Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurBragi Jafetsson fæddist á Akranesi 20. mars 1935. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sigríð- ur Guðmundsdóttir, f. 5.9. 1909, d. 28.5. 1988 og Jafet Egill Sigurðsson, f. 22.1. 1907, d. 27.2. 1970. Systkini Braga eru: 1) Rósa Ingi- björg, f. 2.12. 1928, d. 13.1. 2004, 2) Hörður, f. 12.6. 1932, d. 4.9. 2003, 3) Viktoría Guðlaug, f. 21.3. 1932, d. 28.12. 1998, 4) Halldóra Guðmunda, f. 24.4. 1933, og 5) Baldur, f. 11.3. 1936, d. 2.11. 1959. Bragi bjó mest allt sitt líf í Hafn- arfirði. Útför Braga fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Einn mikilvægur hlekkur í mínu lífi er nú horfinn. Það að vera svona fjarri, í Ástralíu, gerir þetta ein- hvern veginn svo miklu erfiðara. Ég get ekki sameinast fjölskyldu minni, við jarðarförina og erfidrykkjuna eða kistulagninguna, þar sem við komum saman í sorginni og minn- umst þessa góða drengs. Sem ég skrifa þetta get ég ekki annað en grátið brottför hans þótt ég skilji svo vel hversu mikill léttir þetta hlýtur að hafa verið fyrir hann að fá að fara svona friðsamlega. Hugurinn leitar til fortíðar minn- ar, til æskudaganna og lífsins okkar á Íslandi. Bragi frændi var alltaf þátttakandi í því lífi og hans nærvera átti stóran þátt í því að skapa þá per- sónu sem ég er í dag. Hann var hlað- inn eiginleikum sem ég telpan, ung- lingurinn og konan óx upp við, hugleiddi og loksins gerði að mínum eigin. Hann var ekki margmáll en kímnigáfan var vel þroskuð. Hann sá skondnu hlutina í okkar daglega lífi og oft í hita leiksins er maður leit upp þá sá maður þurra brosið hans og vissi að eitthvað skondið hafði átt sér stað. Ég gerði mér þá grein fyrir því að besta meðalið var oft hreinlega bara að hlæja í stað þess að deila. Bragi var ekki heill heilsu allt sitt líf, en aldrei heyrði ég hann kvarta eða kveina yfir sínu hlutskipti. Það líf sem honum var boðið upp á var sárara og erfiðara en margur sterk- ur hefði getað afborið, en hann bar það eins og hetja án nokkurra til- hneiginga til að gera sjálfan sig að píslarvætti. Ef spurður hvernig gengi, þá brosti hann út í annað á sinn rólega hátt og svaraði það geng- ur. Hann flutti aldrei að heiman en bjó með okkur allt okkar líf. Hann eignaðist aldrei sína eigin fjölskyldu en gerði okkur að sinni og fylgdist með okkur systkinunum náið. Sigrar okkar voru hans og sorgir okkar hans líka. Þegar ég var unglingur man ég að við deildum ást á hljóm- sveitinni Beach Boys, og við keppt- umst um að finna og klippa út mynd- ir af þeim og líma upp á vegg. Hann var ekki mjög hrifinn af sumum tískusveiflum, t.d. buxnapilsunum og lét skoðanir sínar vel í ljós. Vildi ekki sjá að hún Sigga frænka sín gengi svona druslulega til fara. Hann kenndi okkur krökkunum að tefla, ég var vonlaus, hann kenndi okkur líka að teikna og mála – þar var ég líka vonlaus. En hann brosti bara þegar ég þusaði og pirraðist út af vöntun á listrænum og lógískum eiginleikum. Hann sýndi mér ungri konunni ómældan stuðning og styrk þegar ég varð barnshafandi að honum Braga mínum. Hann var eins og restin af fjölskyldunni svo innilega spenntur yfir fjölguninni, yfir nýju barni og hann var ekkert smá glaður og hreykinn þegar drengurinn kom í heiminn. Sem móðir, sem vill sínu barni allt það besta, þá kom ekki annað til greina en að nefna dreng- inn í höfuðið á frænda sínum. Ég óskaði mínu barni til handa þá eig- inleika og persónulegan gjörvileika sem frændi minn Guðmundur Bragi Jafetsson bar allt sitt líf fram á síð- ustu stundu, styrk, kímnigáfu, þol- inmæði, góðan hug og gott hjarta. Sonur minn líkist frænda sínum vel. Megir þú minn kæri frændi hvíla í friði. Þú ert geymdur en ekki gleymdur. Sigríður G. Ingvadóttir og fjölskylda. Herra Jesú, hjá oss vaktu, héðan burt er sofnum vér, oss í miskunn að þér taktu, einkatraustið vort það er. Bend oss heim í hæð til þín, himinljóma þann oss sýn er til fulls vér síðar sjáum, sjálfan þig er litið fáum. (Jón Þorleifsson.) Ó, hve mín þrá er heit til þín, æ, hvenær muntu vitja mín? Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinn, æ, hvenær saðning, Jesú minn? Elsku Bragi frændi, við kveðjum þig í dag með söknuði en erum þess fullviss að þér líði vel í nýjum heim- kynnum. Við vitum að amma og afi og systkini þín sem á undan eru gengin hafa tekið þér opnum örmum. Nú getur þú hlaupið um, talað og gert allt það sem þú þráðir svo langa lengi er þú gekkst þína þrautagöngu gegnum lífið. Mamma og pabbi tala mikið um það núna að nú njótir þú þín þar sem þú getur svo miklu meira. Ég held að mömmu finnist svolítið skrítið að núna er hún ein eftir af systkina- hópnum, en svona er lífið. Eins og stendur í biblíunni hans „afa“: Þú hefir, Drottinn, séð undir- okun mina, rétt þú hluta minn! Það er sú von sem við berum í brjósti fyr- ir þína hönd að drottinn hafi nú rétt þinn hlut. Bragi minn, þú hefur alltaf verið einn af okkar nánustu fjölskyldu og bjóst til margra ára á heimili mömmu og pabba eftir að amma Sigga féll frá. Börnin mín þekkja þig sem Braga frænda og dóttur minni fannst svo gaman að heimsækja þig og spila við þig, bæði meðan þú varst hjá mömmu og síðan þegar þú fluttir á Sólvangsveginn. Þá minnist ég tím- anna þegar ég var lítill og þú varst að kenna mér að tefla og spila. Við fjölskyldan kveðjum þig með söknuði, kæri frændi, og megir þú hvíla í friði. Jafet, Hrönn Hrund og Egill. BRAGI JAFETSSON Lokað Lokað verður frá kl. 13.00 miðvikudaginn 19. maí vegna jarðar- farar EINARS ÓLAFSSONAR, fyrrverandi formanns Starfs- mannafélags ríkisstofnana. SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, STEFÁN STEFÁNSSON útgerðarmaður og skipstjóri, Dalvík, andaðist laugardaginn 15. maí sl. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 28. maí kl. 13:30. Sigrún J. Eyrbekk, Stefán Stefánsson, Hulda Ólafsdóttir, Sigríður Ingibjörg Stefándóttir, Davíð Stefánsson, Vilborg Björgvinsdóttir, Anna Lísa Stefánsdóttir, Magnús Jónasson, Sigrún Stefánsdóttir, Sveinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GRÓA FINNSDÓTTIR, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Strandgötu 85, Hafnarfirði, er látin. Jarðarförin fór fram mánudaginn 17. maí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur K. Björnsson, Finnur Torfi Stefánsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Ingveldur G. Ólafsdóttir, Jóhann Hauksson, Björn Jóhann Ólafsson, Sigurður Ólafsson, Ingibjörg H. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KNÚTUR ÁRMANN rafvirkjameistari, Breiðvangi 8, Hafnarfirði, lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði mánu- daginn 17. maí sl. Útförin auglýst síðar. Kristín J. Ármann, Valdís Erla Ármann, Guðbjörn Ólafsson, Júlíus J. Ármann, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma, langamma og langalangamma, ÓSK ÞÓRHALLSDÓTTIR, Garðabraut 65, Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, mánudaginn 17. maí. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju laugar- daginn 22. maí kl. 14.00. Frímann Þorkelsson, Helga Hólmfríður Frímannsdóttir, Hjalti Sigurðsson, Þórhallur Þorkell Frímannsson, Gréta Björk Jóhannsdóttir, Dýrleif Eydís Frímannsdóttir, Gísli Eiríksson, Anna Frímannsdóttir, Hartmann Óskarsson, Ægir Frímannsson, Valdís S. Sigurbjörnsdóttir, Kristjana Björg Frímannsdóttir, Bjarni Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA STEFÁNSDÓTTIR, Minni-Ökrum, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki að morgni föstudagins 14. maí. Útför hennar verður gerð frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 22. maí kl. 13.00. Stefán Vagnsson, Guðrún Þrúður Vagnsdóttir, Hjörtína Dóra Vagnsdóttir, Aðalbjörg Vagnsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, RAGNHEIÐUR ÁRNADÓTTIR NICHOLAS, lést á sjúkrahúsi í Washington D.C. sunnudaginn 25. apríl 2004. Börnin. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÁSTA TORFADÓTTIR, Dalbraut 14, áður til heimilis í Heiðargerði 16, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 16. maí. Ásgeir Ásgeirsson, Guðný Styrmisdóttir, Snorri Ásgeirsson, Torfi Ásgeirsson, Liane Ásgeirsson, Óskar Ásgeirsson, Svanhildur St. J. Guðmundsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning- @mbl.is, svar er sent sjálf- virkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsyn- legt er að tilgreina símanúm- er höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrif- uðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.