Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 14

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 14
ár og Dunkár. Vestan til viö hina siöarnefndu er Dunkárbakki og svo Gunnarsstaöir yst á hrepps og sóknar- enda. Þessir bæir eiga einnig land með firðinum milli Dunkár og Gljúfur- ár. Selstöður, afréttarlönd og réttir. Margar af framan töldum jöröum hafa átt selstöður innan sinna landar- eigna og verið notaðar i fornöld, en færri brúkað þær á seinni timum. Engin jörö hér á selför i annars land nema Hamraendar, er eiga selför i Hliðartúnsland. — Afrétt átti Sauða- fellskirkja i allan Sanddal og hafa flestir sóknarbæir haft þar upprekstur og goldið upprekstrartoll. Þeir hafa fjárrétt á Fellsenda og rétta á föstu- daginn i 21. viku sumars. Hörðdælingar hafa haft upprekstur innan vert á Langavatnsdal, sem er almenningur. Hörðdælingar hafa rétt i Seljalandi og rétta mánudaginn i 21. viku sumars, til hennar leita og allir Borghreppingar úr Mýrasýslu. Veiði og önnur hlunnindi Engin er hér veiði, nema litilfjörleg silungsveiði i Miðá og Hörðdalsá og engin hlunnindi önnur nema fjaðra- tekja á þeim 6 jörðum, sem land eiga með sjónum. Eyðijarðir og nýbýli Nýbýii eru engin i þessu prestakalli. Eyðijarðir, sem löngu hafa lagst i eyði eru flestar nefndar i jarðabókunum t.d. Jarðatali Johnsens, þó eru auk þeirra þessi: 1 Hrafnabjargalandi á Laugadal jörðin Laugar. hún var ekki komin i eyði 1393, en mun hafa lagst það i plágunni miklu eftir 1400. Annað kot var i Hrafnabjargalandi utanvert við Kornamúlagil, sem hét Kornamúlakot. 1 Hiiðarlandi var annað kot á Hafurshjöllum, sem kallað var Hafurshjallakot. 1 Tungu- landi á Laugadal var Þjalakot. 1 Hóls- landi eru auk Hólkots þrjú eyðikot upp á dalnum móti Selárdal. sem hétu Múlakot. Skurðarkot og Hurðarbak. Þetta siðast nefnda var fyrirsvars jörð i fornöld, reisulegur bær. Alfaravegir. Alfaravegur liggur frá Miðá vestur með sjónum og skiftist fyrir innan Gljúfurá. Liggur önnur gatan lægra út Skógarströnd, en önnur hærra vestur Rauðamelsheiöi. Vegur þessi skiftist einnig á innanverðri Vestliðaeyri og liggur önnur gatan eins og áður er sagt til Miðár og svo norður Haukadal og Haukadalsskarð. en önnur liggur inn á Lækjarskógsfjörur og til Laxárdals. Fjallvegir liggja 3 suður yfir fjallgarð- inn til Mýrasýslu og liggur sá austasti frá Breiðabólstað i Sökkólfsdal suður yfir Bröttubrekku og Bjarnadal að Dalsmynni i Norðurárdal og er hér um bil 3 milur á lengd. Þar næst liggur vegur frá Seljalandi i Hörðadal eftir Laugadal og yfir Sópandaskarð og Langavatnsdal að Grisatungu i Staf- holtstungum og er undir 5 milum. Vestast liggur vegur frá Selárdal yfir Svfnbjúg og Hítárdal að Hitárdalsstað I Hraunihrepp. Hann er hér um bil 4 milur á le'ngd. — Allir þessir vegir hafa oft verið ruddir, en engar eru þar brýr, vörður eða sæluhús og engar tor- færur. Kirkjustaðir, hálfkirkjur og bænhús. Þetta prestakall er þingabrauð og eru kirkjurnar að Snóksdal og Sauða felli báðar i Miðdalahreppi, en allur Hörðadalshreppur á kirkjusókn að Snóksdal. Messað er til helminga á hvorri kirkju, en engin lénsjörð er til- heyrandi brauðinu. eða viss bújörð ákveðin prestinum. Ekki hafa þar fleiri alkirkjur veriö, en hálfkirkja var sett á Dunki 1575 og aftekin 1765. Einn- ig var bænhús á Hrafnabjörgum 1393, sem löngu fyrr var aflagt en Dunkur- bænhús. Lika er sagt að bænhús hafi verið i Hundadal og