Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 37

Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 37 ✝ Þórður Helgi Ein-arsson verslunar- maður var fæddur á Ísafirði 11. júlí 1908. Hann lést á sjúkra- húsinu á Ísafirði 10. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Svanhildur Jónsdóttir, f. 14.8. 1879, d. 5.5. 1954, frá Tungu í Nauteyrar- hreppi, og Einar Guð- mundsson, f. 6.8. 1873, d. 18.10. 1941, skósmiður frá Mið- dalsgröf í Reykjar- firði í Strandasýslu. Þórður var næstelstur alsystkina sinna en hálf- systir Jósefína Sölvadóttir var elst. Systkinin voru: Jón, matsveinn, Gísli, fulltrúi hjá Kaupfélagi Ísfirð- inga, Vilhelmína, húsmóðir, Einar, skipasmiður, Guðmundur, sjómað- ur, Sigurður, sem lést ungur, og Högni, skósmiður. Þau eru öll látin Fyrri kona Þórðar var Ingibjörg Ragnheiður Jóhannsdóttir, f. 12.9. 1909, og með henni átti hann soninn Hermann, flugumferðarstjóra, f. f. 1.8. 1934, gift Páli Þ. Jónssyni, f. 1930, d. 2001. Þeirra börn: Guð- björg Jóna, maki Sigurður H. Ís- leifsson, Jón Örn, maki Elísabet Kjartansdóttir, Magnús Valur, maki Jóna Guðrún Jónsdóttir, Þórður, maki Ronda Pálsson, og Kristinn Þór. Þórður ól allan aldur sinn á Ísa- firði, utan eins árs sem fjölskyldan bjó að Hjöllum í Skötufirði. Þangað flutti fjölskyldan vorið 1918 eftir að Einar hafði gengið á ís frá Ísafirði inn að Hjöllum frostaveturinn mikla 1918 til að ganga frá leigusamning- um á jörðinni. Þórður veiktist mikið af berklum og lá lengi á unglingsárum á sjúkra- húsinu á Ísafirði undir handleiðslu Vilmundar Jónssonar læknis, síðar landlæknis og alþingismanns. Á unglingsárunum í kreppunni vann Þórður með föður sínum og bræðrum í atvinnubótavinnu við að bera að og mala grjót. Tvítugur að aldri hóf hann störf hjá Kaupfélagi Ísfirðinga og vann þar samfleytt til áttræðs. Auk þess vann hann á efri árum um skeið hjá Orkubúi Vestfjarða. Þórður var virkur félagi í Alþýðuflokknum á Ísafirði og starfaði ötullega að mál- um hans. Útför Þórðar verður gerð frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 26.3. 1931. Þau slitu samvistum. Börn Her- manns og Auðar Árna- dóttur, f. 26.6. 1936, konu hans, eru: Sigríð- ur, maki Pálmar Krist- mundsson, Hlín, maki Pétur Tryggvi Hjálm- arsson, og Árni Yngvi, maki Guðríður Rail. Áður átti hann dóttur, Grétu, f. 1951, d. 2003, með Kristrúnu Jónínu Steindórsdóttur. Seinni kona Þórðar var Guðbjörg Magnúsdótt- ir, saumakona, f. 31.6. 1914, d. 6.12. 1973. Dóttir þeirra er Svanhildur, f. 27.3. 1946, kaupmað- ur á Ísafirði. Dætur hennar og Magna Örvars Guðmundssonar, f. 30.6. 1944, netagerðarmeistara, eru, Harpa, gift Baldri Trausta Hreinssyni, Marta Hlín, áður gift Rúnari Jónatanssyni, en nú í sam- búð með Ólafi Sigurðssyni, og Guð- björg Halla, gift Þresti Jóhannes- syni. Auk þess ól Þórður upp stjúpdóttur sína og dóttur Guð- bjargar, Sólveigu Huldu Jónsdóttur, Elsku Tóti afi. Mér fannst alltaf af við systurnar værum heppnustu börnin á jörðinni því að enginn sem ég vissi um átti annan eins afa og við. Ég bjóst líka við að vinkonur mínar öf- unduðu mig innst inni af því að