Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Page 12
Miðdalaþing
Sóknalýsing miödalsþinga eða
Snóksdals og Sauðafells sókna í Dala-
sýslu, eða fáort andsvar nokkurra
spurninga, sem Hið islenzka bók-
menntafélag hefur lagt fyrir presta
áhrærandi ofan nefnt prestakall. (Sent
Hinu islenzka bókmenntafélagi af.KR.
Magnúsen sýslumanni 24. apr. 1855).
Takmörk sóknanna
á alla vegu
Að útnorðanverðu liggur presta-
kallið að suðurströnd Hvamms-
fjarðar frá Gljúfurá, sem nú er jafnan '
kölluð Gunnarsstaðaá inn að Miðá. Að
norðan og austanverðu liggur það að
Kvennabrekkusókn og skilur fyrst
Miðá frá sjó, þar til Tunguá rennur i
hana. Siðan skilur Tunguá upp á
Qeldingadal að landamerkjum milli
Kvennabrekkukirkjulands og Háa-
fells, svo skdja greind landamerki frá
téðri á beina sjónhending upp á fjalls-
brún, svo eftir hæstu eggjum
Geldingadals suður á Gamalhnúka. Að
sunnan og útsunnanverðu nær presta-
kallið að Mýra- og Hnappadalssýslu og
eru takmörk eftir háfjallgarðinum
eins og vatnsföll deilast milli
héraðanna frá áður nefndum Gamal-
hnúkum vestur að Bölti, sem stendur á
landamærum Dala- Snæfellsness- og
Hnappadalssýslna, þó á Sauðafells-
kirkja (eftir þvi sem nú er talið) land i
Sauðfellingamúla fyrir sunnan hér
greind takmörk og Hrafnabjörg eiga
Mjóadal sömuleiðis af hverjum vötn
falla suður til Borgarf jarðar. Að
vestanverðu nær prestakallið að
Skógarströnd i Snæfellsnessýslu og
skilur þar sýslur og sóknir áður nefnd
Gljúfurá, neðan frá sjó og fram á fjall,
allt að fyrr nefndum Bölti.
Fjöll, hálsar,
heiðar og fell.
I Miðdölum stendur aflangt fell, ^em
heitir Sauðafell. A milli Geldingadals
og Reykjadals er hátt fjall, sem heitir
Háfur og liggur það til suðurs milli
téöra dala, en syðst á þeim eggjum eru
Gamalhnúkar hæstir. Milli Reykja-
dals og Sökkólfsdals er Grafarmúli og
þar suður eftir fjallseggjunum Grafar-
tindar, en Brattabrekka er fyrir
miöjum botni Suðurárdals, en austan-
vert við téðan dal er klettótt fjall, sem
heitir Bani og sagt er dragi nafn af þvi,
að nokkrir Hellismenn hafi verið eltir
þar fram af. t þvi fjalli er einnig
Grettisbæli, þar serh Grettir
Asmundsson dvaldi, þegar Þóroddur
Snorrason sótti hann heim.
Að vestanverðu við Sökkólfsdal er
Hliðartúnsfjall og Skallhólsfjall að
sunnanverðu við Hundadal. Milli
Miðdala og Hörðudals liggur háls til
suðurs, sem ýmist er kallaður
Bæjarháls eða Hliðarháls, svo er
Um miöja sfðustu öld hugsaði Bók-
menntafélagið til þess að láta semja
og gefa út tslandslýsingu. Það verk
var undirbúið með þvi að senda öllum
þjónandi prestum spurningablöð um
prestakall þeirra. Þó að ekki yrði af
því að semja islandslýsinguna og gefa
út, safnaðist þarna dýrmætur fróð-
leikur. A sfðari árum hefur sumt af
þessum sóknalýsingum verið gefið út
og þá yfirleitt á vegum félagssamtaka
viðkomandi héraðs. Sunnudagsblaðið
birtir nú að þessu sinni lýsingu
Miðdalaþinga.
