Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 14

Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 14
ERLENT 14 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞESS var minnst í gær við hátíð- lega athöfn, að þá voru liðin 60 ár frá einum blóðugustu átökunum í síðari heimsstyrjöld, orrustunni um bæinn Monte Cassino á Ítalíu. Vörð- ust Þjóðverjar í rústum nunnu- klausturs á samnefndu felli en bandamenn höfðu áður gert loft- árásir á það. Það var pólsk her- sveit, sem sótti að klaustrinu, og í henni var Adam Maliszewski, þá 24 ára gamall. „Eldurinn úr þýsku byssunum lýsti upp næturhimininn svo að það var næstum albjart. Við skriftuðum allir enda vissir um, að dauðinn biði okkar,“ sagði Maliszewski, sem tók þátt í hátíðahöldunum í gær. Meira en 1.000 pólskir hermenn féllu í átökunum, sem stóðu í viku, og ekki færri Þjóðverjar. Sagnfræðingar segja, að með sigrinum í Monte Cassino hafi Bandamannaherirnir fyrir norðan og sunnan náð saman og um leið hafi vegurinn til Rómar opnast. Var borgin tekin tæplega mánuði síðar. Þúsundir manna víðs vegar að, jafnt Þjóðverjar sem gamlir banda- menn, tóku þátt í hátíðahöldunum í gær og þar á meðal Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands. Sagði hann, að sigurinn við Monte Cassino hefði ekki aðeins verið mikilvægur hernaðarlega, heldur haft mikla þýðingu fyrir sjálfsmynd pólsku þjóðarinnar. Myndin er frá hátíðahöldunum í gær og ber klaustrið við himin. Eft- ir eyðilegginguna 1944 var það endurbyggt í fyrri mynd en saga þess nær aftur til ársins 529. AP 60 ár frá töku Monte Cassino YFIRLEITT er maí rólegur mán- uður í strandbænum Provincetown í Massachusetts, nokkurs konar dauf- ur hvíldartími áður en ferða- mannatíminn hefst af alvöru í júní. En ekki í ár. Samkynhneigð pör í gifting- arhugleiðingum og fjölskyldur þeirra og vinir hafa flykkst til bæj- arins eftir að giftingar homma og lesbía voru leyfðar í ríkinu, að því er fram kemur í The New York Times. Provincetown er einn þriggja bæja þar sem yfirvöld hafa ákveðið að gefa út giftingarleyfi til samkyn- hneigðra þótt þeir búi utan Massachusetts og óhlýðnast þar með ríkisstjóranum Mitt Romney. Hann segir að úrskurður hæstaréttar um rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband eigi einungis að gilda um íbúa ríkisins. Hefur hann hótað mál- sóknum á hendur þeirra borga og bæja sem hunsa orð hans en yfirvöld þar kæra sig kollótt. Andrúmsloft hátíðahalda ríkir í bænum og verslanir og fyrirtæki eru strax farnar að höfða til hinna ný- komnu gesta. Utan við þekktan bar í borginni er búið að koma fyrir risa- stórum borða sem á stendur: „Til hamingu með giftinguna,“ og í stað venjulegra klisjukenndra áletrana framan á stuttermabolum í minja- gripaverslunum má nú víða sjá boli með nýstárlegum setningum á borð við „Já, ég vil giftast honum/henni.“ Ekki kosið um ástina Í fleiri bæjum má sjá hvar fyr- irtæki reyna að höfða til homma og lesbía. „Þetta er ást. Um hana á ekki að kjósa,“ stendur til dæmis á aug- lýsingaskilti í glugga Shreve, Crump og Low, einnar elstu skart- gripaverslunarinnar í Boston. Vísar textinn til lagaflækjanna og hinna hörðu deilna sem hafa staðið um rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband en auglýsingin hefur þegar birst í dagblöðum og tímarit- um. Michael Wilke, framkvæmda- stjóri samtaka sem fræða fólk í aug- lýsingageiranum um samfélag samkynhneigðra, segir samt sem áð- ur ólíklegt að stórar auglýsinga- herferðir verði settar í gang. Hins vegar felist stórkostleg tækifæri fyr- ir borgir á borð við Boston og Provincetown í því að markaðssetja þá sem sérstaka áfangastaði fyrir samkynhneigða. „Hommar og lesbíur virða gjarn- an auglýsendur sem taka áhættu,“ segir hann, en mörg fyrirtæki sem selja þekkt vörumerki hika við að hefja auglýsingaherferðir sem beint er til samkynhneigðra af ótta við viðbrögð þeirra sem berjast gegn réttindum þeirra. Ástin blómstrar í Provincetown AP Ed Balmelli (t.v.) og ástvinur hans Michael Horgan, staðfestu í gær með kossi ákvörðun sína um að fá giftingarleyfi í ráðhúsinu í Boston. RAUÐI krossinn í Danmörku hefur sakað dönsk stjórnvöld og danska þingið um brot á Genfarsáttmál- anum um meðferð stríðsfanga með því að mótmæla ekki mannréttinda- brotum bandarískra hermanna í Írak og Afganistan. Segir fram- kvæmdastjóri samtakanna að þegar Genfarsáttmálinn sé settur til hlið- ar skapist forsendur fyrir því að stríðsglæpir séu framdir. Í opnu bréfi, sem birt er á for- síðu blaðsins Information, fordæm- ir Jørgen Paulsen, framkvæmda- stjóri Rauða kross Danmerkur, það sem hann kallar „meðvirkni þagn- arinnar“ og segir að dönsk stjórn- völd hafi fyrir mörgum mánuðum fengið upplýsingar um að siðaðar þjóðir fremdu mannréttindabrot í þessum löndum. Paulsen vísar einkum til hegð- unar bandarískra hermanna í Afg- anistan, meðferðar á föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi í Guantanamo-flóa á Kúbu, og mis- þyrmingar bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib- fangelsinu nálægt Bagdad. Danir hafa stutt Bandaríkin í hernaðaraðgerðunum í Írak og nú eru um 500 danskir hermenn undir stjórn Breta nálægt Basra í Suður- Írak. Segir Poulsen að þar sem Danir hafi staðfest Genfarsáttmál- ann beri þeim skylda til að sjá til þess að bandamenn þeirra virði þann sáttmála. Hann segir að frá því hryðju- verkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin árið 2001 hafi siðferð- inu hnignað og dregið hafi úr vilja lýðræðislegra og siðmenntaðra þjóða að virða grundvallarmann- réttindi. „Þessum sáttmálum, sem draga markalínuna milli siðmenningar og stjórnleysis, hefur verið kastað og hnefarétturinn hefur komið í stað- inn. Þetta hófst í Afganistan þar sem Bandaríkin sniðgengu [sátt- málana] með fullu samþykki danskra stjórnvalda og meirihluta þingsins og því lauk með kerfis- bundum misþyrmingum á föngum í Írak.“ Stjórnvöld sökuð um „meðvirkni þagnarinnar“ Danski Rauði krossinn segir ríkis- stjórnina hafa brotið Genfarsáttmála MANUEL Contreras, stofn- andi leynilögreglu Augusto Pinochets, fyrrverandi einræð- isherra í Chile, var dæmdur í 15 ára fangelsi í annað sinn í gær fyrir mannréttindabrot. Contreras var dæmdur fyrir hvarf blaðakonunnar Díönu Aaron á tímum einræðis- stjórnarinnar á árunum 1973 til 1990. Var hún handtekin 18. nóvember 1974 og flutt í Villa Grimaldi, sem var ein af pynt- ingamiðstöðvum DINA, leyni- lögreglu Contreras. Contreras sagði í gær, að dómurinn væri enn eitt dæmið um hatursfulla hefnd en auk hans fékk Miguel Kraffnoff, fyrrverandi herforingi, 15 ára dóm og þrír menn aðrir 10 ára. Contreras hefur verið í stofufangelsi síðan hann var dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir ári fyrir mannrán en 2001 var hann dæmdur í sjö ára fang- elsi fyrir að hafa skipulagt morð á Orlando Letelier, fyrr- verandi utanríkisráðherra Chile, og bandarískum einka- ritara hans, Ronni Moffitt, 1976. Var bifreið þeirra sprengd upp í Washington. Letelier var utanríkisráðherra Salvadors Allendes forseta en hann beið bana í valdaráni Pinochets. Lögreglu- foringi dæmdur Santiago. AFP. FULLTRÚAR Evrópusambands- ins (ESB) hafa lagt blessun sína yfir samkomulag sem náðist við Sviss um ráðstafanir til að hamla gegn fjármagnsflótta frá ESB- ríkjum til landa eins og Sviss, þar sem bankaleynd hefur gert borg- urum ESB-ríkja kleift að „fela fé“ fyrir skattheimtu í heimalandinu. Þar með er ekkert lengur því til fyrirstöðu að samræmdar reglur um fjármagnstekjuskatt taki gildi í ESB, en að slíkum reglum hefur verið unnið í áratug, eða allt frá því fjármagnsflutningar milli landa innan ESB (og Evrópska efna- hagssvæðisins) voru gefnir frjálsir. Gegn því að gefa eftir í þessu máli fengu Svisslendingar vilyrði fyrir því að fá aðild að Schengen- vegabréfasamstarfinu samkvæmt skilmálum sem þeim hugnast. Samkomulagið sem fastafulltrú- ar ESB-ríkjanna 25 samþykktu er málamiðlun þar sem einnig er komið til móts við hagsmuni Lúx- emborgar, sem á mikið undir því að hinar nýju reglur ESB verki sem minnst hamlandi á hina blómstrandi bankastarfsemi í land- inu. Stefnt er að því að nýju regl- urnar taki gildi um næstu áramót. Þær munu taka til samræmds fjár- magnstekjuskatts í ESB-löndun- um og gagnkvæmrar upplýsinga- skyldu. Svisslendingar hafa nú, rétt eins og Austurríkismenn, Belgar og Lúxemborgarar, sam- þykkt að innheimta fjármagns- tekjuskatt af fjármagnstekjum við- skiptavina banka í þessum löndum sem eiga lögheimili í öðrum ESB- löndum, og koma honum til skila, í samræmi við gömlu regluna um að „gjalda beri keisaranum það sem keisarans er“. Fyrir utan þessi þrjú ESB-lönd og Sviss hafa öll hin ESB-ríkin farið þá leið að skattyfirvöld deili með sér upplýsingum í því skyni að hindra að borgarar þessara landa geti falið fé sitt fyrir skatt- heimtu með því að geyma það í öðru ESB-landi (eða Sviss). Þessa leið vildu fyrrnefndu löndin fjögur ekki gangast undir af ótta við að hún græfi undan bankaleynd, sem hefur reynzt þessum löndum öllum dágóð tekjulind. ESB sam- ræmir fjár- magns- tekjuskatt Samkomulag við Sviss opnar fyrir aðgerðir gegn skattaflótta Brussel. AFP. www.thumalina.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.