Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Side 8

Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Side 8
Pétur var eins og sneyptur rakki. „Það er nú enginn til frá- sagnar“, tautaði hann. En Gjarta anzaði honum ekki einu sinni. Hún snaraðist þegjandi út í þvottahús. Hann hrökklaðist líka út, rangl- aði suður fyrir bæ og fór að hyggja að kartöflugeymslunni. Hann var >sköp hnugginn og gat ekki um nnað hugsað en Gjörlu: Iiann mátti ekkj láta hana ganga sér úr greipum. En þar með var líka allt sagt, sem segja þurfti, og það, sem átti að gerast, það hlaut að gerast. En því fór fjarri. að hann ósjcaði Óla neins ills. Það var skýjað þennan dag njór í lofti og mesta mugga. En ygnt var enn, og einhver undar- leg kyrrð á öllu og líkt og land og sjór rynnu ^saman í eitt. Það var rétt gott skotfæri niður að sjónum, og það var eitthvert arga- þars í fuglum: Krákur og bláhrafn ar sveimuðu þar gargandi yfir ein- hverju. Það fór hálfgerður hrollur um Pélur, en samt gekk hann þangað niður eftir til þess að forvitnast um þetta. Þoð var þá svín, sem iá í flæðarmálinu, rifið á hol — ] íklega höfðu þeir misst það út- byrðis af einhverri slcútunni. Hon- um létti. Hér Jiöi'ðu fundizt lík oft- ar en einu sinni — hryllilega leik- in lik, sem guð mátti vita, hvort nokkurn tíma gátu fundið frið í gröfinni. Hræfuglarnir flúðu, þeg- ar hann kom á vettvang, þung- lamaiegir á þungbúnum degi, og öldurnar ultu silalega upp á sand- inn og hörfuðu jafnskjótt. Sjórinn var eins og hálfsofandi dýr, sem sletti út úr sér tungunni. Þetta sefaði hann allt, og honum fannst eins og einhver, sem var ennþá sterkari en hann sjálfur, stryki honum um vangann. Hann máttl ekkj láta hana ganga sér úr greip- um! Það varð að gerast, sem ger- ast átti. Hann snaraði svíninu á bakið og þrammaði heim. Það mátti sjóða það í sápu. Jörðin var sendin, en Óli fékk talsvert upp úr þessum sandi — einkanlega kartöflur. Það þótti reyndar heldur lítilfjörlegt að rækta mestmegnis kartöflur — það var svona viðlíka og eiga móð- ir sína á sveitinni. En Óli sóttist ekki eftir neinni upphefð. I-Iann var þeim mun ánægðari, þegar nann stakk krónunum i vasann. Víutiu tunnur af kartöflum hafði bann fengið af hvorri skákinni þetta áeíð — fyrir utan það, sem þeir fengu, er tóku upp hjá hon- um, sjöundu hverja körfu að venju. Þetta var ekki nein flutn- ingsjörð, en þægileg jörð samt, og engin skuld á henni, og Óli farinn að reskjast. Þó að hann gæti auð- vitað lifað lengi enn. Og Gjarta var kona, sem vissi, hvað hún vildi. Þangað varð komizt, en ekki lengra. Hefði hún nú verið svolít- ið lausari í pilsi, þá hef'ðu þau get- að beöið og látið sem ekkert væri, þangað til óli hafði bústaðaskipti. En Gjarta vár heiðarleg kona. Hann fleygði svínsskrokknum á hlöðugólfið og kallaði á Gjörtu — hún átti að koma og sjá, hvað hann hafði fundið. Svo fór hann með henni í þvottahúsið og settist í velgjuna við eldstóna og horfði á hana við vinnu sína. Hann mátti ekki láta hana ganga sér úr greip- um. Það fóru kippir um hendurn- ar á honum, og hann langaði til þess að þrífa til hennar og láta liana æpa, en það var óþægilegur skjálfti í