eiga þig að og fannst því sjálfsagt að leyfa þeim að njóta þín með mér. Þú varst líka mikill barnakall og við vorum allt- af velkomnar til þín. Stundum loka ég augunum, lauma mér yfir „stakketið“ í Krók 1, geng upp tröppurnar og opna dyrnar. Notalega andrúmslofið sem bauð mann velkominn um leið og inn var komið, litla holið, bláköflótta gólfið á ganginum og eldhúsinu, litla eldhúsborðið með bláu fótunum, skúffan sem alltaf geymdi kex og ann- að góðgæti fyrir okkur stelpurn- ar … ég get farið herbergi úr her- bergi og skoðað mig um og ég finn fyrir nærveru þinni allan tímann. Litla húsið í Króknum var okkur systrum annað heimili, þar gátum við haft okkar hentisemi, við skiptumst á að gista hjá afa um helgar, þetta var okkar ævintýraheimur. Stundum voru „spilakallarnir“ hjá þér, Toni, Guðni og Steini, þá var mikið spjallað og rætt í litla eldhúsinu, stundum meira að segja rifist ef köllunum var heitt í hamsi. Aldrei var amast við því þó lítil stelpa kæmi og kíkti yfir öxlina á þér og fylgdist með í smástund, svo fór maður bara inn í herbergi eða fram í stofu og fann sér eitthvað til dundurs. Söngurinn var þér náttúr- legur, öll lögin og textarnir sem ég kunni ung að árum og kann enn og syng fyrir börnin mín, allt lærði ég af þér, „Nú andar Suðrið“, „Anna frá Hvammi“, „Er sumarið kom yfir sæ- inn“. Þessi lög og mörg önnur óma í höfðinu á mér þegar ég hugsa um þig og fer í minningarferðina mína um litla húsið í Króknum. Elsku afi, þú talaðir oft um hvað þú værir ríkur, og þá áttir þú við mömmu og pabba og okkur systurnar og allt góða fólkið í kringum þig. Enda varst þú alltaf svo léttur og kátur, með bros á vör og tókst öllum vel. Gæðin og góðmennskan og gleðin yfir lífinu var alltaf þinn fylgifiskur og smitaði óneitanlega út frá sér. Mikið finnst mér nú gott, afi minn, að hugsa til þess að þú sért kominn til Guðs, laus úr þessum gamla og þreytta líkama, aftur farinn að fara út að labba á hverjum degi og býður konunum í bankaútibúi Himnaríkis upp á brjóst- sykur. Elsku mamma, þú varst alltaf kletturinn hans afa, sú sem hann leit- aði til og treysti á og því stóðst þú full- komlega undir, þú hefur staðið þig eins og hetja. Tárin sem við fellum verða í mínum huga gleðitár yfir að hafa fengið að njóta samvista við þennan ljúfa og yndislega mann í svona langan tíma. Góða ferð, elsku afi minn. Þín Marta. Þá er Tóti afi kominn upp til himna og þó að nokkuð sé síðan hugur hans hvarf frá okkur hinum þá skapast samt ákveðið tómarúm. Tóti afi hefur alltaf verið til og nú þegar hann er far- inn hrannast upp minningar frá liðn- um árum. Afi sagði alltaf að hann hefði byrjað að lifa lífinu á fertugs- aldrinum vegna mikilla veikinda í æsku og hann naut þess svo sannar- lega. Fór á böll í Gúttó, dansaði, tjútt- aði og söng daginn út og inn. Hann fór á rauða Skódanum sínum að rukka fyrir Kaupfélagið og litlar stelpur fengu oft að sitja í aftursætinu. Afi var ekki sérlega leikinn bílstjóri og kláraði kúplingsdiskinn á skódanum á u.