Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SAUTJÁN ára piltur sem
handtekinn var á mánudag
vegna vopnaðs bankaráns í
útibúi SPRON við Álfabakka í
Mjódd viðurkenndi verknaðinn
við yfirheyrslur hjá lögreglu í
gær og vísaði henni á ránsfeng
sinn. Hann er talinn hafa verið
einn að verki og telst málið
upplýst.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns hef-
ur pilturinn áður komið við
sögu lögreglu. Í ljósi játningar
hans og þess að ránsfengurinn
fannst var ekki talin þörf á að fá
hann vistaðan í gæsluvarðhaldi
vegna frekari rannsóknar
málsins.
Ránið framdi pilturinn rétt
fyrir klukkan 14 á mánudag og
tæpri klukkustund síðar hafði
lögreglan elt hann uppi og
handtekið. Var hann dulbúinn
og með grímu fyrir andliti og
beitti hann búrhnífi við ránið.
Ekki fæst upp gefið hversu
mikla fjármuni hann komst yf-
ir.
Lögreglan mun ljúka rann-
sókn sinni og senda málið til
áframhaldandi meðferðar hjá
ákæruvaldi.
TVEIR unglingspiltar liggja
alvarlega slasaðir á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi
eftir bílveltu í sunnanverðum
Seyðisfirði um miðnætti á
mánudag. Þeir voru sendir með
sjúkraflugi til Reykjavíkur eft-
ir að fólksbíll þeirra valt, en
þrjár stúlkur sem voru með
þeim í bílnum voru lagðar inn á
sjúkrahúsið á Seyðisfirði. Pilt-
arnir eru hafðir til eftirlits á
gjörgæsludeild, en eru ekki í
öndunarvél og er líðan þeirra
stöðug að sögn læknis.
Tildrög slyssins eru til rann-
sóknar hjá lögreglunni á Seyð-
isfirði og virðist sem bílstjórinn
hafi keyrt út í lausamöl með
þeim afleiðingum að bíllinn féll
niður um fjögurra metra hlíð
eftir að hann valt.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur sýknaði í gær karlmann af
ákæru fyrir líkamsárás með því
að veitast að stöðumælaverði
og hrinda honum í götuna með
þeim afleiðingum að hann
meiddist.
Atvikið átti sér stað í febrúar
2001 á Skólavörðustíg og játaði
ákærði sök.
Sýknudómurinn var byggður
á tveggja ára fyrningarfresti,
en ákæra var gefin út rúmum
þremur árum eftir brotið.
Skýrsla sem lögregla hefði tek-
ið af ákærða í desember 2002
hefði ekki verið til þess fallin að
rjúfa fyrningarfrestinn. Þá
lægi ekkert fyrir um að ákærði
hefði reynt að koma sér undan
rannsókn.
Málið dæmdi Guðjón St.
Marteinsson héraðsdómari.
Verjandi ákærða var Jón Eg-
ilsson hdl. og sækjandi Katrín
Hilmarsdóttir, fulltrúi lög-
reglustjórans í Reykjavík.
17 ára pilt-
ur viður-
kenndi
ránið
Rán í SPRON
Á gjör-
gæslu eftir
bílveltu
Sýknaður af
ákæru fyrir
líkamsárás
VEÐRIÐ í gærdag var kjörið til
garðvinnu, og þeir sem áttu lausa
stund frá vinnu eða öðrum skyld-
um gátu komið garðinum í samt
lag fyrir sumarið.
Hún Kristín Gestsdóttir var í
óða önn við að fjarlægja fífil úr
fögru beði páskalilja þegar blaða-
mann og ljósmyndara bar að
garði. „Ég er ánægð með beðin,
en verst er hvað það rignir mikið
meðan grasið er enn óslegið. Það
hefur vaxið svo mikið að það verð-
ur að fara að slá,“ sagði hún.
Best að ráðast
strax á arfann
Guðlaug Pálsdóttir og Andri
Sveinsson höfðu dregið fram
sláttuvélina, og skiptu með sér
verkum.
„Það þýðir ekkert annað en að
ráðast strax á arfann,“ sagði Guð-
laug. „Annars missir maður tökin
á þessu. Það sama má segja með
grasið, annars verður það allt of
hátt með þessari sprettu,“ bætti
hún við. Hún var búin að láta
klippa niður hekkið hjá sér, og
beið eftir því að það færi að taka
við sér.
„Fíflarnir eru farnir að
blómstra í grasinu, svo það þarf
víst að fara að slá,“ sagði Dýrleif
Hallgríms á Seltjarnarnesi. Hún
og Gunnar Ólafsson voru á kafi í
víðinum, sem kom vel undan vetri
þrátt fyrir sjórokið. „Hann er bú-
inn að sjóast,“ sagði Gunnar.
„Þetta er orðinn þrjátíu ára
gamall víðir og hefur búið við sjó-
rokið alla sína tíð. Það virðist
gera hann harðgerari,“ bætti Dýr-
leif við að lokum.
