Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 25
E
ins og ég hermdi af
í Færeyjapistli í
janúar kom á síð-
astliðnu hausti út
mikil og vegleg
listaverkabók um
færeyska mál-
arann, glerlistarmanninn og mynd-
höggvarann Trónd Patursson. Bókin
var uppseld er mig bar að í Þórshöfn í
desember en Borgný, spúsa hans,
lumaði á eintökum sem hún gaf okkur
Zakaríasi Heinesen er við heimsótt-
um hana að Kirkjubæ daginn eftir
listamannafullið á grafíkverkstæðinu í
Listaskálanum, listamaðurinn sjálfur
í Kaupmannahöfn. Skylt að kvitta fyr-
ir góða gjöf og skemmtilega dagstund
þótt seint sé, ætlunin var að skrifið
kæmi á svipuðum tíma og önnur út-
gáfa bókarinnar sem var væntanleg
einhvern tímann í febrúar. Hvað sem
öðru líður getur ekki verið ýkja langt
síðan hún kom í bókabúðirnar, stór og
djúpblá eins og hafið, í bland ljósblá
líkt og heiður himinninn.
Tróndur Patursson er helst þekkt-
ur fyrir sínar stóru bláu myndir, gler-
kristalla og innsetningar, nafnkennd-
ust mun ótvírætt gámainnsetningin
við pakkhúsbryggjuna í Kaupmanna-
höfn á menningarborgarári 1996
„Kosmískt rými,
eða alheims-
rými“. Trónaði
efst uppi á einni
samstæðunni og
að ganga inn í
gáminn horfa þar
næst fyrir fætur
sér var eins og að sjá langt langt niður
í mararheim. Umfram allt líkast sem
innsetningin kristallaði færeyskt haf-
dýpi, um leið víðátturnar niður yfir og
allt um kring. Ytra útlit listamannsins
einnig sem fari þar öllu frekar af-
kvæmi úthafsins, brims stórsjóa og
sjávarseltu en mannheims, hvikur og
órólegur, engin lognmolla í fasi hans
frekar en veðráttunni í heimahög-
unum. Hrár og úfinn og minnir allt í
senn á Kjarval, Jóhann Eyfells og
Veturliða Gunnarsson, einnig fyrir
umbúðalaus og skorpukennd vinnu-
brögð. Viðföng hans jafnfæreysk og
Jeffs Koons amerísk, en á öfugum for-
sendum, þannig þjóðleg og alþjóðleg í
senn. Þrátt fyrir að blámi hafs og
hauðar fylgi allri myndsköpuninni
meira og minna hefur hann skilað svo
fjölþættu dagsverki í listinni, komið
svo víða við, að trúlega finnst engin
hliðstæða í færeyskri myndlist.
Fyrir utan að mála á tvívíðan flöt,
sem iðulega er bæði upphleyptur og
hrár ásamt því að vinna í þrívídd, hef-
ur listamaðurinn unnið mikið í gler,
einkum í sambandi við ýmis verkefni á
opinberum vettvengi eins og guðshús,
einnig sem hluta af innsetningum sín-
um, leggur þá meiri áherslu á kraft-
birting sjálfs litarins en trúarleg
minni, nefnir sköpunarferlið nátt-
úrulýsingar; að höndla birtingarmynd
hins ósýnilega, gera hið ósýnilega
sýnilegt. Tróndur hefur einnig fengið
viðamikil verkefni í Danmörku og
þannig útfærði hann stórt glerverk í
fimm hlutum í forhöll nýbyggingar
aðalseturs Sparisjóðs Jótlands í
Randers, 2002, sem einnig sést utan
frá og vakið hefur athygli fyrir í senn
djúpa og glóandi liti. Þá hefur hann
útfært glerfuglasamstæðu fyrir
barnadeild Ríkisspítalans í Kaup-
mannahöfn og flughöfnina í Kastrup
og kannski muna einhverjir eftir vind-
hörpunni sem sett var upp á hafn-
arbakkanum í Reykjavík í tilefni
Vindahátíðarinnar 2001. Raunar hef-
ur hann komið enn frekar við sögu hér
og má nefna að hann útfærði málverk
fyrir Alþingi árið 2000 og sýndi í
Hafnarborg við góðar undirtektir á sl.
hausti.
Athafna listamannsins sér auðvitað
mun víðar stað en upptalningin yrði of
löng í þessum stutta pistli, einungis
ber að vísa til þess að hann er hér ekki
einhamur og hagnýtir sér vel tæki-
færi til útrásar listsköpunar sinnar,
þótt ennþá sé það helst í Danmörku.
Vekur yfirferð hans óneitanlega til
umhugsunar meður því að harðlokað
var fyrir öll slík tækifæri til útrásar ís-
lenzkrar listar við lýðveldisstofnunina
og ekki hugsað hið minnsta um að
bæta listamönnunum það upp og get-
ur hver og einn ímyndað sér hve ör-
lagarík álög það hafa verið á þeim, en
ekki til umræðu hér.
Til umræðu er hins vegar bókin um
Trónd Patursson, og ber á upphafs-
reit að nefna að listamaðurinn er
fæddur 1944, litlu korteri á eftir Páli
tvíburabróður sínum. Sonur Jóhann-
esar Paturssonar kóngsbónda að
Kirkjubæ á Straumey og Malan konu
hans (fædd Hansen). Naut almenns
barnalærdóms frá sjö til fjórtán ára
aldurs, sem aðallega var í höndum
farandkennara sem bar að garði tvisv-
ar í viku. Veturinn 1958–59 var
Tróndur með fyrstu nemendum í ný-
stofnuðum listaskóla í Þórshöfn, sem
Ingálvur av Reyni, Janus Kamban og
og Jack Kampmann stóðu að, naut
þar aðallega leiðsagnar Ingálvs av
Reyni. Fimmtán ára er hann kominn
á sjóinn og siglir næstu þrjú árin víða
með ýmsum flutningaskipum, þar-
næstu tvö er hann á togurum m.a. við
Grænland og Nýfundnaland.