maganum á honum, og kjarkurinn dvínaði. Og nú skaut upp í huga þessum angui’værum vísum, sem fólk söng stundum, og hann varð hryggari og hryggari. Það var eins og þegar hækkar í brunni, unz rennur út úr honum. Munnurinn opnaðist ósjálfrátt, því að brunnurinn var fullur, og það rann út úr honum, og drafandi röddu raulaði hann vísu hins von- svikna elskhuga. Þetta var dapurleg vísa. og hann sá það á bakinu á Gjörtu, að hún grét. Hann hefði getað tárazt líka, ef hann hefði ekki skammazt sín fyrir það. En hann var karlmaður, og mátti ekki vola. Gufan úr þvottapottinum var eins og mökk- ur uppi við loftið, og það lak af bitunum í dropatali, en úti í ask- inum sat kráka og spáði válegum tíðindum. Pétri datt í hug ný vísa, ennþá átakanlegri en hin fyrri. Þar var hinn svikni elskhugi að mikla sorgir sinar, snúa hnífnum í hjarta sárinu. ' Gjarta sneri sér við og seildist eftir flíkuni, sem lágu vtg eld- stóna. Hún hallaði sér upp að hon- um á meðan hún lét þær í fötuna. Pétri fannst hún vera að gæla við sig, og nú fataðist honum öll stjórn á sjálfum sér. Hann þreif í kjólfald hennar og hallaði höfð- ínu upp að maganum áh enni. „Svona, svona, Pétur — vertu ekki að þessum-þremli“, sagði hún blíðlega og klappaði honum ó bak- ið. „Þú titrar eins og nýborinn kálfur. Okkar stund kemur, vertu viss“. Hann rétti úr sér og leit framan í hana. „Hvenær á það að vera?“ spurði hann og greip andann á lofti. Þau höfðu aldrei borið saman ráð sin, og hvorugt hafði haft neina ráðagerð á prjónunum. En Gjarta skildi undir eins, hvað hann var að fara. „Sumir eru nú vanir að vera valtir á fótunum, þegar þeir koma heim úr kaupstaðnum“, sagði hún undirfurðulega. „Og hvað með það?“ spurði hann — hann áttaði sig ekki á þessu svona á svipstundu. „Við getum talað um það. Komdu nú inn og fáðu þér auka- bita“. Hún gekk á undan honum inn. Á borðinu var brauðdiskur, og Pét- ur fór að maula brauðið. Gjarta sótti salt og brennivín og setti á borðið. Það var byrjað að skyggja. Yfir stútnum á flöskunni hvolfdi lítið glas, sem gerði sama gagn og tappi. Á börmunum höfðu harðn- að malarleifar út úr mörgum munnum. Pétur hellti glasið barmafullt og bar það upp að vör- um sér. „Þú ert ekkert skjálfhentur", sagði Gjarta með aðdáunarhreim í röddinni. „Nei, það kemur ekki fyrr en með ellinni'1, svaraði hann hressi- lega og hvolfdi í sig úr glasinu. „Nú slægi niaður ekki hendinni á móti kossi“. „Þú með þessa kossa", sagði Gjarta hlæjandi. „Fáðu þér aftur í glasið — gerðu svo vel“. „Hvenær heldurðu, að það geti orðið?“ spurði hann japlandi. „Ég heyrði þrisvar í krákunni þarna úti í stóra askinum í nótt, og það boðaði eitthvað. Mér kæmi ekki á óvart, þó að einhver dæi hérna á heimilinu". Hún dæsti. Pétur hafði komizt í gott skap við brennivínið. „Það er ekki vert, að ég éti of mikið af osti“, sagði liann og deplaði augunum til henn- ar — „það fer bráðum að minnka fjörið í þér“. „Svei þér“, svaraði hún og skók trébakkann framan í hann, en hellti svo í næstu andrá í glasið handa honum enn einu sinni. „Jæja“, sagði hann og teygði úr sér. „Ég kem þá hérna inn um 5*4 T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.