Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 30

Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S amtök um tónlistarhús stóðu fyrir fundi um fyrirhugað tónlistarhús í húsakynnum Íslensku óperunnar síðastliðið mánudagskvöld. Egill Ólafsson, formaður samtakanna, setti fundinn og í máli hans kom fram að ákveðið hefði verið að boða til fundarins þar sem mönnum fyndist þeir standa á ákveðnum tímamótum. „Því innan nokkurra vikna verð- ur endanlega frá því gengið hvernig innviðir hins væntanlega tónlistarhúss verða. Okkur þótti því brýnt að koma á einhvers konar sam- ræðum við alla þá aðila sem áhugasamir eru um málið og ekki síst þá aðila sem eiga vænt- anlega eftir að starfa í húsinu. Að mínu mati er mikilvægt að þessar raddir fái að heyrast, einfaldlega til að við getum samstillt okkur í þessari baráttu og kannski aukið þær sam- ræður sem þurfa eðlilega að vera í gangi þeg- ar jafnbrýnt verkefni og tónlistarhús er í gangi.“ Fyrstur tók til máls Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar TR ehf., og gerði hann grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning við byggingu tónlistarhúss. Hann ræddi hinar tæknilegu kröfur og útbún- að varðandi hljómburð, samningsformið við framkvæmdaaðila, markmið Austurhafnar TR og nýlega þarfagreiningu Artec-manna sem felur m.a. í sér að stóri salurinn verði stækkaður úr 1.300–1.500 manna sal í 1.600– 1.800, þar sem það er talið mun hagkvæmara frá rekstrarlegu sjónarmiði. Að því loknu tóku til máls oddvitar allra fagfélaga tónlist- armanna í landinu og sömuleiðis fulltrúar þeirra aðila sem með einum eða öðrum hætti munu koma að starfsemi hússins, þ.e. Listahátíð í Reykjavík, tónleikahaldarar, Sin- fóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan. Frummælendur lýstu sýn sinni og vænting- um í tengslum við fyrirhugað tónlistarhús. Sitt sýndist hverjum, en þó var aðallega þrennt sem hæst bar á góma, í fyrsta lagi af- staða manna til hugmyndar Artec-manna um stækkun stóra salarins, í öðru lagi hvernig að- koma Íslensku óperunnar að húsinu verði og í þriðja lagi fannst mönnum mikilvægt að sem fyrst kæmist á hreint hvernig rekstrarfyrir- komulagi tónlistarhússins verði háttað. Nýjar tillögur um hringsvið og hljómsveitargryfju Í máli Stefáns kom fram að í apríl sl. hafi verið auglýst forval vegna fjármögnunar, hönnunar, byggingar og reksturs tónlistar- og ráðstefnuhúss sem og hótels við höfnina í Reykjavík. „Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. en við teljum og vonum að öflugir hópar muni senda inn umsókn og að það verði metn- aðarfullar umsóknir. Ef allt gengur eftir verð- ur hægt að afhenda útboðslýsingar í ágúst og við stefnum að því að á miðju ári 2005 verði kominn á samningur. Samkvæmt þessu gæti framkvæmdum verið lokið í árslok 2008 og hægt að opna húsið í ársbyrjun 2009.“ Stefán ræddi nýlega þarfagreiningu Artec- manna þar sem kom fram að mun hagkvæm- ara væri að stækka stóra salinn, en stjórn Austurhafnar TR hefur enn ekki tekið af- stöðu til þeirrar tillögu. „Eftir heimsókn Artec-manna fyrr í vetur stungu þeir einnig upp á því að komið verði upp hringsviði í stærsta salnum og höfð verði hljómsveitar- gryfja fyrir framan sviðið, en með þessu móti má, að þeirra sögn, auka tekjumöguleika sal- arins.“ Að sögn Stefáns er auk þess gert ráð fyrir plötum sem loka rýminu inn á baksvið þar sem geyma megi sviðsbúnað. „Þó ekki sé verið að tala um að breyta húsinu í óperuhús eða leikhús þá opnast með þessu möguleiki á slíkum uppfærslum.