Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 1
Sasha sá besti? Eftirsóttur plötusnúður á Nasa í kvöld | Fólk í fréttum Vefnaður frumatriða Francesco Clementi með ný verk á Kjarvalsstöðum | Listir Bílar í dag Heldur sína fjórðu sportbílasýn- ingu  Ómenguð akstursánægja á Peugeot 206 Lipur Corolla Verso Gjafadagar 13. - 23. maí Nýtt kortatímabil í kvöld KONUNGLEGI breski flugherinn (RAF) á ekki nógu margar Spitfire- orrustuflugvélar og Lancaster- sprengjuflugvélar og því verður módelum af þessum vélum flogið yfir Chartwell í Kent, suðaustur af London, þar sem lengi vel var sumarbústaður Winstons Churchills, þegar Bretar minnast þess að 60 ár eru liðin frá D-deginum – þegar bandamenn gengu á land í Evrópu – sjötta júní næstkomandi. Allar flughæfar vélar RAF frá því í síðari heims- styrjöldinni eru þegar fullbókaðar þann dag, og því hefur verið leitað til Bickley- flugmódelfélagsins og það fengið til að sjá um flugsýninguna í Chart- well. Formaður félagsins, Les Eagle, sagði að Lancaster-módel með þriggja metra vænghaf og Spitfire-módel með 1,8 metra vænghaf myndu reyndar virðast nákvæmlega eins og raunverulegar flugvélar. „Ef módelin verða í réttri hæð og fjarlægð frá áhorf- endum eru allar líkur á að þeim sýnist vera um alvöru flugvélar að ræða,“ sagði Eagle í viðtali við breska rík- isútvarpið, BBC. Skortur á Spitfire-flugvélum London. AFP. LEIKHÓPNUM Vesturporti og framleiðand- anum Artbox hefur verið boðið að sýna Rómeó og Júlíu í Trafalgar Studios-leikhúsinu á West End í London í sumar. Það er stærsti leik- húsframleiðandi Bretlandseyja, The Ambassador Theatre Group, sem stendur að tilboðinu en ATG rekur fjölda leikhúsa á West End og víðar í Bretlandi. Gísli Örn Garð- arsson, leikari og leikstjóri sýning- arinnar, segir að í til- boðinu sé gert ráð fyrir 8 sýningum á viku í allt að þrjá mánuði en síðan sé verið að semja um hugsanlegt fram- hald. „Þetta er mjög spennandi tilboð. Ef af þessu yrði myndum við frumsýna í Trafalgar Studios um mánaðamótin júlí ágúst og sýna fram í október. Ef vel gengur er hugsanlegt að sýningin yrði færð í annað leikhús í eigu ATG eða send í leikferð um Bretland og það erum við að skoða núna.“ Trafalgar Studios-leikhúsið hét áður Whitehall Theatre og hefur gengið í gegnum gagngerar end- urbætur í vetur. Það verður opnað að nýju með sýningu Konunglega Shakespeare-leikhússins á Makbeð en Rómeó og Júlía íslenska leikhópsins Vesturports myndu fylgja á eftir. „Þetta er glæsi- legt leikhús og frábært tækifæri,“ segir Gísli Örn en þegar hann er spurður hvort honum hafi dottið þessi velgengni í hug þegar hann var að undirbúa sýninguna fyrir nærri tveimur árum, svarar hann: „Nei, þá gerðum við ráð fyrir í mesta lagi 8–10 sýningum en þær eru nú orðnar á annað hundr- að.“ Sýningar í Borgarleikhúsinu Vesturport lék Rómeó og Júlíu í Young Vic leik- húsinu í London á nær 50 sýningum í fyrrahaust og þótti breskum gagnrýnendum og áhorfendum sem íslenski leikhópurinn tæki Shakespeare til kostanna svo breskir starfsbræður mættu læra af. Nú gefst tækifæri til að sjá sýninguna aftur á Litla sviði Borgarleikhússins því Vesturport ætlar að rifja upp skemmtunina á nokkrum sýningum næstu vikur og verður fyrsta sýningin í kvöld. Rómeó og Júlía á West End í sumar „Glæsilegt leikhús og