Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 10

Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „ÞESSAR tillögur eru samdar í for- sætisráðuneytinu eins og annað í þessu máli,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaþingmaður Sam- fylkingarinnar, á þingfundi Alþingis í gærmorgun og vísaði þar til breyt- ingartillagna stjórnarmeirihlutans við fjölmiðlafrumvarpið sem boðaðar hafa verið við þriðju umræðu. Þingmenn Samfylkingarinnar kvöddu sér hljóðs við upphaf þing- fundar í gær og spurðust fyrir um það hvenær tillögurnar yrðu kynnt- ar í allsherjarnefnd þingsins. Sögðu þeir að tillögurnar hefðu ekki komið til umræðu í nefndinni kvöldið áður. „Ég held að við hljótum að kalla eftir því að þær tillögur sem nú hafa verið smíðaðar uppi í forsætisráðuneyti komi til umfjöllunar í allsherjar- nefnd og verði kynntar,“ sagði Ingi- björg Sólrún. „Ég held að það sé rétt að hæstvirtur forsætisráðherra komi á fund nefndarinnar og kynni tillög- urnar þar.“ Þingmenn Samfylking- arinnar sögðu einnig að ekki væri eins mikið samkomulag um breyt- ingarnar í Framsóknarflokknum og menn vildu vera láta. „Það kemur í ljós í morgun í fréttum Úvarps að a.m.k. einn þingmaður framsóknar- manna, háttvirtur þingmaður Jónína Bjartmarz, er enn að skoða tillög- urnar. Hún er ekki tilbúin að lýsa því yfir að hún sé sátt við þessar tillög- ur,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og Guðjón A. Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, tóku undir þennan málflutning. „Við fréttum í gær að samkomulag hefði náðst milli stjórnarflokkanna um fjölmiðlamálið svokallaða. Síðan kemur í ljós að þetta samkomulag er fyrst og fremst milli formanna flokk- anna,“ sagði Ögmundur. „Þó að for- ystumenn ríkisstjórnarflokkanna gleðjist í þriðja eða fjórða sinn yfir hinum merku áföngum um sáttar- gjörð sína þá nær það ekki til okkar þingmanna,“ sagði Guðjón Arnar. Samdar í þinghúsinu Davíð Oddsson forsætisráðherra varð til andsvara og sagði það rangt að breytingartillögurnar hefðu verið samdar í forsætisráðuneytinu; þær hefðu verið samdar í þinghúsinu. „Það er […] rangt sem haldið var fram, að þær breytingartillögur sem hafa verið ákveðnar af flokkunum hafi verið samdar í forsætisráðu- neytinu,“ sagði hann. „Þær voru samdar hér í þinghúsinu en það breytir svo sem ekki neinu.“ Davíð sagði að efni tillagnanna hefði verið kynnt þannig að það hefði ekki farið framhjá neinum. Síðan hefði verið sagt að það efni yrði fært í form. „Ég veit ekki annað en sú vinna liggi fyrir, málið verði kynnt og komi til umræðu með venjulegum hætti,“ sagði ráðherra. „Það er ekk- ert undarlegt við þetta. Menn tala um að við höfum náð sátt, í fjórða sinn var sagt áðan, ég og formaður Framsóknarflokksins, hæstvirtur utanríkisráðherra. Við höfum náð sátt í hundraðasta sinn þess vegna. Það eru bara okkar vinnubrögð að við tölum um mál og leysum þau. Mér finnst ekkert lakara að gera það fimm sinnum, tíu sinnum, hundrað sinnum eða þúsund sinnum. Því oftar því betra. Ef menn muna umræðuna þá sögðum við báðir, bæði ég og hæstvirtur utanríkisráðherra, að eft- ir aðra umræðu þessa máls, sem hef- ur verið hitamál, mundum við taka á því púlsinn, fara yfir umræðurnar og ákveða síðan næstu skref. Það er ná- kvæmlega það sem við höfum gert í samræmi við það sem við höfum sagt. Þannig er þetta nú.