“ Stefán lagði mikla áherslu á að notagildi hússins yrði tryggt og minnti á að ekki væri nóg að byggja stórt og dýrt hús ef ekki væri tryggt að það yrði rekið sómasamlega. „Fyrr í vetur komum við upp samráðshóp þar sem í sitja fulltrúar bæði tónlistarmanna og ráð- stefnu- og ferðaiðnaðarins. Fyrsta verkefni þessa hóps var að setja saman ítarlegan lista yfir tengiliði úr hópi væntanlegra notenda Mik fyr Í mál stjóra S meðal h stóra sa sagði 1.5 þrjár m listræn hafi kos það nún manna s Meðalað manns flutning síður ve hann yr mjög let Þröst með dýr því kom salinn m mikilvæ „Ég tel m stað far gerður í einstaka Í mál stjórnan fram að snúast s það. „Ég hótelið g faldlega þetta hú eitthver Að mati armódel byrjað „Menn v kröfur g faldlega ur hægt kröfur t unn. Í mál cert ehf. hússins, en eitt aðalverkefni samráðshópsins er að kynna sjónarmið tengiliða, fjalla um búnað, útfærslur og notkunarmöguleika hússins. Að mínu mati er afar mikilvægt að góð samstaða náist um þetta verkefni þegar upp verður staðið,“ sagði Stefán Her- mannsson m.a. í framsögu sinni, en þess má geta að allar nánari upplýsingar um fram- kvæmd og stöðu mála er hægt að nálgast á vef Austurhafnar TR á slóðinni: austurhofn.is. Óeðlilegt að skilja óperuna eftir úti í kuldanum Næstur tók til máls Bjarni Daníelsson óp- erustjóri Íslensku óperunnar. Í hans máli kom fram að Íslenska óperan hefði lengi sótt það fast að fá aðild að byggingu tónlistar- shúss og fært fyrir því ágæt rök. „Ég væri ekki samkvæmur sjálfum mér ef ég segði ekki að mér þykir mjög miður að ekki sé gert ráð fyrir að byggja sérstaka aðstöðu fyrir óperu- flutning og aðrar sviðslistagreinar í tengslum við þetta hús. Það er eitthvað rangt við það að skilja óperustarfsemina eftir úti í kuldanum. Það hlýtur því að vera ákveðið fagnaðarefni fyrir stjórn og forsvarsmenn Óperunnar að heyra að nokkuð breyttar áherslur séu í sam- bandi við stóra salinn sem leitt geti til þess að þar verði einhverju móti hægt að flytja óp- erur í framtíðinni. Við munum auðvitað fylgj- ast með þessu máli af miklum áhuga og æskj- um þess að koma inn í þá umræðu til þess jafnvel að hafa áhrif á hana.“ Bjarni benti á að kostnaðurinn við að útbúa viðunandi aðstöðu sem þjónað gæti bæði Íslensku óperunni sem og öðrum sviðslistum væri ekki óyfirstígan- legur. „Samkvæmt okkar kostnaðartölum hlypi kostnaðurinn á einum til einum og hálf- um milljarði, eða jafn mikið og t.d. einn kíló- metri í jarðgöngum kostar.“ Í framsögu sinni rifjaði Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistamanna, upp samþykkt tónlistarmanna á málþingi sem þeir stóðu fyrir síðla árs 2002. Þar sagði m.a.: „Nauðsynlegt er að tónlistarhús njóti list- rænnar stjórnar með fulltrúum fagfólks þannig að allir tónlistarhópar og einstakling- ar eigi aðgang að húsinu. Tónlistarfólk lýsir þeim eindregna vilja að ríki og borg standi að og tryggi rekstur tónlistarhúss eins og þessir aðilar standa að rekstri annarra opinberra menningarstofnana. Tónlistarfólk skorar á stjórnvöld að endurskoða áætlanir um sæta- fjölda með það í huga að sæti í aðalsal verði 1.500–1.700 fyrir framan svið. Það mun auka notagildi hússins til muna og mæta þörfum tónleikahaldara á borð við t.d. Listahátíð. Tónlistarfólk leggur til að framtíðarhúsnæði Íslensku óperunnar verði í minni sal tónlistar- hússins.“ Björn sagði tónlistarmenn hafa áhyggjur af væntanlegum rekstri og eignar- haldi hússins, svo og hver muni hafa forræði yfir húsinu. „Það hefur ávallt verið yfirlýst skoðun stjórnar FÍH að rekstur tónlistarhúss fari ekki saman við rekstur ráðstefnumið- stöðvar og hótels vegna ólíkra rekstrarlegra sjónarmiða og hefur sú skoðun margoft kom- ið fram á fundum samtakanna.