Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 12

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 12
Miðdalaþing Sóknalýsing miödalsþinga eða Snóksdals og Sauðafells sókna í Dala- sýslu, eða fáort andsvar nokkurra spurninga, sem Hið islenzka bók- menntafélag hefur lagt fyrir presta áhrærandi ofan nefnt prestakall. (Sent Hinu islenzka bókmenntafélagi af.KR. Magnúsen sýslumanni 24. apr. 1855). Takmörk sóknanna á alla vegu Að útnorðanverðu liggur presta- kallið að suðurströnd Hvamms- fjarðar frá Gljúfurá, sem nú er jafnan ' kölluð Gunnarsstaðaá inn að Miðá. Að norðan og austanverðu liggur það að Kvennabrekkusókn og skilur fyrst Miðá frá sjó, þar til Tunguá rennur i hana. Siðan skilur Tunguá upp á Qeldingadal að landamerkjum milli Kvennabrekkukirkjulands og Háa- fells, svo skdja greind landamerki frá téðri á beina sjónhending upp á fjalls- brún, svo eftir hæstu eggjum Geldingadals suður á Gamalhnúka. Að sunnan og útsunnanverðu nær presta- kallið að Mýra- og Hnappadalssýslu og eru takmörk eftir háfjallgarðinum eins og vatnsföll deilast milli héraðanna frá áður nefndum Gamal- hnúkum vestur að Bölti, sem stendur á landamærum Dala- Snæfellsness- og Hnappadalssýslna, þó á Sauðafells- kirkja (eftir þvi sem nú er talið) land i Sauðfellingamúla fyrir sunnan hér greind takmörk og Hrafnabjörg eiga Mjóadal sömuleiðis af hverjum vötn falla suður til Borgarf jarðar. Að vestanverðu nær prestakallið að Skógarströnd i Snæfellsnessýslu og skilur þar sýslur og sóknir áður nefnd Gljúfurá, neðan frá sjó og fram á fjall, allt að fyrr nefndum Bölti. Fjöll, hálsar, heiðar og fell. I Miðdölum stendur aflangt fell, ^em heitir Sauðafell. A milli Geldingadals og Reykjadals er hátt fjall, sem heitir Háfur og liggur það til suðurs milli téöra dala, en syðst á þeim eggjum eru Gamalhnúkar hæstir. Milli Reykja- dals og Sökkólfsdals er Grafarmúli og þar suður eftir fjallseggjunum Grafar- tindar, en Brattabrekka er fyrir miöjum botni Suðurárdals, en austan- vert við téðan dal er klettótt fjall, sem heitir Bani og sagt er dragi nafn af þvi, að nokkrir Hellismenn hafi verið eltir þar fram af. t þvi fjalli er einnig Grettisbæli, þar serh Grettir Asmundsson dvaldi, þegar Þóroddur Snorrason sótti hann heim. Að vestanverðu við Sökkólfsdal er Hliðartúnsfjall og Skallhólsfjall að sunnanverðu við Hundadal. Milli Miðdala og Hörðudals liggur háls til suðurs, sem ýmist er kallaður Bæjarháls eða Hliðarháls, svo er Um miöja sfðustu öld hugsaði Bók- menntafélagið til þess að láta semja og gefa út tslandslýsingu. Það verk var undirbúið með þvi að senda öllum þjónandi prestum spurningablöð um prestakall þeirra. Þó að ekki yrði af því að semja islandslýsinguna og gefa út, safnaðist þarna dýrmætur fróð- leikur. A sfðari árum hefur sumt af þessum sóknalýsingum verið gefið út og þá yfirleitt á vegum félagssamtaka viðkomandi héraðs. Sunnudagsblaðið birtir nú að þessu sinni lýsingu Miðdalaþinga. Hundadalsfjall suður af hálsinum og Háheiði syðst, þar til vötnum hallar suður af.Milli Vifilsdals og Laugadals er Tungufjall, hæstu tindar á þvt eru Hestur og Hrútaborg, en milli Hörðu- dals og Selárdals er háls, sem oftast er kallaður Blönduhliðarháls, en milli Laugadals og Sélardals er hátt fjall, sem heitir Hólsfjall, hæsti tindur á þvi heitir Þórutindur. Milli Selárdals og Hafradals er Selárdalsborg og milli Hafradals og Dunkárdals er Gauta- staðamúli, hæstu tindar á honum heita Sneisar. Fyrir miðjum botni Dunkár- dals er kringlótt fell, sem heitir Helgufell, en milli Dunkárdals og Stangárdals er Bakkamúli og hæstur upp af honum Geirhnúkur, en vestan við Stangárdal er áður nefndur Böltur. Jöklar, bergtegundir og fleira Engir eru hér jöklar, ekki móberg eða stuðlagrjót i klettum, ekki svo menn viti málmar eða merkilegar steinategundir, ekki surtarbrandur. steinkol eða brennisteinn, en skeljar hafa fundist i bökkum með Hörðudalsá i Hólslandi og Hamarslandi, einnig með Miðá i Bæjarlandi. Dalir. Miðdalirnir eru fyrst, að neðanverðu einn dalur, en klýfst um Sauðafellið og myndast þá tveir dalir, sem Iiggja til landsuðurs og heita allir þessir dalir Miðdalir þvi Hörðadalur og Hauka- dalur er sinn til hvorrar hliðar. Fram af Miðdölum ganga þessir afdalir: 1. Geldingadalur, sem liggur fram milli Kolsstaða i Kvennabrekkusókn og Háafells, 2. Reykjadalur liggur fram milli Fellsenda og Grafar, 3. Sökkólfs- dalur, sem skiftist i tvo dali fyrir framan byggð og heita þeir Austurár- dalurog Suðurárdalur, 4. Hundadalur, sem og svo skiftist i tvo dali Eyðisdal og Njóladal. Að vestanverðu við Miðdalina liggur Hörðadalur til suðurs, fram af honum liggur Vifilsdalur i landsuður og Laugadalur i útsuður. Út úr Vifilsdal að vestanverðu liggur Rangárdalur. Fyrir vestan Hörðadalinn liggur Selár dalur jafnsiðis honum, sem nú er stundum kallaður Hólsdalur af þvi Hóll á dalinn að austanverðu. Að vestanverðu liggur út úr honum framarlega Bustardalur, sem liggur til útsuðurs suður á Svinbjúg. Út úr téðum dal liggur einnig Hafra- dalur milli Selárdals og Gautastaða. Vestast liggur Dunkárdalur einnig til suðurs. Fremst út úr botninum á honum að vestanverðu liggur Hvola- eða Hvollátursdalur og nokkru neðar sama megin Stangárdalur, báðir i vestur útsuður. Að þessum dölum öllum halda fjöll þau á allá vegu, sem áður eru talin. Merkihryggur skilur drög á Reykjadal og Sanddal, sem liggur út úr Norðurárdal i Mýrasýslu. Brattabrekka er á milli Suðurárdals og Bjarnadals. sem einnig liggur út úr Norðurárdal. — Sópandaskarð liggur upp úr botninum á Laugadal og yfir i upptök Langavatnsdals, sem liggur upp af Stafholtstungum, Borgar- og Álftaneshreppum i Mýrarsýslu. — Svinbjúgur er á milli Bustardals og Hitardals, sem liggur upp af Hraun- hrepp i Mýrasýslu. Stangárdalsdrög liggja yfir undir Fossabrekkur og þær •748 Sunnudagsblað Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.