Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 19 Álftanes | Uppi eru hugmyndir um að færa út stjórnsýslumörk Bessastaðahrepps, sem eftir sautjánda júní mun heita Álftanes, til austurs. Hreppsnefndarfulltúar Álftanesshreyfing- arinnar lögðu á síðasta hreppsnefndarfundi fyrir hreppsnefnd tillögu þar sem lagt var til að hreppsnefnd óskaði eftir viðræðum við bæjarstjórn Garðabæjar, um breytingu á stjórnsýslumörkum sveitarfélaganna. Þann- ig verði mörkin færð til austurs að aust- urmörkum lands Selskarðs og dregin þann- ig frá Gálgahrauni þvert í sjó til suð-versturs. Lagt er til að landið verði selt Bessa- staðahreppi, eða komi í skiptum fyrir lönd sem Bessastaðahreppur á í Álftnesskógum, eða með öðrum hætti allt eftir nánara sam- komulagi aðila. Þá segir í tillögunni að landfræðilega sé eðlilegra að hið nýja sveitarfélag Álftanes hafi stjórnsýslurétt á landi austur fyrir vatnasvæði Skógtjarnar eins og lagt er til. Hægt að bæta náttúruvernd Í greinargerð sem fylgir tillögunni er vís- að í áform sem uppi eru um stækkun úti- vistarsvæða á Álftanesi og að hlífa af nátt- úrulegum ástæðum landi meðfram sjó og tjörnum, þar sem búsvæði fugla eru þéttust. Skógtjarnarsvæðið er eitt af þessum fyr- irhuguðu svæðum. Í greinargerðinni segir m.a.: „Breytt stjórnsýslumörk sem færi þetta svæði undir vald sömu skipulagsyfirvalda auðvelda skipulag og verndun náttúru svæðisins. Sveitarfélagið Álftanes mun eins með þessum hætti eiga möguleika síðar á þróun vistvænnar byggðar vestan í Garðaholtinu. Slík byggð gæti tengst núverandi byggð austan og sunnan við Skógtjörn og fyrirhug- aðri byggð norðan við Skógtjörn og á Kirkjubrú, enda væri þessi byggð felld að grænum útivistarsvæðum næst Skógtjörn mann sveitarfélagsins að taka saman grein- argerð um málið fyrir umfjöllun í hrepps- ráði. Að sögn Sigurðar Magnússonar, hrepps- nefndarfulltrúa Álftanesshreyfingarinnar, er mikilvægt, bæði út frá heildarmynd sveitar- félagsins og útivistar- og náttúruverndar- sjónarmiðum að sveitarfélagið hafi fullt stjórnskipulegt forræði yfir þessu svæði. „Það er grundvallaratriðið að við náum austur fyrir vatnasvæði Skógtjarnarinnar og mýrarinnar sem tengir Skógtjörnina við Lambhúsatjörn, sem þýðir að við getum bætt náttúruverndina á þessu svæði,“ segir Sigurður. „Undanfarin tíu ár er mikið búið að vera að tala um sameiningu við sveit- arfélögin í kringum okkur, þar á meðal Garðabæ, en nú hefur það verið lagt til hlið- ar og við ætlum að einbeita okkur að því að verða sterkt og sjálfstætt sveitarfélag.“ Málið er nú í undirbúningi hjá lögfræðingi og sveitarstjóra og er búist við að það verði lagt fyrir hreppsráð bráðlega. og Lambhúsatjörn.“ Tillögu Álftanesshreyf- ingarinnar var einróma vísað til hreppsráðs og var sveitarstjóra falið í samráði við lög- Hugmyndir uppi um útfærslu stjórnsýslumarka Bessastaðahrepps Mikilvægt að gæta vatnasvæða Morgunblaðið/Ómar Líflegt fuglalíf: Á Álftanesi er mikið fuglalíf og verpir þar fjöldi fuglategunda. :                                ! Kópavogur | Snælandsskóli í Kópavogi hlaut á dögunum Grænfánann, en skólinn er tíundi skólinn á Íslandi sem hlýtur þessa eftirsóttu umhverfisviðurkenningu. Það er Landvernd sem veitir fánann til tveggja ára í senn eftir ná- kvæma úttekt á starfsemi og rekstri skólans og árangri á sviði umhverfismála. Nemendur, kennarar og foreldrar í Snæ- landsskóla hafa komið á öflugu starfi á sviði umhverfismála og verðskulda því að mati Landverndar að hljóta Grænfánann. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst fjölþætt verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverf- ismál. Verkefnin eru bæði til kennslu og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau efla þekk- ingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Vaskir skólapiltar gróðursetja hvönn. Snælandsskóli fær Grænfána

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.