Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
! " #$%
& $
# '( !) %
* + % * , !) - '. / 0 SNORRI Ásmundsson, sem tilkynnt
hafði að hann stefndi á að bjóða sig
fram til embættis forseta Íslands,
dró framboð sitt til baka í gær.
Hann klæddist fánalitunum af
þessu tilefni og boðaði blaðamenn á
sinn fund undir styttunni af Jóni
Sigurðssyni á Austurvelli.
Aðspurður sagði Snorri að hann
hefði verið búinn að safna nægum
meðmælendum með framboði sínu
og að vissulega gæti hann bæði
sinnt embætti forseta og verið lista-
maður „en það eru bara svo miklar
annir hjá mér framundan, að ég vil
ekki svíkja kjósendur með því að
lofa upp í ermina á mér,“ sagði
hann.
Ræða Snorra, sem hann flutti á
Austurvelli fer hér í heild:
„Fyrir nokkrum dögum fann ég
fyrst lyktina af sigrinum fagra og
sál mín lyftist upp á öldutopp. Þessi
sigurvíma var ánægjuleg og góð
uppskera eftir langa og reynslu-
ríka baráttu. En eftir að hafa upp-
lifað sigur og fagnað honum með
kærum stuðningsmönnum mínum
fékk ég tilboð sem erfitt er að
hafna.
Vöknuðu þá efasemdir hjá mér
að vilji minn til að sitja sem forseti
Íslands væri ekki jafninnilegur og
ég hélt. Efinn fékk mig til að endur-
skoða þetta framboð mitt til emb-
ættis forseta Íslands og hvort ég sé
tilbúinn til að fórna fjórum árum
einmitt á þessum tímapunkti þegar
uppgangur er í myndlist og gæfan
fylgir mér á þeirri braut.
Auk þess þarf ekki mikið innsæi
til að sjá að komandi forsetakosn-
ingar verða eintómur skrípaleikur.
Sjálfsvirðingar minnar vegna get
ég ekki samþykkt að taka þátt í
slíkum sirkus.
Ég dreg því hér með framboð
mitt til forseta Íslands til baka, sátt-
ur og þakklátur stuðningsmönnum
mínum og velunnurum. Spurning-
unni um hvort ég verði 6. forseti Ís-
lands verður ekki svarað að sinni.
Ég óska herra Ólafi Ragnari
Grímssyni til hamingju með vænt-
anlegan sigur og ég er fullviss um
að við getum orðið vinir.
Mér þykir vænt um Ástþór og
Baldur og vonast til að þeir finni
þær hillur í lífinu sem þeim eru ætl-
aðar.
En ég lýk þessu framboði með
því að vitna í orð 5 ára dóttur minn-
ar: Pabbi, ekki vera forseti, vertu
bara listamaður.“
Að ræðuflutningi loknum söng
hann lagið „Ísland er land þitt“,
sem hann sagði að hefði verið ein-
kennandi fyrir kosningabaráttu
sína.
Snorri Ásmundsson dregur forsetaframboð sitt til baka
Getur ekki tekið þátt í þeim skrípaleik
sem komandi kosningar verða
Morgunblaðið/RAX
Á FUNDI fjármálaráðherra Norð-
urlandanna var ákveðið að koma á
fót sérstakri samráðsnefnd, nor-
rænni netskattstofu, sem auðvelda
fólki á að ráða fram úr vandamálum
varðandi skattamál sem snerta
fleira en eitt Norðurlandanna.
Stofnuð verður sameiginleg vef-
gátt með upplýsingum á öllum
Norðurlandamálunum um skattaleg
málefni í hverju landi fyrir sig. Þessi
vefgátt verður vistuð á Íslandi.
„Við höfum svo fullkomið rafrænt
kerfi um þessi mál að okkur var fal-
ið, eftir ákveðinn undirbúning, að
taka þetta að okkur. Ríkisskatt-
stjóraembættið mun sjá um þetta
verkefni. Við munum setja upp
heimasíðu og tengja hana inn á
heimasíður allra skattkerfanna í
hinum löndunum og vera með sam-
ræmdar upplýsingar. Ég held að
þetta sé mjög gagnlegt fyrir al-
menning,“ sagði Geir H. Haarde
fjármálaráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Norræn
heimasíða um
skattamál
NORÐURLÖNDIN ætla að beita
sér fyrir því að lágmarksskattar á
áfengi verði hækkaðir og gegn rýmri
innflutningsreglum á áfengi milli
landa Evrópusambandsins. Þetta var
ákveðið á fundi fjármálaráðherra
Norðurlandanna í Keflavík í gær.
