Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 21
Vortónleikar | Miklir tónleikar verða í
Duus-húsum í kvöld. Fram koma eldri og
yngri strengjasveit, kór söngdeildar, hljóm-
sveit rafgítardeildar og samspilshópar á
gítar, allt úr Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar. Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30.
Yngri strengjasveitin hefur vaxið og
dafnað í vetur. Á tónleikunum í kvöld eru
margir nemendanna að stíga sín fyrstu spor
í strengjasveit. Eldri strengjasveit hefur
unnið vel í vetur og mun á tónleikunum
leika það markverðasta úr efnisskrá sinni.
Kórinn er eingöngu skipaður nemendum
úr söngdeild skólans.
Rokk og ról mun hljóma um salinn þegar
hljómsveit rafgítardeildar stígur á svið.
Lægra heyrist þegar nokkrir samspils-
hópar í klassískum gítarleik koma fram.
Skátar í vanda | Vegna gamalla sprengna
sem kunna að leynast í jörðinni er svæði
það við Snorrastaðatjarnir sem skátafélag-
ið Heiðabúar hefur haft til afnota ekki talið
öruggt fyrir börn. Rætt hefur verið um
samstarf við rekstraraðila Seltjarnar.
Málið kom til umræðu á fundi menning-
ar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanes-
bæjar. Ráðið harmaði þessa stöðu og lýsti
vilja sínum til að aðstoða félagið við að finna
nýtt athafnasvæði, til dæmis við Seltjörn.
Njarðvík | Heilbrigðisnefnd Suðurnesja
hefur áminnt eiganda pramma sem staðið
hefur óhreyfður við Njarðvíkurhöfn fyrir
langvarandi aðgerðar- og ábyrgðarleysi.
Honum er veittur frestur til mánaðamóta
til að koma prammanum í löglega förgun
eða koma á annan hátt í veg fyrir slysa-
hættu.Fram kemur í fundargerð nefnd-
arinnar að Heilbrigðiseftirlitið telur að
pramminn sé dauðagildra fyrir fugla. Sagt
er að ástand prammans fari versnandi og
þótt ekki hafi orðið slys á börnum sé hætt-
an augljós.
Eigandi pramma
áminntur
Grindavík | Krakkar úr 4. bekk Á í Grunnskóla
Grindavíkur sigruðu í línudansi á Íslandsmeist-
aramótinu í dansi sem fram fór í Laugardals-
höll á dögunum.
Þátttaka nemendanna kemur í framhaldi af
atriði sem þau sýndu á árshátíð skólans og var
þeim boðið að taka þátt í slagnum um Íslands-
meistaratitilinn í línudansi 9. til 12. ára. Keppn-
in í línudansi hefur aldrei verið jafn fjölmenn
og í ár. Krakkarnir eru aðeins tíu ára og ættu
því að geta stefnt að sigri í þessum flokki næstu
árin. Harpa Pálsdóttir danskennari sá um dans-
æfingarnar. Ásrún Kristinsdóttir, umsjón-
arkennari í bekknum, var í skýjunum þegar
sigurinn var í höfn: „Vonandi á þessi góði ár-
angur eftir að verða hvatning fyrir börn til
frekari dansiðkunar, í Grindavík alla vegana.
Krakkarnir stóðu sig frábærlega vel, innan
vallar sem utan, og voru skóla sínum og sjálfum
sér til mikils sóma,“ sagði hún.
Krakkar úr Grunnskóla Grindavíkur sigruðu í línudansi á Íslandsmótinu
Hvatning til
dansiðkunar
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Íslandsmeistarar: Krakkarnir í fjórða bekk Á í Grunnskóla Grindavíkur sigruðu í línudans-
keppninni. Þau eru hér með umsjónarkennara sínum, Ásrúnu Kristinsdóttur.
Reykjanesbær | Flug- og tækjasýning verður
einn af hápunktum Ljósanætur í haust. Meðal
annarra nýjunga er fjölmenningarhátíð og hag-
yrðingakvöld.
Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt í
Reykjanesbæ verður haldin dagana 2. til 5. sept-
ember í haust. Eins og áður verður mikið lagt
upp úr því að bærinn verði í hátíðarbúningi
þessa dagana. Viðamiklum endurbótum á Hafn-
argötunni verður lokið fyrir hátíðina. Undirbún-
ingsnefnd hefur unnið undir forystu Steinþórs
Jónssonar. Samkvæmt upplýsingum hanseiga
ferskleiki og nýjungar að einkenna Ljósanótt.
Hátíðin verður sett fimmtudaginn 2. septem-
ber með fjölmenningarhátíð. Í Reykjanesbæ er
fjöldi einstaklinga af erlendu bergi brotinn.
Hugmyndin er að virkja þá til að halda útihátíð
ásamt leik- og grunnskólabörnum, til dæmis í
skrúðgarðinum við Tjarnargötu í Keflavík.
Hagyrðingakvöld er önnur nýjung sem vonast
er til að verði að árlegum viðburði á Ljósanótt.
Fengnir hafa verið þjóðkunnir hagyrðingar
víða að til að taka þátt í því.
Efnt verður til samkeppni um Ljósalagið,
eins og undanfarin ár. Nú er stefnt að því að úr-
slit verði tilkynnt nokkrum vikum fyrir Ljósa-
nótt til þess að ljósalagið geti nýst til kynningar
á hátíðinni. Á föstudagskvöldið verður efnt til
tónlistarhátíðar. Fengnir verða þekktir lista-
menn til að koma fram. Þá verða haldnir ung-
lingatónleikar í Reykjaneshöllinni. Loks er
stefnt að því að fjöldi sveita komi fram á veit-
inga- og skemmtistöðum bæjarins um kvöldið.
Aðalhátíðarhöldin verða sem fyrr á laugar-
deginum. Fjölbreytt dagskrá verður allan dag-
inn og fram á nótt. Meðal nýjunga er flug- og
tækjasýning sem verið er að undirbúa. Stefnt er
að fjölda atriða og uppákoma jafnt á lofti, láði
sem legi, meðal annars listflugi.
Unnið að undirbúningi Ljósanætur sem haldin verður í byrjun september
Fjölmenningarhátíð og flugsýning