“ Björn sagðist þeirrar skoðunar að tónlistarhús ætti að vera fjármagnað af ríki og borg og vera í eigu þjóð- arinnar. Brýnt að koma á Samtök um tónlistarhús gengust fyrir fundi í Ís- lensku óperunni í fyrra- kvöld þar sem farið var yfir stöðu mála varðandi fyrirhugað tónlistarhús. Silja Björk Huldudóttir sat fundinn og hlýddi á fróðlegar framsögur. Oddvitar fagfélaga tónlistarmanna og fulltrúar þeirra a Stefán H Austurh fyrir stö bygging SÞ OG KOSOVO Í lok síðasta áratugar lét alþjóðasam-félagið til skarar skríða til að stöðvaþjóðernishreinsanir Serba í Kosovo. Að átökunum loknum var ákveðið að fram- tíðarstaða Kosovo skyldi óráðin um sinn og alþjóðastofnanir undir forustu Samein- uðu þjóðanna sinna þar uppbyggingu. Síð- an eru liðin fimm ár. Á þeim tíma hefur ekkert gerst sem gefur íbúum Kosovo til- efni til að ætla að breytinga sé að vænta. Í Morgunblaðinu í gær er rætt við dokt- or Val Ingimundarson sagnfræðing í til- efni nýrrar bókar, Topographies of Glob- alization, sem hann ritstýrir ásamt Kristínu Loftsdóttur og Irmu Erlings- dóttur. Valur skrifar grein í bókinni undir heitinu „The Last Colony in Europe“ eða „Síðasta nýlendan í Evrópu“ og þar gagn- rýnir hann hlut SÞ, Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins harðlega. „Valdaumboðið er réttlætt í nafni lýð- ræðisvæðingar og efnahagsuppbygging- ar, en mun minni áhersla lögð á réttinn til sjálfsstjórnar og fullveldis, sem eru þó enn grunnþættir í vestrænu stjórnarfari. Formið á þessari stjórn og sú orðræða, sem liggur henni til grundvallar, eru sem endurómur af öðrum tíma. Sífellt er verið að klifa á því, að „heimamenn“ séu ekki „reiðubúnir“ til að stjórna sér sjálfir; þeim er líkt við börn sem þurfi á föðurlegri leið- sögn að halda. Þeim er gert að standast kröfur um stjórnarhætti, sem þróuðustu lýðræðisríki uppfylla ekki einu sinni. Og agatæki þessa kerfis er efnahagsvaldið,“ segir Valur í viðtalinu. „Ég tel að það standist ekki alþjóðalög að fulltrúar alþjóðastofnana og ríkja geti hreiðrað um sig í ríkjum eða „verndar- svæðum“ svo að árum skiptir án skýrs þjóðréttarlegs umboðs eða samþykkis þeirra sem þar búa.“ Valur kveðst telja að alþjóðasamfélagið hafi ekki kjark til að finna lausn í Kosovo og lýsir afleiðingunum í sterkum dráttum: „Nú er ástandið þannig að Kosovo-búar hafa ekkert ríkisfang; alþjóðaflugvöllur- inn var til skamms tíma kenndur við Ís- land! Vegabréfin eru gefin út í nafni Sam- einuðu þjóðanna. Og formlega séð er Kosovo hluti af Serbíu og Svartfjallalandi, sem er arftaki hins svokallaða „Sam- bandslýðveldisins Júgóslavíu“ (landfræði- legs skáldskapar, sem kom til sögunnar eftir að Króatía, Slóvenía og Bosnía sögðu skilið við Júgóslavíu), þótt ekkert stjórn- arsamband væri þar á milli. Þetta gengur augljóslega ekki upp: Það er vonlaust að byggja upp samfélag eða efnahagslíf án ríkisfangs. Og það er óverj- andi að taka ekki á þjóðréttarlegum spurningum í fimm ár vegna þess að það hentar ekki „alþjóðasamfélaginu“ af land- fræði-pólitískum ástæðum.