Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 20

Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 20
AKUREYRI 20 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ                                       !""   #    $             %     &  '   ('  )  ( *(  )     $       *   *   )     +) )       ,  #     -            .    $  /     $ )  *(      0 - -    $   '     )$ %  ) -   *     &   *        #        &    %  '  11   $  /  )    (    $    $ #  $ (. / # -           ) ( *   --  ' 2 # "'  ' 0   )$    *     ' *      - 1 . ( 113'   *    *            #        *   -  / #       $ (  4     - 4        5          -     #     .  011   - 1 . ( 113      -      6  ) - -  ' 2 # "'   %  $        -        #  *  )      *   !  "  #   "$ HEYFENGUR kúabænda í landinu var um 50% umfram þarfir á liðnu sumri. Áætlað er að kostnaður, ein- ungis við að plasta umframbirgðirnar, nemi um 50 milljónum króna. Bænd- ur víða um land standa nú frammi fyr- ir því að farga þessu heyi og er víða nokkur vandi á höndum. Þetta er niðurstaða Baldurs Helga Benjamínssonar nautgriparæktar- ráðunautar hjá Bændasamtökum Ís- lands, en hann skoðaði forðagæslu- skýrslur á 706 kúabúum í landinu, þ.e. öllum búum þar sem bústofninn var 10 kýr eða fleiri. Mismunur á því magni sem kúabændurnir heyjuðu í fyrra og þörfum gripanna nam 57%. Baldur sagði að gera þyrfti ráð fyr- ir einhverjum skekkjumörkum í dæminu, þar sem ekki væri ævinlega nákvæmlega sama magn af heyi í hverri rúllu, „en það er ekki óvarlegt að áætla að á þessum kúabúum sé til helmingi meira hey en þörf er fyrir,“ sagði hann. Þá benti hann á að á 25 búum hafi ekki verið til nægur hey- forði, 5% hafi þar að meðaltali vantað upp á. „En það verður ekki erfitt að bjarga því, það er nægur heyforði til í landinu. Sumir eiga margra ára birgðir.“ Áætlað er að kostnaður við að plasta hverja rúllu sé á bilinu 200 til 250 krónur. Baldur gerir ráð fyrir að um 250 þúsund rúllur séu til á þessum búum umfram þarfir. Það þýðir að kostnaður við að setja þessar umframbirgðir af heyi í plast sé um 50 milljónir króna. Þá er ótalin vinna, olía, slit á vélum og fleira sem fylgir. Baldur nefndi að um síðastliðin áramót hafi sérstakt úrvinnslugjald verið lagt á landbúnaðarplast, 25 krónur á kíló og er því ætlað að standa straum af söfnun þess og til að koma því til endurvinnslu. „Þessi skattur er álíka mikill og það fé sem menn eru að eyða í umframmagn af heyi. Ef menn heyja í framtíðinni eins og þeir þurfa, aukast útgjöldin ekki,“ sagði Baldur. Hann nefndi að hey- fengur hefði verið óvenju mikill síð- astliðið sumar, enda hefði veturinn þar á undan verið mildur, en veðurfar að vetrarlagi hefði meira að segja um væntanlegan heyfeng en veðrið að sumrinu. Baldur sagði menn vera að bregð- ast við þessu ástandi og til að mynda hefði áburðarsala verið 20% minni nú í vor en var í fyrravor. „Menn eru að bregðast við, þeir bera minna á, sleppa lélegustu túnunum, menn eru greinilega að gera eitthvað,“ segir Baldur. Hann telur að hægt sé að geyma þær birgðir sem nú eru til í sumar og næsta vetur, en þá megi bú- ast við að heyið eyðileggist. Út- fjólubláir geislar sólar hefðu slæm áhrif plasthjúpinn utan um heyið, það missti einangrunargildi sitt og súrefni kæmist í það. Við það yrði heyið ónýtt. Má ekki gera hvað sem er við rúllurnar Baldur telur einsýnt að bændur þurfi að farga gríðarlegu magni af heyi innan tíðar. Víða við bæi mætti sjá risavaxnar stæður sem engum kæmi að gagni. „Það fylgir því mikil vinna að farga þessu og einnig kostn- aður. Það má ekki gera hvað sem er við þessar rúllur,“ segir Baldur. Hann var kallaður á fund umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar nú fyrir skömmu þar sem fjallað var um hvernig farga mætti rúllunum með sæmilega skyn- samlegum hætti. Nefndi Baldur að til greina kæmi að koma þeim fyrir í malarnámum, þar sem ekki er hætta á að þær mengi grunnvatn. „Það verður að finna leið til að koma þessum rúllum fyrir, almenn- ingi þykja þessar stæður mikil lýti, þetta stingur í augu. Þegar þessar rúllur eru orðnar gamlar fer plastið að trosna og það fýkur á næstu girð- ingar og veldur sóðaskap.