Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Side 16
Skúli Magnússon: Skipasiraðar á Suðumesjum (Grein þessi var skrifuð 26. nóv. 1972). J.M. Það þarf vart að eyða mörgum orð- um að þvi, að sjávarútvegur er og hef- ur verið undirstaða islenzks atvinnu- Hfs(um leið og mestur hluti útflutnings landsmanna er fiskur. Hér á Suður- nesjum þekkja menn vel til sjávarins( enda sjórinn undirstaða alls, og Suður- nesjamenn eiga mun meira i húfi varðandi sjóinn og nýtingu auðæfa hans heldur en aðrir hér á landi. Það liggur þvi i augum uppi,að allt frá þvi menn stigu hér fyrst niður fæti, en það voru tveir þrælar Ingólfs, er þeir leit- uðu öndvegissúlna herra sins, hafa menn sótt sjóinn og til þess hefur þurft skip. Þess er getið á nokkrum stöðum i fornritum, að haffær skip hafi verið smiður á fslandi, og þá úr innlendum viðum. En eftir að viður för að þverra sakir skógarhöggs og kolavinnslu,varð að flytja ailt efni til skipasmiða inn i landið frá útlöndum. Hefur svo verið siðan. Mun ég hér á eftir rekja eitt- hvað um skipasmiðar og skip 'r Gullbringusvslu, aðallega mun ég þó halda mig við suðurhluta svslunnar. Heimilda er getið jafnóðum. A blaðsiðu 334 til 338 i Iðnsögu Is- lands.I. bindi, er kafli um skipasmiðar á Suðurnesjum og i Grindavik. Fer hér á eftir kaflinn um Illhuga smið úr Arnessýslu en hann var lengi viðloða i Grindavik: ..Illhugi smiður Jónss. var einn kunnasti skipasmiður á Suður- landi á 18. öld. Hann var fæddur i Neðradal i Biskupstungum 1724. bjó lengi á Drumboddsstöðum og andaðist þar um 1790. Um hann segir i þætti i Blöndu II: ..Á vertiðum var Illhugi umsjónarmaður Skálholtsskipanna i Grindavik (en þess skal getið að Skál- holtsstaður átti lengi Grindavik). er gengu frá Staðarhúsum á Jarngerðar- stöðum. Þau voru austarlega á Ekrun- um. Þar bætti hann allt sem bæta þurfti, en eigi réri hann á sjó. — Illhugi smiðaði mörg skip. Hið siðasta smið- aði hann á Stað i Grindav. Þá var hann gamall. Var hann þá heldur óglaður. Og er hann var spurður um orsökina. sagði hann: ..Þetta verður seinasta skipið, sem ég smiða, en það verður fyrsti manndrápsbollinn, sem ég smiða. Þvi smiða ég þaö nauðugur, þó svo verði að vera. En svo skal ég hafa það i laginu, að af kjölnum skal það aldrei fara". Hvort tveggja rætt- ist. Illhugi dó skömmu siðar. Og skipið fórst i Staðarsundi i stórbrimi, en ekki fór það af kjölnum. Brotsjór (hol- skefla) féll ofan á það og braut það i spón. Mennirnir fórust allir”. 1 8. bindi Lærdómslistafélagsrit- anna. 1788. bls 280. stendur: „Bóndinn Illhugi Jónsson á Drumboddsstöðum i Árnessýslu hefur smiðað 5 tiæringa, 13 áttæringa og 26 aðra minni fiskibáta og róðrarferjur. einnig aðgjört og um- smiðað fjölda mikinn annara skipa og báta. sem yfirhöfuð að lögun og traustri smið hafa álitnir verið öðrum betri i þeirri sýslu. Auk þess hefur hann sem forsmiður reist og þiljað 10 kirkjur. einnig fjölda annarra húsa, bæði á biskupsstólnum i Skálholti og annars staðar. Hann hefur smiðað 80 likkistur og helming þeirra gefið fá- tækum fyrir alls ekki. Þessum iðju- sama og þarfa dugandis manni gefur Félagið að verðlaunum sinn minna silfurpening og þar að auki 10 rd. i gangandi mynt". t ritinu ..Skútuöldin" (I. bindi) eftir Gils Guðmundsson segir svo