Frumraun á sýningavettvangi
1964, fyrst á samsýningu Listafélags
Færeyja en síðan á sýningunni Fær-
eyjar í brennidepli í Nicolai-kirkju í
Kaupmannahöfn. Veturinn 1965–66
er hann í teikniskóla Hans Christians
Høyers í Glyptotekinu, en heldur svo
heim og tekur tímabundið við búsfor-
ráðum á Kirkjubæ í veikindum föð-
urins og fjarveru Páls bróður síns,
sem var í landbúnaðarskóla í Noregi.
Bróðirinn þurfti að vinna á búgarði
nokkra mánuði eftir skólavistina og
lagði til að Tróndur kæmi í sinn stað
er hann sjálfur sneri heim og tæki al-
farið við búsforráðum. Í Noregi kynn-
ist Tróndur myndhöggvara nokkrum
sem hvetur hann til að halda áfram á
listabrautinni, og er um tíma aðstoð-
armaður hans. Þar næst liggur leiðin
til Voss í nágrenni Bergen og listiðn-
aðarskólann á staðnum, nemur eink-
um listsmíði. Hlaut inngöngu í Rík-
islistakademíuna í Osló 1969 og nam
þar næstu fjögur árin, prófessorar
hans voru málararnir Reidar Aulie og
Halfdan Ljøsne (skólabróðir skrifara
hjá prófessor Jean Heiberg veturinn
1952–53). Strax 1972, ári áður en
Tróndur yfirgefur listakademíuna
gerist hann mikilvirkur á sýningavett-
vangi og hefur verið það síðan, vinnu-
þjarkur og hamhleypa til verka, sést
þar ekki fyrir. Til að víkka sjónhring-
inn heldur hann ásamt nokkrum fé-
lögum sínum á akademíunni í mikla
sjóferð á gamalli seglskútu, sem var
sérstaklega innréttuð fyrir förina sem
hófst í Færeyjum. Haldið var til Nor-
egs, Skotlands, Írlands, Biskayflóa,
Norður-Spánar, Gíbraltar, Suður-
Spánar, Marokkó, Túnis, Möltu, Sikil-
eyjar, Grikklands, Tyrklands, Ítalíu,
Korsíku, Sardiníu, Mallorka, svo aftur
til Suður-Spánar þar sem þeir urðu að
skilja fleytuna eftir. Hvarvetna voru
söfn, hof og hörgar heimsóttir og tók
ferðalagið á annað ár!
Þá er komið að sjálfri bókinnisem er hin veglegasta, höf-undur hennar er mag.art. ílistasögu frá háskólanum í
Árósum, starfsmaður við listasafnið í
Randers 1985 og forstöðumaður frá
1989. Er höfundur ritgerða og bóka
um eldri og nýrri danska og erlenda
list, frá Francisku Clausen, yfir
Ingálv av Reyni, til Pierre Manzoni.
Bókin er í stóru broti 30 x 25 cm og
er 258 síður, prýdd miklum fjölda lit-
mynda sem gefa góða hugmynd um
þróunarferil listamannsins frá fyrstu
tíð og áhrifavalda hans. Prentuð á
mjög góðan pappír, uppsetning og
hönnun prýðileg og bókband óaðfinn-
anlegt, er bæði á færeysku og dönsku,
textar hlið við hlið, þó á mjög sveigj-
anlegan hátt, útgefandi bókaforlag
listasafnsins í Randers. Samanburð-
arfræði hér mjög lærdómsrík, tvö
norræn mál sem hafa þróast sitt á
hvorn veginn en færeyska mun nær
íslenzku. Þetta er ein af þessum skil-
virku listaverkabókum sem Danir
gefa út og innibera fróðleik til margra
átta, þótt leiðarminnið út og í gegn sé
að sjálfsögðu listamaðurinn sjálfur
hverju sinni, í þessu tilviki Tróndur
Patursson. Segir frá uppvextinum,
grindadrápi, ferðalaginu á seglskút-
unni og svo áfram af listferlinum fram
á daginn í dag, nær þó ekki svo langt
sem til sýningarinnar í Hafnarborg,
en hún mun hafa verið haldin eftir að
bókin var frágengin og tilbúin til
prentunar.
Útgáfan í heild nokkur lærdómur
fyrir okkur Íslendinga sem höfum
annars vegar að stórum hluta til lagt
áherslu á fræðilegu hliðina, hins vegar
fjölskyldusögu, bókmenntalegt inntak
og ættfræði. Þótt allt sé það góðra
gjalda vert höfum við ennþá ekki hitt
á rétta tóninn. Engan veginn sé tekið
mið af furðulega dræmri sölu ís-
lenzkra listaverkabóka, hér lag að
gera samanburð. Í stuttu máli fróðleg
og læsileg listaverkabók sem dýpkar
skilninginn á færeyskri list og óhætt
er að mæla með.
Bládjúp og kristallar
Glermálverk í sköpun; einbeitni og orkuflæði.
SJÓN-
SPEGILL
Bragi
Ásgeirsson
bragi@internet.is