Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 27
Þ
að er búið að
hengja upp
megnið af mynd-
um Francescos
Clementes þegar
blaðamaður kem-
ur á Kjarvals-
staði, ein sextíu
verk. Clemente situr flötum bein-
um á gólfinu, sköllóttur með hvítt
sítt skegg. Útlitið á vel við þegar
slíkur meistari í málaralist síðustu
áratuga á í hlut. Seinna kemur í
ljós að hann er með bleikan eyrna-
lokk í báðum eyrum.
Francesco Clemente er þekktur
sem einn af upphafsmönnum end-
urreisnar málverksins, sem kom
fram á níunda áratugnum. Hann
hóf feril sinn sem hugmyndalista-
maður á Ítalíu og hélt sína fyrstu
einkasýningu í Róm árið 1971. Í
lok áttunda áratugarins fór hann
að mála og hlotnaðist þá fljótt al-
þjóðleg viðurkenning. Verk hans
voru sýnd á helstu samsýningum
þess tíma, svo sem Feneyjatvíær-
ingnum árið 1980 og Documenta 7
í Kassel og Zeitgeist í Berlín árið
1982.
Clemente ferðaðist til Indlands í
fyrsta skipti árið 1973 og hefur
síðan dvalist þar löngum stundum,
en hann á jafnframt aðsetur í New
York og á Ítalíu. Ferðalög vítt og
breitt um heiminn hafa verið stór
hluti af tilveru hans.
Verk síðustu fjögurra ára
Hann er ljúfur í viðkynningu og
yfirvegaður. Segir dagsbirtuna í
salnum á Kjarvalsstöðum henta
myndum sínum vel.
Svo þetta eru ný verk?
„Já, verkin á sýningunni hér eru
unnin á árunum 2000–2004, ný
verk þýðir sem sagt á síðustu fjór-
um árum. Árið 1999 var stór yf-
irlitssýning á verkum mínum í
Guggenheim-safninu í New York.
Öll þessi verk eru gerð eftir þá
sýningu.“
Eru þau öðruvísi en þau sem
sýnd voru þar?
„Nei, það sem ég geri er í sí-
felldri þróun, einskonar vefnaður
frumatriða sem koma fyrir og
hverfa út gegnum tíðina. Það er
áframhald og líka niðurbrot, hlé
milli eins atriðis og þess næsta í
verkunum.“
Og þú málar, augljóslega?
„Ég mála.“ Hann hlær. „En ég
nota margar ólíkar aðferðir. Á
þessari sýningu eru málverk,
akvarellur og pastelmyndir.“
En þú byrjaðir ekki sem mál-
ari?
„Fyrstu verk mín voru teikn-
ingar og ljósmyndir og áttu rætur
í hugmyndalistinni. Á síðustu ár-
um áttunda áratugarins fór að
bera meira á málverkum hjá mér.
Þau fyrstu voru sjálfsmyndir.“
Ertu sjálfur ennþá efniviður í
málverkunum?
„Nei, á þessari sýningu, eins og
þú sérð, hefur líkaminn yfirgefið
staðinn, en það er augljóst að það
var líkami þar. Hann hefur bara
yfirgefið svæðið um stund.“
Þú ert innblásinn af mörgum
mismunandi hlutum?
„Mismunandi stöðum. Ég hef
tileinkað mér einskonar flökku-
nálgun að vinnu minni (nomadic),
ég ferðast ekki bara um mismun-
andi aðferðir í listsköpun, heldur
einnig til ólíkra staða. Stærstur
hluti verka minna er gerður ein-
hvers staðar milli New York og
Suður-Indlands. Og sumt er gert í
Evrópu.“
En þú ert fæddur á Ítalíu?
„Ég ólst upp í Napólí, já.“
Kemur heimaland þitt fram í
verkum þínum?
„Já, líklega á þann hátt að mér
finnst ekki að málverk geti verið
of fágað.“
Finnst þér málverkið ennþá
eiga erindi í listsköpun?
„Ég held að það sé ekki höf-
uðmálið. Málið er að myndlist-
armaðurinn hafi ákveðinn þanka-
gang. Aðferðin er einugis það sem
hver og einn hefur tök á. Það vill
líka svo til að mér leiðist fyrir
framan sjónvarp, ég vil frekar
sitja fyrir framan hlut.“
En margir hafna málverki ein-
faldlega á þeirri forsendu að það
sé málverk.
„Þegar maður eldist áttar mað-
ur sig á hve gott það er að eldast
með einhverju sem maður hefur
ekki fullkomin tök á. Einhverju
sem kemur manni alltaf á óvart.“
Áttu þá við strigann eða papp-
írinn í þessu samhengi?
„Já, ef þú tekst á við það kemur
alltaf að því á einhverjum punkti
að þú þurfir að gefa upp stjórnina.