annað á F’ellsenda. Kirkjan i Snóksdal á eftir máldögum hálft heimaland 30 hndr og þvi meira sem er á milli Þrepskjaldar og Leirmúla sjónhending fram i á. Gilsbakka hálfan heimaland, Hörða- ból hálft og hálfa Þorgeirsstaðahlið. Botn hjá Svinbjúg. Dalahólma og skerin með. Gjarðeyjar liggjandi i Breiðafirði með gögnum og gæðum, 5 hndr i Saurbæjarf jöru. hundrað lambarekstur á Skarðsfjall, hundrað raftviðar i Sveinatunguskógi i Norður- árdal (löngu öreytt pláss), sexærings skipstöðu i klett milli Höfða og Ennis árið um kring, eldiviðartak i Hrisa- skóg, hvalsáttung úr hverjum reka og kjörtré hvar sem á land rekur eða fjör- ur milli Drangs og Grindar. einnig hvalsáttung i Fallandastaðareka i Hrútafirði. alla veiði i Miðá. sem land liggur við út i sjó. t friðu á kirkjan 10 kýr og 30 ásauði auk 5 hundraða i geldum peningum. Kirkjan á Sauðafelli á Hliðartún i Sökkólfsdal. Kross i Haukadal og Hamra i Laxárdal hvor á 16 hndr. Af- rétt á öllum Sanddal og 5 hndr i Saur- bæjarfjöru. 1 friðu á Sauðafeliskirkja 24 málnytukúgildi. Báðar kirkj- urnar eru nú altimburhús. Jarðeignir Allar jarðir i þessum sóknum eru bændaeign, nema kirkjujarðir þær sem áður eru taldar. Fornleifar, fornrit o.fl. Engar eru hér fornminjar neinslags, nema ef telja skyldi stein sem er i Dunkurtúni og sagt er sé steðjasteinn Gauta sem byggði á Gautastöðum á landnámstið og hafði hann haft þar smiðju sina. Steinninn er mjög sokkinn I jörð og eru tvær holur klappaðar i hann, er sagt að steðjinn hafi verið I þeirri meiri, en saumhögg i þeirri minni. — Enginn fornrit eru hér til á Bókfelli og fá pappirshandrit af forn- sögum. Ekki hafa heldur neinar forn- leifar fundist hér það menn vita og ekki eru hér fornsögur manna á milli, sem ég hefi heyrt, nema af Helgu Barðardóttur Snæfellsáss og er sagt hún hafi á ofanverðri ævi sinni búið i felli þvi sem stendur á landamærum Dunkur og Hitárdals, sem áður er nefnt Helgufell, svo er sagt hún hafi andast þar og verið jörðuð i Helguhól, það er hár hóll kringlóttur i flóa fyrir neðan Stangá, freka bæjarleið frá Helgufelli. Fólk er hér yfirhöfuð skikkanlegt og siösamt, einnig skilrikt, mikið trúræk- ið og stundar yfrið vel uppfræðing unglinga. Nokkuð fastheldið við fornar góðar og meinlausar venjur, en hafn- andi hinum. Allir rétt vel læsir, margir skrifandi og nokkrir temja sér reikn- inglist. Bágt er að koma hér á almenn- um félagsanda. Söngmenn eru hér engir teljandi. Greinilegri og sannari lýsingu treystir sér ekki að gefa undirskrifað- ur sóknarprestur Miðdalaþinga V.E. Reykdal. Til Hins islenska bókmenntafélags i Kaupmannahöfn. (Afrit). Frumritið er geymt á Þjóðskjalasafn- inu merkt: 1B: 20. fol. c Dalasýsla. Ef til vill geta forvitnir ferðalangar, sem leið sina leggja um Suður-Dali haft nokkurt gagn af lýsingu þessari. Að visu er takmörkum háð, hvað hægt er að komast i bifreið utan alfaraleiða, en þá er að gripa til fótanna. Þarna eru engar teljandi torfærur fyrir þá, sem eru sæmilega brattgengir. Mætti benda á Hestfjall. Hrútaborg og Þóru- tind sem skemmtilega útsýnisstaði i björtu veðri. en hinir sem færari eru geta klifið Tregastein. En fyrir þá. sem lika vilja kvnnast fólkinu sem þarna býr. væri best að fara i göngur með heimamönnum og fresta þá að taka sumarfriið fyrr en i september. Allar fyrirsagnir i þessari sóknalýs- ingu eru gerðar af mér. F.J. 750 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.