sundur. Enginn mælti orð frá vörum. En það lét svo hátt í Óla, að engu v'ar líkara en vél væri í gangi uppi í honum. Iiann velti hausnum og ranghvolfdi augunum, líkt og hundur stæði á hræi og væri að reyna að slíta það sundur. Allt í einu skauzt soðkaka út úr nonum og flau.g fram á borðið, þar sem liún féll eins og sprengja nið- ur í skálina. Óli varð byrstur á svipinn, en vinnumaðurinn skellti upp úr og Gjarta líka. Og þá gat Óli ekkj að sér gert: Hann fór að hlæja eins og þau hin. „Hún sneri þá aftur lieim til föðurhúsanna", sagði hann og horfði langeygður niður í skálina — „hver fjandinn varð nú af þér, sneypan þín?“ Hann krakaði niður í skálina með spæninum og kannaði djúpið með kyndugu látbragði. Vinnu- maðurinn veltist um af hlátri. „Þú hefðir átt að bíta duglega í han.a, svo að þú þekktir hana aft- ur“, sagði Gjarta. Hún var að hæð- ast að því, að hann var tannlaus. „Það var nú líka hugsunin, þó að svona færi“, sagði Óli. „En það er nú mestur krafturinn í hinum endanum á mér, ef hún hefði kom- izt svo langt. Það fara þær nú samt ekki í einni striklotu". „Bölvaður dóni ertu, maður, að tala svona við matborðið“, sagði Gjarta og hristi höfuðið. En hún hlé eigi að síður. Óli valkókaði yfir skálinni og dró spóninn fram og aftur. En svo rykkti hann sér snögglega upp í sætinu, rak tóman spóninn upp í sig og sleikti hann nokkrum sinn- um, þerraði hann síðan með þum- alfingrinum og fleygði honum of- an tborðskúffuna. „Þið getið haldið áfram að éta“, sagði hann um ieið og hann stóð upp. „En nú verð ég að komast af stað“. Vinnumaðurinn hélt áfram að spæna upp í sig mjólkina úr skál- inni, en Gjarta lagði spón sinn á borðið og fór að stjana við mann sinn. Óli var lágur vexti og pervisinn, en nokkuð kvikur í hreyfingum. Höfuðið var nauðsköllótt, hakan sléttrökuð og kinnarnar, en helj- armikill skeggkragi, sem náði eyrna á milli, undir kjálkabörðun- um. Menn héldu svo vel á sér hita með svoleiðis skegg, Hann var í uppháum buxum með beintölum og vesti, sem hneppt var upp í háls, og 2Ú hjálpaði Gjarta honum í viðhafnarfrakkann. Það var blár soldátafrakki og kraginn í meira lági teygður að aftan, líkt og hann hefði lengi hangið á snaga. „Geturðu ekki staðið kyrr“, sagði Gjarta um leið og hún tróð skegginu niður undir hálsmálið á vestinu. En Óli átti bágt með að standa kyrr, því að það var kominn í hann ferðahugur. Gjarta lét það þó ekki á sig fá. Hún vætti svuntuhornið uppi í sér og strauk framan úr honum, þar sem lienni sýndist eins og hann væri kámug- ur. „Sjáum til“, sagði hún, þegar hún hafði þrifið hann. „Nú glans- arðu eins og nýfægður túskilding- ur“. „Þið ættuð að geta látið fara sæmilega á með ykkur“, sagði hann glottandi og leit á þau til skiptis, konu sína og vinnumann- inn. „Gjörtu ábyrgist ég, ef farið er rétt að henni. Það er með hana eins og köttinn: Það verður að strjúka henni eins og hárin liggja“. Og svo kleip hann í mag- ann á henni. „0, haltu þér saman, lurkurinn þinn, og reyndu að koma þér af stað“, sagði Gjarta, nokkuð við- skotaill. „Þetta er hún ekki gefin fyrir“, sagði Óli og pataði út í loftið. „Nei, reyndu ekki svona lagað við hana, því að þá hleypur fjandinn í hana. En þú verður heniíi hjálp- legur, Pétur minn“, bætti hann við, alvarlegri í bragði — „sækir vatn og svoleiðis“. „Það skal ég gera“, sagði vinnu- maðurinn um leið og hann stóð upp. Hann ætlaði að beizla hest- ana. Óli dúfa horfði á eftir honum. Gjarta var komin með kápuna, sem hann átti að hafa yfir sér á leiðinni. „Myndarmaður, hann Pétur“, sagði Óli. „Hefðum við átt gjaf- vaxta dóttur, skyldi ég svo sannar- lega hafa gefið honum hana. Þau hefðu mátt taka við búinu strax í fyrramálið“. Gjarta ræskti sig ólundarlega. Henni var sízt af öllu í huga að af- sala sér húsmóðurtigninni. En Óli skeytti ekki um það. Hann kyssti hana í snatri og skálmaði út. Hann var orðinn heitur til augn- anna, því að hann hlakkaði eins og barn til ferðarinnar, baðaði út höndunum og sönglaði fyrir munni sér. Allir tilburðir hans minntu á stórt barn, sem á eitthvað skemmtilegt í vændum. Og það var eins og Gjarta veitti þessu at- hygli. Ég held, að hann sé geng- inn í barndóm, tautaði hún við sjálfa sig, um leið og hún þreif mjólkurskálina af borðinu. Vinnumaðurinn var að spenna Borgundarhólmshestana fyrir æk- ið, og Óli hljóp í kring um vagn- inri, sem virtist ískyggilega hlað- inn. Tungubroddurinn var á 5$ i? ItffllN-N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.