“ Íslendingar hafa tekið þátt í því starfi sem nú fer fram í Kosovo. Það hefur verið rauður þráður í íslenskri utanríkisstefnu undanfarna áratugi að styðja þjóðir sem eiga við ramman reip að draga í alþjóða- samfélaginu eins og kom fram þegar Ís- land viðurkenndi sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna fyrst ríkja þegar járntjaldið féll. Þá var sjálfsákvörðunarréttur þjóða hafð- ur að leiðarljósi. Það er ljóst að staðan í Kosovo er óverjandi og það má velta fyrir sér hvernig andrúmsloftið væri hér á landi ef svipuð staða kæmi upp eins og hæglega hefði getað gerst í lok heimsstyrjaldarinn- ar síðari hefði atburðarásin orðið með öðr- um hætti. Íslendingar geta ef til vill ekki tekið forustu í málefnum Kosovo en við getum látið rödd okkar heyrast, veitt al- þjóðasamfélaginu aðhald og reynt að tryggja að okkar framlag gagnist í raun. VANDLIFAÐ Það gengur á ýmsu á milli ráðherra ogþingmanna stjórnarflokka og stjórnarandstöðu á Alþingi þessa dagana og svo sem ekkert nýtt. Þó er óvenjulegt að ráðherrar skuli atyrtir fyrir að fara að óskum þingmanna stjórnarandstöðu- flokkanna. Í umræðum á Alþingi sl. laugardag upplýsti Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra að hann hefði undir höndum bréf, sem blaðamaður, sem síðar kom í ljós að var Þröstur Emilsson, hefði sent for- manni framkvæmdastjórnar Samfylk- ingarinnar. Síðan sagði dómsmálaráð- herra orðrétt: „Ef menn vilja að ég lesi þetta bréf þá get ég gert það. Ég ætla ekki að gera það nema ég sé hvattur til þess. En það er sjálfsagt að ég lesi það hér í þinginu ef menn óska eftir því að ég fari yfir það nánar …“ Síðar þennan sama dag, laugardag, kom dómsmálaráðherra aftur í ræðustól Alþingis og sagði: „Ég spurði hvort menn vildu að ég læsi þetta bréf, sem ég fékk í tölvupósti dags. 13. maí 2002 en vegna láta í salnum heyrði ég ekki að það var einn þingmaður, sem bað mig um að lesa bréfið, hv. þingmaður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.“ Að svo búnu las ráðherrann bréfið. Í grein í Morgunblaðinu í gær segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: „Í þingsal sl. laugardag lagði hann (þ.e. dómsmála- ráðherra, innskot Mbl.) upp í undarlegan herleiðangur og dró upp úr pússi sínu ríf- lega tveggja ára gamalt bréf, sem hann taldi skyndilega tímabært að gera opin- skátt.“ Hvernig getur það verið „undarlegur herleiðangur“ af hálfu dómsmálaráð- herra að lesa upp í heild bréf að ósk þing- mannsins sjálfs? SKOTVOPN OG HEILBRIGÐ SKYNSEMI Lítil frétt á baksíðu Morgunblaðsins ígær hlýtur að hafa vakið furðu margra. Þar segir frá því að kona í Reykjavík hafi haft samband við lögregl- una vegna þess að dóttir hennar sagði henni frá því að átta ára gömul vinkona hennar hefði verið að leika sér með skot- vopn föður síns. Lögreglan ræddi við föð- urinn og fór fram á að hann gengi frá skotvopninu á viðeigandi hátt. Það er auðvitað með hreinum ólíkind- um eftir þær umræður, sem fram hafa farið að undanförnu um geymslu og með- ferð skotvopna, að enn skuli þeir finnast sem sýna annað eins kæruleysi og að ganga þannig frá byssum að börn komist í þær. Skelfileg slys, jafnvel banaslys, hafa orðið þar sem börn hafa fiktað með byssur, sem ekki hafa verið geymdar með tryggum hætti. Þá eru ótaldar frétt- ir af byssuþjófnuðum og glæpum, þar sem stolnar byssur eru notaðar til að ógna fólki. Aukin vitund fólks um hættuna, sem stafað getur af ógætilegri meðferð skot- vopna, leiðir þó vonandi til þess að fleiri bregðist við eins og konan, sem sagði frá í fréttinni, og bendi lögreglunni á brot á vopnalögunum. Umræður um málið hafa líka borið þann árangur að sala á byssu- skápum hefur stóraukizt og fleiri og fleiri byssueigendur geyma því væntanlega vopn sín og skotfæri eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Raunar á hvorki að þurfa lög og reglur né atbeina lögreglunnar til þess að menn læsi niður skotvopn og skotfæri hvort í sínu lagi; það er heilbrigð skynsemi sem segir fólki að gæta ýtrasta öryggis við meðferð slíkra hluta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.