frábært tækifæri“ Víkingur Kristjánsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Ingv- ar E. Sigurðsson eru meðal leikenda í Rómeó og Júlíu. AÐ MINNSTA kosti tuttugu Palestínumenn létust og yfir 30 særðust í gær þegar ísraelskir skriðdrekar og hundruð her- manna réðust inn í Rafah-flótta- mannabúðirnar á Gaza-svæðinu. Shaul Mofaz, varnarmálaráð- herra Ísraels, sagði að markmið- ið með hernaðaraðgerðunum væri að eyðileggja göng og bygg- ingar sem væru notaðar til að smygla vopnum. Mannréttinda- samtökin Amnesty International sögðu að aðgerðirnar væru brot á alþjóðalögum og sumar þeirra væru stríðsglæpir. George W. Bush Bandaríkja- forseti sagði að ofbeldið á Gaza væri áhyggjuefni en áréttaði að Ísraelar hefðu rétt til að ráðast á hryðjuverkamenn. Javier Sol- ana, æðsti embættismaður Evr- ópusambandsins í utanríkismál- um, fordæmdi hernaðinn. Áður en aðgerðirnar hófust flúðu margar fjölskyldur í Rafah frá heimilum sínum þar sem ótt- ast var að Ísraelsher myndi jafna hundruð húsa við jörðu. Flestir þeirra sem biðu bana voru liðs- menn herskárra, palestínskra hreyfinga sem hafa staðið fyrir árásum á Ísraela. Meðal fórnar- lamba voru þó einnig tvö systkin, ellefu og fimmtán ára, sem fengu byssukúlur í höfuðið er þau léku sér inni á heimili sínu, að sögn sjónarvotta og lækna. Forseti ísraelska herráðsins sagði réttlætanlegt að rífa húsin þar sem þau væru notuð til að smygla vopnum. Markmiðið væri að stöðva smyglið og aðgerðunum yrði ekki hætt fyrr en það tækist. Amnesty International sögðu að Ísraelsher hefði jafnað meira en 3.000 íbúðarhús við jörðu á þremur og hálfu ári. „Á her- numdu svæðunum eru hús oft rif- in í refsingarskyni fyrir árásir Palestínumanna eða til að greiða fyrir stækkun ólöglegra byggða Ísraela. Hvort tveggja er brot á alþjóðalögum og sumar þessara aðgerða eru stríðsglæpir,“ sagði í nýrri skýrslu Amnesty. Mikið mannfall í árás á flóttamannabúðir Palestínumanna á Gaza-svæðinu Amnesty sakar her Ísraels um stríðsglæpi Rafah, Jerúsalem. AFP. SONIA Gandhi, formaður Kongressflokks- ins á Indlandi, sagði stuðningsmönnum sín- um að hún hefði ákveðið að verða ekki næsti forsætisráðherra Indlands, þrátt fyrir sigur flokksins í nýafstöðnum kosningum, af ótta við harða andspyrnu harðlínusinn- aðra hindúa vegna þess að Gandhi er af ítölsku bergi brotin. Háttsettur leiðtogi í flokknum sagði að Gandhi hefði lagt áherslu á hættuna á að þjóðernissinnaðir harðlínumenn innan Janata-flokksins (BJP), sem tapaði í kosningunum, myndu „grípa til örþrifaráða“. Í kjölfar sigurs Gandhi hófu félagar í BJP mikla áróðursherferð gegn henni og hótuðu mótmælaaðgerðum um allt land. Þeir sem koma til greina sem forsætis- ráðherraefni flokksins í stað Gandhi eru Manmohan Singh, sem er eindreginn efna- hagsumbótasinni, og Pranab Mukherjee, sem er fyrrverandi fjármálaráðherra. AP Stuðningsmaður Kongressflokksins heldur á lofti mynd af Soniu Gandhi í Nýju Delhí í gær, þar sem fjölmargir mótmæltu þeirri ákvörðun hennar að verða ekki forsætisráðherra. Sonia Gandhi ætlar ekki að verða forsætisráðherra Indlands Óttaðist andspyrnu harðlínumanna Nýju Delhí. AFP. Einn fylgismanna Gandhi hótaði að fyrirfara sér yrði hún ekki forsætisráðherra. Reuters STOFNAÐ 1913 136. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.