Guðlaug Pálsdóttir og Andri Sveinsson skipta með sér verkum í garðinum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Dýrleif Hallgríms lítur upp frá garðverkunum á Seltjarnarnesi.
Garðverkin kalla í sumarbyrjun
Kristín Gestsdóttir aðgætir páskaliljubeðið í garði sínum í Vesturbænum.
ÞRÍR forsetaframbjóðendur hafa
sent inn meðmælendalista, Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands,
Ástþór Magnússon og Baldur
Ágústsson, en stuðningsmenn Bald-
urs skiluðu inn meðmælendalista til
dómsmálaráðuneytisins í gær. Yfir-
kjörstjórn hefur gefið út vottorð til
Ástþórs um að hann hafi náð tilskild-
um fjölda kosningabærra meðmæl-
enda í öllum landsfjórðungum. Þór-
unn Guðmundsdóttir, oddviti
yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjör-
dæmis norður, segir að búist sé við
því að lokið verði við að fara yfir með-
mælendalista Ólafs Ragnars og Bald-
urs í dag.
Í fréttatilkynningu frá stuðnings-
mönnum Baldurs segir að undir-
skriftirnar sem safnað var hafi verið
vel á þriðja þúsundið, og eru stuðn-
ingsmenn hans ánægðir með þann
fjölda þar sem undirskriftasöfnunin
hófst fimm dögum áður en listunum
var skilað. Lögum samkvæmt verða
undirskriftirnar að vera á bilinu
1.500–3.000 talsins. Fjöldi undir-
skrifta var 35–42% umfram lágmark í
hverjum landsfjórðungi fyrir sig.
„Baldur Ágústsson vill við þetta tæki-
færi koma á framfæri þakklæti til
allra þeirra fjölmörgu sem lagt hafa
framboðinu lið með áritun meðmæla,
hvetjandi samtölum og hlýjum kveðj-
um,“ segir í fréttatilkynningu.
Framboðsfrestur rennur út á mið-
nætti aðfaranótt laugardagsins 22.
maí, en þá verða fimm vikur til kjör-
dags. Hvert framboð verður að skila
inn til dómsmálaráðuneytis yfirlýs-
ingu frá frambjóðanda, meðmælenda-
listum og vottorðum yfirkjörstjórna
um að nægilegum fjölda kosninga-
bærra meðmælenda hafi verið náð.
Þrír frambjóðendur hafa
sent inn meðmælendalista
FIMM yfirkjörstjórnir af sex þurfa
að fara yfir meðmælendalista úr
Sunnlendingafjórðungi fyrir forseta-
kosningarnar í vor og þarf yfirkjör-
stjórnin í Norðvesturkjördæmi að
fara yfir meðmælendalista úr þrem-
ur fjórðungum. Þórunn Guðmunds-
dóttir, oddviti yfirkjörstjórnar
Reykjavíkurkjördæmis norður, tel-
ur að gleymst hafi að samkeyra
breytingar á kjördæmaskipan við
lög um forsetakosningar þegar kjör-
dæmaskipan var breytt með laga-
breytingu árið 2000.
Í vor verður í fyrsta skipti kosið
um forseta Íslands samkvæmt nýrri
kjördæmaskipan, þar sem landinu
er skipt upp í sex kjördæmi. For-
setaframbjóðendur þurfa að afla
1.500-3.000 meðmælenda, sem þurfa
að koma eftir ákveðnum hlutföllum
úr öllum landsfjórðungum.
Hagstofan hjálpar til
Þórunn segir að þetta kerfi hafi í
sjálfu sér ekki valdið vandræðum.
„Það er náttúrlega svolítið önugt að
skipta meðmælendum eftir fjórð-
ungum og svo gefa yfirkjörstjórnir
út vottorð hver fyrir sig. Við reynum
að leysa þetta á sem praktískastan
hátt af því að það skortir nákvæmar
leiðbeiningar,“ segir hún. Þannig
hafi Þjóðskrá Hagstofu Íslands ver-
ið fengin til að fara yfir meðmæl-
endalistana.
Aðspurð hvort hún telji að það
þyrfti að breyta lögunum segist hún
telja að betra væri ef meðmælendur
væru flokkaðir eftir kjördæmum, en
ekki landsfjórðungum. „Í öðru lagi
finnst mér vanta inn í lögin frestinn
sem frambjóðendur hafa til að skila
meðmælendalistum til yfirkjör-
stjórna,“ segir Þórunn, en í lögunum
er eingöngu kveðið á um framboðs-
frest, en þá þarf vottorð yfirkjör-
stjórna þegar að liggja fyrir. Þórunn
segir að það geti tekið einhverja
daga að fara yfir meðmælendalista
og því gæti verið hentugt að hafa
ákveðinn frest til að skila inn með-
mælendalistum og síðan til að bjóða
sig fram. Þá geti þeir sem ekki nái
tilskildum fjölda t.d. safnað þeim
undirskriftum sem upp á vanti.
Fimm yfirkjörstjórnir
fara yfir meðmæli
Sunnlendinga