Hundadalsfjall suður af hálsinum og
Háheiði syðst, þar til vötnum hallar
suður af.Milli Vifilsdals og Laugadals
er Tungufjall, hæstu tindar á þvt eru
Hestur og Hrútaborg, en milli Hörðu-
dals og Selárdals er háls, sem oftast er
kallaður Blönduhliðarháls, en milli
Laugadals og Sélardals er hátt fjall,
sem heitir Hólsfjall, hæsti tindur á þvi
heitir Þórutindur. Milli Selárdals og
Hafradals er Selárdalsborg og milli
Hafradals og Dunkárdals er Gauta-
staðamúli, hæstu tindar á honum heita
Sneisar. Fyrir miðjum botni Dunkár-
dals er kringlótt fell, sem heitir
Helgufell, en milli Dunkárdals og
Stangárdals er Bakkamúli og hæstur
upp af honum Geirhnúkur, en vestan
við Stangárdal er áður nefndur Böltur.
Jöklar, bergtegundir
og fleira
Engir eru hér jöklar, ekki móberg
eða stuðlagrjót i klettum, ekki svo
menn viti málmar eða merkilegar
steinategundir, ekki surtarbrandur.
steinkol eða brennisteinn, en skeljar
hafa fundist i bökkum með Hörðudalsá
i Hólslandi og Hamarslandi, einnig
með Miðá i Bæjarlandi.
Dalir.
Miðdalirnir eru fyrst, að neðanverðu
einn dalur, en klýfst um Sauðafellið og
myndast þá tveir dalir, sem Iiggja til
landsuðurs og heita allir þessir dalir
Miðdalir þvi Hörðadalur og Hauka-
dalur er sinn til hvorrar hliðar. Fram
af Miðdölum ganga þessir afdalir: 1.
Geldingadalur, sem liggur fram milli
Kolsstaða i Kvennabrekkusókn og
Háafells, 2. Reykjadalur liggur fram
milli Fellsenda og Grafar, 3. Sökkólfs-
dalur, sem skiftist i tvo dali fyrir
framan byggð og heita þeir Austurár-
dalurog Suðurárdalur, 4. Hundadalur,
sem og svo skiftist i tvo dali Eyðisdal
og Njóladal.
Að vestanverðu við Miðdalina liggur
Hörðadalur til suðurs, fram af honum
liggur Vifilsdalur i landsuður og
Laugadalur i útsuður. Út úr Vifilsdal
að vestanverðu liggur Rangárdalur.
Fyrir vestan Hörðadalinn liggur Selár
dalur jafnsiðis honum, sem nú er
stundum kallaður Hólsdalur af þvi
Hóll á dalinn að austanverðu. Að
vestanverðu liggur út úr honum
framarlega Bustardalur, sem liggur
til útsuðurs suður á Svinbjúg.
Út úr téðum dal liggur einnig Hafra-
dalur milli Selárdals og Gautastaða.
Vestast liggur Dunkárdalur einnig til
suðurs. Fremst út úr botninum á
honum að vestanverðu liggur Hvola-
eða Hvollátursdalur og nokkru neðar
sama megin Stangárdalur, báðir i
vestur útsuður. Að þessum dölum
öllum halda fjöll þau á allá vegu, sem
áður eru talin. Merkihryggur skilur
drög á Reykjadal og Sanddal, sem
liggur út úr Norðurárdal i Mýrasýslu.
Brattabrekka er á milli Suðurárdals
og Bjarnadals. sem einnig liggur út úr
Norðurárdal. — Sópandaskarð liggur
upp úr botninum á Laugadal og yfir i
upptök Langavatnsdals, sem liggur
upp af Stafholtstungum, Borgar- og
Álftaneshreppum i Mýrarsýslu. —
Svinbjúgur er á milli Bustardals og
Hitardals, sem liggur upp af Hraun-
hrepp i Mýrasýslu. Stangárdalsdrög
liggja yfir undir Fossabrekkur og þær
•748
Sunnudagsblað Timans