Og það eru mikil forrétttindi.“
Ólíkir miðlar á ólíkum stöðum
Þú notast við margskonar
tækni, olíu, vatnsliti og pastelliti?
„Ja, það kemur af sjálfu sér þar
sem ég ferðast svo mikið. Það er
til dæmis auðveldara að ferðast
með vatnsliti. Þegar ég vinn í
stúdíóinu mínu í New York vinn
ég málverkin.“
Svo þú málar á ferðalögum þín-
um?
„Já, freskurnar mínar eru gerð-
ar á Ítalíu og vatnslitamyndirnar
eru gerðar á heitu og röku svæði.
Hvaða aðferð ég vel hefur líka
mikið að gera með veðurfar á
hverjum stað. Það er auðveldara
að vinna vatnsliti á heitum og rök-
um stöðum, því þá hef ég meiri
tíma en ella. Freskurnar eru gerð-
ar á Ítalíu vegna loftslagsins og
ljóssins þar, sem hentar vel. Olíu-
myndirnar eru gerðar í New York,
ekki síst vegna tengsla þeirrar
borgar við málarahefðina, sem
hefur alltaf verið svo rík þar.“
En hvert ferðu héðan?
„Ég er á leið aftur til New
York, en svo fer ég aftur til Ind-
lands, þar sem ég var líka allan
febrúar og mars.“
Hvað er það við Indland sem
heillaði þig svo mjög í upphafi?
„Það er sú innhverfa lífssýn sem
ríkir þar. Sem er sama sýn og ég
hef á að skapa myndlist. Ég hef
ekki svo mikinn áhuga á hlutunum
útávið, fremur hvernig ég geti
hlaðið inn í verk mín. Á vissan
hátt er það öfugt við það sem okk-
ur er kennt, að útiloka svo margt
frá reynslu okkar og orðaforða.
Ég reyni að vinna svolítið gegn
þeirri þróun.“
Indland og New York hljóta að
vera ólíkir staðir?
„Já, ef New York hefur gler-
veggi alls staðar er allt beint
framan í þér á Indlandi.“ Hann
hlær.
Og þú vilt gjarnan blanda þess-
um ólíku heimum?
„Já, vegna þess að við erum öll
annaðhvort túristar eða flótta-
menn – við erum öll landflótta. Ég
get rétt eins gert tækni úr því,
þessari tilfinningu að „tilheyra“
hvergi.“
Hefur þú ákveðið að gera eitt-
hvað sérstakt á meðan þú ert
staddur á Íslandi?
„Ég vil ganga á landinu. Og ég
vakti alla nóttina um daginn.“
Var það vegna birtunnar?
„Það var góður félagsskapur og
góð birta.“
Sýning Francescos Clementes,
Ný verk, verður opnuð á Kjarvals-
stöðum á morgun kl. 15. Hún
verður opin til 22. ágúst.
Morgunblaðið/Þorkell
„Þegar maður eldist áttar maður sig á hve gott það er að eldast með einhverju sem maður hefur ekki fullkomin tök
á. Einhverju sem kemur manni alltaf á óvart,“ segir Francesco Clemente um aðferð sína í myndlist – málaralistina.
ingamaria@mbl.is
Ég mála
Francesco Clemente er einn virt-
asti myndlistarmaður sinnar kyn-
slóðar. Ný verk úr fórum hans
koma fyrir augu Íslendinga á
morgun, þegar sýningin Ný verk
verður opnuð á Kjarvalsstöðum.
Inga María Leifsdóttir gekk einn
hring um salinn í hans fylgd.
FRANSKA dagblaðið, L’actulité
Juive, lýkur lofsorði á Ferðir Guð-
ríðar sem sýnt var nýverið í l’Akt-
éon leikhúsinu í París, í gagnrýni
sem birtist í blaðinu nýlega. Brynja
Benediktsdóttir er höfundur verks-
ins og leikstjóri. Með hlutverk Guð-
ríðar fer Solveig Simha, ung leik-
kona sem er íslensk í aðra ættina og
ólst upp í Frakklandi.
„Sagan, sem á erindi við alla,
heillar unga sem gamla með fram-
úrskarandi túlkun og heillandi og
óvæntri upprifjun á lífi þjóðar sem
er horfin á braut, víkinganna,“ segir
gagnrýnandi blaðsins.
Leikritið fjallar um ævintýralegt
líf Guðríðar Þorbjarnardóttur, sem
var fyrsti Evrópubúinn sem ól barn
í hinum nýja heimi – Bandaríkj-
unum. Gagnrýnandi l’Actualité
Juive segir að líf Guðríðar komi á
óvart, sem og hversu nútímalegar
aðstæður hún bjó við. Hún taki
sjálfstæðar ákvarðanir um líf sitt,
taki virkan þátt í samfélaginu og
landkönnunum á hafi úti.