“ Baldur segir að vissulega þurfi að slá túnin, þó svo ekki séu not fyrir heyið. Menn gætu velt því fyrir sér hvort heppilegt væri að slá og nýta grasið strax til uppgræðslu í nágrenni við sig. Kúabændur heyjuðu um helmingi meira í fyrra en þeir höfðu not fyrir Morgunblaðið/Sverrir Bændur víða um land standa nú frammi fyrir því að þurfa að farga tölu- verðu magni af heyi vegna mikillar umframframleiðslu. Kostnaður við að plasta um 50 milljónir króna Víða vandkvæði við að farga umframbirgðum ÞRÍTUGASTA starfsári Myndlista- skólans á Akureyri lýkur með stórri sýningu á verkum nemenda í hús- næði skólans að Kaupvangsstræti 16 á morgun, fimmtudag, 20. maí kl. 14. Sýningin verður opið daglega kl. 14–18 og lýkur sunnudaginn 23. maí. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári. Fornámsdeild skólans er 39 ein- inga nám sem skipulagt er með hlið- sjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar og hönnunar. Á sýn- ingunni er greinargott yfirlit þeirrar vinnu sem nemendur í fornámsdeild hafa fengist við á skólaárinu. Að þessu sinni útskrifast 14 nemendur úr fornámsdeild. Í sérnámsdeildum skólans er fengist við frjálsa myndlist annars vegar og hönnun hins vegar. Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfs- menntun í frjálsri myndlist. Í listhönnunardeild er lögð áhersla á tækniþekkingu og frum- lega framsetningu hugmynda. Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa rannsókn- arritgerð. Að þessu sinni útskrifast níu einstaklingar og eru útskriftar- verk þeirra sérstaklega kynnt á sýn- ingunni. Auk þess verða sýnd verk eftir börn sem hafa stundað nám í barna- listadeild skólans um lengri eða skemmri tíma. Vorsýning um helgina Vorleysingar | Halldóra Helga- dóttir myndlistarmaður opnar sýn- ingu á veitingahúsinu Friðrik V á Akureyri, á morgun, fimmtudaginn 20. maí klukkan 14. Á sýningunni sem Halldóra nefnir „Vorleysingar“ eru 18 olíumálverk sem unnin hafa verið á síðustu mán- uðum. Halldóra hefur unnið að myndlist undanfarin ár og hefur tekið þátt í mörgum sýningum bæði hér heima og erlendis. Allir eru velkomnir á opnunina. LOKAHÁTÍÐ Mentorverkefnisins Vináttu fór fram á útivistarsvæði skáta við Hamra á dögunum og var glatt á hjalla svo sem við var að bú- ast. Verkefnið hófst síðastliðið haust á Akureyri og er þetta í fyrsta sinn sem efnt er til þess norðan heiða. Um er að ræða samstarfsverkefni Velferðarsjóðs barna á Íslandi, Há- skóla Íslands, Kennaraháskóla Ís- lands og grunnskóla á nokkrum stöðum. Í því taka þátt háskólanem- ar sem verja þremur klukkustund- um á viku yfir skólaárið í samveru með grunnskólabarni á aldrinum 7 til 10 ára. Markmiðið er háskóla- stúdentarnir veiti hinum yngri stuðning og hvatningu en áhersla er lögð á gagnkvæman ávinning og hagsmuni samfélagins í heild af því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvert annars. Á Akureyri voru það nemar við kenn- aradeild Háskólans á Akureyri og nemendur í Lundarskóla sem tóku þátt, alls 32 einstaklingar eða 16 pör. Vinir: Á lokahátíðinni gátu þátttakendur brugðið sér um borð í báta sem eru til taks á útivistarsvæðinu við Hamra. Vinir: Alls tóku 32 þátt í Mentorverkefninu, nemar við Háskólann á Ak- ureyri og Lundarskóla á Akureyri og tókst með þeim góð vinátta. Líf og fjör á lokahátíð KEA styrkir afreksmenn | Kaupfélag Eyfirðinga úthlutaði á dögunum alls 12 styrkjum til ung- menna, að upphæð 1,9 milljónir króna en félaginu bárust 17 um- sóknir um styrki í flokki sem kenndur er við unga afreksmenn. Þeir sem hlutu styrk voru hand- knattleiksmennirnir Arnór Atlason og Árni Björn Þórarinsson, Halldór B. Halldórsson skákmaður og þá hlutu fjórir piltar, þeir Ásgeir Alex- andersson, Finnur Dellsén, Sig- urður Ægir Jónsson og Haukur Sigurðsson styrki vegna þátttöku á Ólympíuleikunum í eðlisfræði. Áfrýja dómi | Bæjarráð Akureyr- ar hefur samþykkt að áfrýja til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra nýlega í máli deildarstjóra hjá fjölskyldudeild bæjarins. Bær- inn var dæmdur til að greiða henni 3,7 milljónir króna vegna brota á jafnréttislögum. Oktavía Jóhannesdóttir, Sam- fylkingu, bókaði á fundinum að hún teldi skynsamlegast og þjóna best hagsmunum Akureyrarbæjar að una dómi Héraðsdóms í málinu. Valgerður H. Bjarnadóttir, Vinstri grænum, vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins. Hákon Stef- ánsson hdl., sem fór með málið fyr- ir Akureyrarbæ, og Katrín Björg Ríkarðsdóttir jafnréttisráðgjafi tóku þátt í umræðum á fundi bæj- arráðs. Þessir sjö piltar hlutu 200 þúsund krónur í styrk frá KEA. Þá hlutu fimm ungmenni 100 þúsund króna styrk, en þau eru Andrea Ösp Karlsdóttir, sundkona, Arnór Bjarnason, íshokkí, Guðmundur Ómarsson, skotmaður, Ómar Smári Skúlason, íshokkí og Stefán Guðna- son handboltamaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.