“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar í gær Kölluðu eftir því að til- lögurnar yrðu kynntar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Þresti Emilssyni: „Í ljósi umræðu sem orðið hefur, meðal annars á Alþingi, vegna tölvupósts sem ég sendi Stefáni Jóni Hafstein árið 2002 vil ég taka eftirfarandi fram: „Mér er nú ljóst að upplýs- ingar, sem ég á þeim tíma lagði trúnað á og fram koma í téðum tölvupósti, voru ekki á rökum reistar. Ég harma að Björn Bjarna- son, sem fékk afrit af þessum tölvupósti, skuli nú rúmum tveimur árum seinna, draga þessi skrif inn í umræðu um fjölmiðlafrumvarp forsætisráð- herra. Að þessu sögðu tel ég það hafa verið mistök að skrifa um- rætt tölvubréf og senda það. Ég bið hlutaðeigandi velvirð- ingar. Fleira hef ég ekki um þetta mál að segja. Þröstur Emilsson.“ Yfirlýsing frá Þresti Emilssyni Mistök að senda tölvu- póstinn HEILDARKOSTNAÐUR Sam- keppnisstofnunar við rannsókn á meintu samráði tryggingafélaganna er tæplega 32 milljónir króna. Þar af er aðkeyptur sérfræðikostnaður um 2,6 milljónir króna. Rannsóknin nær frá árinu 1997 fram til ársins 2004. Þetta kemur fram í skriflegu svari viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverr- isdóttur, við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur, þingmanns Samfylk- ingarinnar. Svarinu var dreift á Alþingi í gær. Tölurnar í svarinu byggjast á upplýsingum frá Sam- keppnisstofnun. Jóhannna spyr um fleira en kostn- að við rannsóknina. Hún spyr m.a. um afstöðu ráðherra til þeirra um- mæla forsvarsmanna Sjóvár-Al- mennra og Vátryggingafélags Ís- lands að hvorki hafi verið tilefni til umfangsmikillar rannsóknar Sam- keppnisstofnunar á meintu samráði tryggingafélaganna né að sekta þau og að ekki hafi verið um verðsamráð eða samstilltar aðgerðir trygginga- félaganna að ræða. Í svarinu segir: „Samkvæmt lögum var rannsókn á meintu samráði tryggingafélaga á höndum Samkeppnisstofnunar og kom ekki á borð viðskiptaráðuneytis. Í niðurstöðu samkeppnisyfirvalda kemur fram að tilefni hafi verið til þessarar rannsóknar og nú hefur samkeppnisráð lokið málinu með sátt. Viðskiptaráðherra hefur marg- lýst því yfir að það sé ekki hlutverk ráðherra að hafa afskipti af eða áhrif á efnislega umfjöllun mála hjá sam- keppnisyfirvöldum og er því vísað til greinargerðar og ákvörðunar sam- keppnisyfirvalda í málinu.“ Endurtaki sig ekki Jóhanna spyr einnig hvort ástæða hafi verið til að ætla að vegna fjár- skorts Samkeppnisstofnunar og skorts á mannafla hafi tekið svo langan tíma að fá niðurstöðu í meintu samráði tryggingafélaganna. Í svarinu segir að ýmsir samverk- andi þættir hafi valdið því hversu langan tíma hafi tekið að ljúka mál- inu. „Þar var fjárskortur ekki ráð- andi þáttur en fram hefur komið að mannaskipti og önnur mál sem höfðu forgang hjá stofnuninni urðu til að seinka lokafrágangi málsins. Að mati stofnunarinnar er svo langur vinnslutími máls bagalegur en slíkt er ekki óþekkt í öðrum ríkjum. Gerð- ar hafa verið ráðstafanir til að svo langur dráttur á afgreiðslu mála endurtaki sig ekki hjá stofnuninni.“ Jóhanna spyr hvort ráðherra telji ástæðu til endurskoðunar á sam- keppnislögum í ljósi þess að sam- keppnisyfirvöld töldu ekki ástæðu til að beita fjársektum við brotum tryggingafélaganna vegna þess hve langan tíma rannsóknin tók. Í svarinu segir að ráðherra telji ekki þörf á slíkum lagabreytingum. Undir lok svarsins segir að nauð- synlegt sé að efla starfsemi stofnun- arinnar og ráðherra hafi beitt sér fyrir auknum framlögun til hennar, eða úr 118,7 milljónum árið 2000 í 157,3 millj. á fjárlögum 2004. Þess sé vænst að Alþingi styðji enn frekar við bakið á stofnuninni. Rannsókn Samkeppnisstofnunar á tryggingafélögunum Heildarkostnaður nam tæplega 32 milljónum YFIR sextíu mál voru á dagskrá Al- þingis í gær og er svipaður fjöldi á dagskrá þingfundar í dag. Þingfundur hefst kl. 10 og er þá gert ráð fyrir því að fram fari utan- dagskrárumræða um stöðuna í Írak. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, er málshefjandi þeirrar umræðu. Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra verður til andsvara. Eftir þá umræðu fara fram at- kvæðagreiðslur um einstök þing- mál og má þar nefna frumvarp for- sætisráðherra til laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Fjölmiðlafrumvarpið er fyrsta mál á dagskrá eftir atkvæða- greiðslurnar. Yfir sextíu mál á dag- skrá þingsins Morgunblaðið/Árni Torfason Mörg mál á dagskrá í dag: Þingmenn Frjálslynda flokksins, Guðjón A. Kristjánsson og Sigurjón Þórðarson. MINNIHLUTI allsherjarnefndar Alþingis segir frumvarp dómsmála- ráðherra, Björns Bjarnasonar, um meðferð opinberra mála, illa unnið og furðar sig á því að ráðherra skuli láta sér detta í huga að leggja það fram á Alþingi. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að ákæruvaldshafi geti ákveðið að símhlustun skuli fara fram án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði um símhlustun og öðrum aðgerðum geti valdið sakarspjöllum. Meirihluti alls- herjarnefndar fellst þó ekki á þessa breytingu. Telur meirihlutinn mikil- vægt að halda í þá meginreglu að dómsúrskurði þurfi fyrir símhlerun „þar sem hún felur í sér verulega skerðingu á friðhelgi manna og frelsti til athfna og tjáningar án þess að þeir sem aðgerðirnar beinist af viti af þeim“, að því er segir í nefnd- aráliti meirihlutans. Í nefndaráliti minnihlutans, sem dreift var á Alþingi í vikunni, er þessari niðurstöðu meirihlutans fagnað. „Ánægjulegt er að meirihlut- inn hafi áttað sig á hversu langt frumvarp ráðherra gekk í þessum efnum og í bága við grundvallarrétt- indi borgaranna.“ Ekki haft samráð við réttarfarsnefnd Í áliti minnihlutans er m.a. gagn- rýnt að ekkert samráð hafi verið haft við réttarfarsnefnd við samningu frumvarpsins. Segir minnihlutinn að ekki hafi heldur verið haft samráð við dómstólaráð, Persónuvernd, rík- issaksóknara eða Lögmannafélagið. Varar minnihlutinn við því að ráðu- neyti dómstóla geri grundvallar- breytingar á réttarfarslögum án samráðs við helstu sérfræðinga á því sviði sem lögin ná til. Frumvarp um meðferð opinberra mála Áliti meiri- hlutans fagnað STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir það ankanna- legt að stjórnarskrárákvæðið um heimild forseta til að synja lagafrum- varpi skuli „standa í lausu lofti“. Hann segir að með reglubundnu millibili gjósi upp umræður um hvort ákvæðið sé virkt í höndum forseta eða ekki. Þá séu dregnir fram lög- spekingar, annars vegar þeir sem telja ákvæðið virkt og hins vegar þeir sem telja svo ekki vera. „Mér finnst að menn eigi að botna þetta mál,“ segir hann. „Ef niður- staðan verður sú að halda ákvæðinu í stjórnarskránni tel ég að fylla þurfi inn í löggjöfina í kringum það, þann- ig að það liggi ljóst fyrir hvernig svona kosning fer fram,“ segir hann- Hvernig sú löggjöf ætti að vera segir hann að „menn hafi til að mynda bent á að setja þyrftu ákvæði um lág- marksþátttöku í þjóðaratkvæða- greiðslunni til þess að hún teldist gild og annað í þeim dúr“. Steingrímur minnir á að hafi af og til verið rætt um nauðsyn á endur- skoðun stjórnarskrárinnar, einkum á köflunum sem fjalla um samskipti æðstu handhafa valdsins í landinu. Ágætis farvegur sé að setja slíka endurskoðun í hendurnar stjórnar- skárnefnd, sem hefði það verkefni að endurskoða stjórnarskrána. Stein- grímur segist telja það stóran ágalla á okkar löggjöf ef enginn farvegur væri fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um stór mál. Hann segir jafnframt að hann hafi alltaf verið í þeim hópi sem telji að umrætt stjórnarskrár- ákvæði sé ekki dauður bókstafur. Löggjöf verði sett um framkvæmd kosninga ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.