Gagnrýnandinn segir túlkun Sol-
veigar Simha „blindandi af fersk-
leika“ og nýbreytni. Hún túlki
margbreytilega konu þannig að
áhorfandinn upplifi á sama tíma
margar persónur, margar aðstæður
og ólík skapbrigði.
Hlé gert á sýningum
í Skemmtihúsi
Leiksýningin sem var frumsýnd í
París 8. febrúar 2003 hefur verið á
fjölunum víða í París og nágrenni í
rúmt ár og gengið vel. Á frönsku
heitir hún „La Saga de Gudridur“
og undir því nafni var hún frum-
sýnd í Skemmtihúsinu í ágúst í
fyrra í lengri gerð. Í sömu vikunni í
ágúst var verkið leikið í Skemmti-
húsi á ensku, frönsku og þýsku en
jafnframt í Króatíu í útileikhúsum
þar. Leikkonurnar í þessum sýn-
ingum auk Solveigar Simha voru
Þórunn E. Clausen og Valdís Arn-
ardóttir.
Í sumar verður gert hlé á sýn-
ingum í Skemmtihúsi vegna anna
leikstjóra og höfundar, Brynju
Benediktsdóttur, en auk annars er
hún að undirbúa sýningar á verkinu
í Þýskalandi 2005 og útgáfu leikrit-
anna um Guðríði á bók á 5 tungu-
málum. Einnig eru í undirbúningi
sýningar á „frönsku“ Guðríði í
haust á Íslandsviku, en þar verður
hún ekki beinn þáttakandi í hátíð-
arhöldunum, heldur eins konar jað-
arsýning, að sögn Brynju Bene-
diktsdóttur.
Ferðir Guðríðar í Frakklandi
„Blindandi af
ferskleika“
Ljósmynd/Alexandre Chevallier
Leikkonan Solveig Simha í hlut-
verki sínu í Ferðum Guðríðar,
frönsku útgáfu sýningarinnar.
VOR í Árborg nefnist fimm daga
lista- og menningarhátíð sem hefst í
dag og lýkur á sunnudag. Þetta er í
annað sinn sem hátíðin er haldin, sú
fyrsta á síðasta ári. Hátíðin hefst með
skrúðgöngu við Sigtúnsgarðinn, sem
börn á öllum aldri hafa að undanförnu
verið að undirbúa. Jórukórinn syngur
á túninu við Hótel Selfoss og keppt
verður í Jórustökki.
Fjöldi tónleika verður í boði, m.a.
hátíðartónleikar Karlakórs Selfoss,
Dixielandsveifla sýslumanna, Djass-
kvintett Guðlaugar Ólafsdóttur, gít-
artónleikar og kirkjutónleikar þar
sem norskur gestakór kemur og
syngur með kirkjukór Selfosskirkju.
Þá stíga unglingahljómsveitir á svið á
Sigtúnsplaninu síðdegis á laugardeg-
inum og Stuðmenn og hljómsveitin
OFL leika á útitónleikum um kvöldið
fyrir alla fjölskylduna. Einnig verður
harmonikudansleikur í Hótelinu.
Leiksýningar verða bæði fyrir börn
og fullorðna og kór Vallaskóla flytur
Dimmalimm.
Nýtt safn, Veiðisafnið, hefur verið
opnað á Stokkseyri, en þar gefst fólki
kostur á að skoða uppstoppuð villidýr
frá ýmsum heimsálfum og margt ann-
að sem tengist skotveiðum. Drauga-
safnið, Húsið, Sjóminjasafnið, Hér-
aðsskjalasafnið, Fornbílasetrið og
Þuríðarbúð verða opin auk þess sem
Tónminjasetrið á Stokkseyri verður
opið í tilefni hátíðarinnar. Á sunnudag
verður afhjúpun minnisvarða um
gömlu Rafstöðina á Eyrarbakka við
hátíðlega athöfn. Alla dagana verður
ganga undir leiðsögn sérfróðra.
Nokkrir einstaklingar á Eyrar-
bakka opna hús sín og leyfa gestum
og gangandi að líta inn. Einnig verður
leiðsögn um Tryggvaskála þar sem
Skálavinafélagið stendur nú fyrir
gagngerum endurbótum. Þá gefst
mönnum kostur á að skoða nýtt Þjón-
ustuhús Byggðasafns Árnesinga og
kynna sér starfsemina.
Þá verður fjöldi listsýninga í boði,
myndlist, ljósmyndir, handverkssýn-
ingar og gjörningar. Meðal þeirra
sýning Elfars Guðna, Hannes Lárus-
son sýnir verk í búðarglugga, Svandís
Egilsdóttir sýnir olíuverk, Ólafur Th.
Ólafsson sýnir vatnslitamyndir og
einnig Sigurlín Grímsdóttir. Sjöfn
Har býður gestum að líta í vinnustofu
sína og gallerí Elínborgar Kjartans-
dóttur á Stokkseyri verður opið.
Fjölbreytt dag-
skrá á fimm
daga listahátíð