„Ég tel að við höfum náð góðum ár-
angri,“ sagði sænski ráðherrann,
Gunnar Lund. Mikið væri rætt um
skattlagningu á vettvangi Evrópu-
sambandsins. Svíar hefðu áhyggjur
af hugmyndum um að gera verslun
með áfengi frjálsari, því lækkun
áfengisskatts hefði dregið til mikillar
aukningar á neyslu í Svíþjóð og Finn-
landi.
„Við viljum að lágmarksskattur-
inn, sem er á öllum vörum í Evrópu-
sambandinu, verði einnig lagður á
áfengi, en í dag er enginn skattur
lagður á léttvín. Ástæðan er auðvitað
sú að stórir vínframleiðendur eru
meðal aðildarríkja sambandsins og
þau vilja ekki að þessi skattur verði
hækkaður. Við ákváðum í dag að
beita okkur fyrir því að komið verði á
lágmarksskattlagningu á áfengi og
að skattur á sterkt áfengi verði
hækkaður innan Evrópusambands-
ins,“ sagði Lund.
Beita sér gegn sölu á Netinu
Þá ákváðu ráðherrarnir að beita
sér gegn tillögu framkvæmdastjórn-
ar ESB sem gerði fólki kleift að
kaupa áfengi á Netinu og fá það sent
heim til sín án þess að greiða af því
skatta. „Það myndi grafa verulega
undan kerfinu sem er við lýði í Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi þar sem
ríkið sér um dreifingu áfengis,“ sagði
Lund.
Geir H. Haarde benti á að álögur á
áfengi hefðu ekki áhrif á áfengisskatt
í Noregi og á Íslandi, sem stæðu utan
við sambandið. Þó væri staðan önnur
í Noregi þar sem fólk gæti farið yfir
til Svíþjóðar til að kaupa áfengi.
Finnar lækkuðu nýlega álögur á
áfengi um þriðjung vegna inngöngu
nágrannalandsins Eistlands í sam-
bandið. Í kjölfarið hefur áfengis-
neysla stóraukist, ofbeldisglæpum
fjölgað og fleiri verið staðnir að ölvun
við akstur. Finnski ráðherrann, Ulla-
Maj Wideroos segist ekki telja að
þessi ákvörðun hefði verið mistök.
„Við verðum að keppa við Eistland og
urðum að gera eitthvað. Við vissum
um vandamálin sem fylgdu. Við verð-
um að gera eitthvað saman, við get-
um ekki gert neitt ein,“ sagði
Wideroos.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjármálaráðherrar Norðurlandanna í Keflavík. Frá vinstri: Jörgen Strand
frá Álandseyjum, Ulla-Maj Wideroos frá Finnlandi, Per-Kristian Foss frá
Noregi, Geir H. Haarde, Íslandi, Gunnar Lund frá Svíþjóð, Per Callesen frá
Danmörku og Bárður Nielsen frá Færeyjum.
Fundur norrænu fjármálaráðherranna var haldinn á Hótel Keflavík í gærdag
Vilja fá hækkun á
áfengisskatti í ESB
Bjólfur er
fundinn
Cannes. Morgunblaðið.
BRESKI leikarinn Gerard Butler
mun fara með hlutverk Bjólfs í kvik-
myndinni Bjólfskviðu eða Beowulf &
Grendel sem Sturla Gunnarsson und-
irbýr nú tökur á.
Butler þessi er
á hraðri uppleið í
kvikmyndaheim-
inum en hann
mun fara með eitt
af aðalhlutverk-
unum í væntan-
legri stórmynd
bandaríska Holly-
wood-leikstjórans
Joel Schumachers sem byggð verður
á hinni sígildu sögu The Phantom of
the Opera.
Butler lék einnig í myndinni Time-
line sem sýnd hefur verið í kvik-
myndahúsum hér á landi undanfarið.
Þá hefur hann fengið afar góða dóma
fyrir frammistöðu sína í áströlsku
kvikmyndinni Dear Frankie sem
sýnd er í Un Certain Regard-hluta
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes.
Meðal annarra leikara í Bjólfskviðu
Sturlu er Ingvar Sigurðsson en Frið-
rik Þór Friðriksson er meðframleið-
andi myndarinnar.
Friðrik Þór sagði það vissulega
mikinn feng fyrir myndina að krækja
í leikara af þessari stærðargráðu, sem
væri einmitt svo eftirsóttur um þess-
ar mundir og við það að slá í gegn.
Slíkt hlyti að sýna hversu mikið
traust menn hefðu á þessu verkefni.
„Það á örugglega eftir að vekja enn
meiri athygli á henni,“ segir Friðrik
Þór aðspurður en hann er staddur á
kvikmyndahátíðinni í Cannes að
kynna myndina sem og aðra sem
hann er með í burðarliðnum. Hann
segir að mestu búið að ráða í hlut-
verkin og allt sé að verða klárt fyrir
tökur sem hefjast á Íslandi í sumar.
Gerard Butler