um Jón Sighvatsson bónda i Höskuldarkoti i Ytri-Njarðvik (bls. 70 — 72): ,,1 Hösk- udarkoti i Ytri-Njarðvik bjó um þessar mundir Jón Sighvatsson. röskleika- maður og þrekmikill.Hafði hann hafizt úr fátækt og umkomuleysi fyrir táp og dugnað. Jón i Höskuldarkoti var fæddur 6. marz 1759 að Kúhól i Austur-Landeyj- um. Niu ára gamall missti hann föður sinn. en ekkjan hélt áfram hokrinu. ásam kornungum börnunum. fimm .að tölu. Var Jón þeirra elztur og hlaut þvi brátt að kynnast striti og áhvggj- um fátæklingsins. Eftir að hann komst á legg stundaði hann hevskap eystra á sumrin. en sjóróðra suður i Höfnum á vetrum. Gerðist hann snemma sjó- maður góður og orðlagður smiður. Formaður var hann nokkur ár við góð- an orðstir. t Höfnum kynntist Jón Oddbjörgu Snorradóttur frá Narfakoti. kvæntist henni og reisti bú á Höskuldarkoti i Ytri -Njarðvik. Efnin voru litil i fyrstu. en fóru brátt vaxandi. Jón var hin mesta hamhlevpa til vinnu. og stund- aði ýmist formennsku eða bátasmiðar. jafnhliða búskapnum. Á þessum árum sóttu Suðurnesjamenn margir nauð- synjar sinar til Hafnarfjarðar og Reykjavikur, enda þótt verzlun væri i Keflavik. Til ferða höfðu þeir flest litil skip og burðasmá, en hætti löngum til að hlaða þau um of, svo að slys hlutust af. Sem dæmi um framtakssemi Jóns er það. að hann keypti áttæring austan úr Þorlákshöfn, stækkaði hann til mik- illa muna og notaði siðan til vöruflutn- inga milli Keflavikur og Innnesja. Þótti það skip mest og friðast á Suður- nesjúm um þær mundir. Árið 1814 hafði Jón komið vel undir sig fótum, en gat þó ekki auðugur kall- ast. Kunnað mun hann hafa full skil á skipasmiðum og útgerðarfrum- kvæmdum Bjarna Sivertsens og vitað, að þau fyrirtæki báru sig allvel. Er ekki óliklegt, að hann hafi hugsað sem svo, að fleiri kynnu að geta fengizt við þilskipaútgerð en Bjarni einn. En hvort sem hann hefur velt þessum málum fyrir sér lengur aða skemur, þá er hitt vist, að þetta ár 1814 hafði hann aflað sér trjáviðar og hóf smiði þilskips i Njarðvik. Réð hann til sin Gisla Pétursson skipasmið á Os- eyri. og vann hann með Jóni að smið- inni i þrjá vetur, unz skútan var full- smiðuð vorið 1817. Ekki höfðu ná- grannar Jóns mikla trú á þessu brölti hans. og hlaut hann hinar mestu hrak- spár hvaðanæva. Kvað svo rammt að þessu. að vinir Jóns komu að máli við hann eftir fyrsta vetrarstarfið við skútuna, báðu fyrir alla muni að hætta fávizku sinni og rifa það. sem komið var af skipinu. Mætti þá vera, að forð- að yrði stórvandræðum. en annars mvndi illt af hljótast. Jón skellti skollaeyrum við öllum slikum fortöl- um og sat sem fastast við sinn keip. Þó þótti nábúum hans það kóróna gönu- hlaupin. er hann sendi Jón son sinn til Kaupmannahafnar. 20 ára gamlan. i þvi skyni að læra ..skipstjórnár i- þrótt". Fór Jón utan vorið 1815. dvald- ist ytra i tvö ár og tók að þvi búnu stýrimannspróf með góðum vitnis- burði. Segir Jón Sighvatsson frá þvi með nokkrum metnaði. að sonur sinn hafi komið heim lærður skipstjóri,átta dögum áður en skútan rann fullsmiðuð af stokkunum. Jón stýrði skútu föður slns fvrstu árin. en siðar tók við henni bróðir hans. Pétur að nafni. Pétur var röskleikamaður hinn mesti. Lærði 752 Sunnudagsblaö Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.