þ.b. þremur mánuðum. Einu sinni keyrði hann út í stóran poll á höfninni og við sátum bæði föst í bílnum og þorðum ekki út. Þá kom Höddi Þor- steins og klofaði út í og bar okkur bæði upp á þurrt. Það var stutt að hlaupa niður í Krók til afa og þar eyddum við syst- urnar löngum æskudögum. Í kjallar- anum var forláta bú, þar var drullu- mallað og farið í búðarleiki með allar tómu Old Spice-flöskurnar hans afa, ásamt ýmsum krukkum og ílátum. Verðmætastar voru þó Pepsi-dósirn- ar sem afi hafði keypt úti í Kanada þegar hann fór að heimsækja ætt- ingja. Afi kenndi mér að syngja, það er honum að þakka að ég kann alla gömlu slagarana og textana við flesta þeirra. Hann kenndi mér líka bæði að spila og leggja kapal og síðast en ekki síst þá kenndi hann mér að biðja bæn- ir. Trúin var stór þáttur í hans lífi og meðan augun entust til fór hann aldr- ei að sofa án þess að lesa eina blaðsíðu í Biblíunni. Þegar ég fór að koma með kærast- ann sem varð síðar eiginmaður minn í heimsókn þá bauð afi honum alltaf snafs á meðan ég fékk vínber eða snakk. Síðan fóru langafabörnin að koma í heiminn og Tóti afi gat löngum stundum kjáð framan í þau og brosað. Síðast þegar við fjölskyldan hittum afa var það bara Magni sem náði að fanga athygli hans. Þessi stund á sjúkrahúsinu sumardaginn fyrsta var svo góð fyrir það að synir mínir muna svo vel eftir Tóta afa, ég var rög við að taka þá með mér í heimsókn undir það síðasta því honum leið oft svo illa. En núna líður afa vel og er aftur far- inn að dansa og syngja. Halla, Þröstur, Andri Pétur, Steinn Daníel, Fróði Benja- mín og Magni Jóhannes. Ég mun alltaf muna hann afa fyrir hversu glaður og kátur hann alltaf var. Hann hafði unun af söng og dansi. Alltaf var hann syngjandi og raulandi. Þau eru mörg lögin sem hann kenndi mér enda vorum við systurnar mikið hjá afa. Hann átti heima í litla húsinu í Króknum rétt fyrir neðan okkur. Ég var ekki há í loftinu þegar ég var farin að fara með honum í vinnuna. Hann var rukkari í Kaupfélaginu, fór á milli fyrirtækja og rukkaði. Þetta fannst mér mjög spennandi. Þannig að auðvitað fékk ég mína eigin reikninga til að leggja saman á reiknivélinni hans. Við stelpurnar vorum mikið hjá afa á daginn og alltaf vorum við velkomn- ar þó svo að strollan af stelpunum fylgdi okkur. Alltaf átti hann eitthvert góðgæti fyrir okkur. „Búið“ okkar var á bak við húsið hans. Þangað fengum við gamalt dót sem hann var hættur að nota. Þegar ég svo fékk bílpróf var ekk- ert sjálfsagðara en að ég fengi lán- aðan bílinn hans. Þannig var afi. Vildi allt fyrir aðra gera. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hann afa að. Hann gaf mér svo mikið. Harpa. ,,Ó hvað hann Guð er góður við mig,“ sagði hann Þórður oft. Hvað hafði hann Guð gefið þessum fátæka alþýðumanni, sem var svo miklu betra en hann hafði gefið okkur hinum? Það hefur tekið mig langa ævi að fá botn í þá spurningu. Hann var fæddur inn í stóra fátæka fjölskyldu á Ísafirði 1908 og ólst upp við kröpp kjör. Á táningsárum sínum veiktist hann af berklum, sem þá lögðu flesta sem veiktust í gröfina. En eftir áralanga dvöl á sjúkrahúsinu á Ísafirði tókst Vilmundi Jónssyni lækni og seinna landlækni og alþing- ismanni að lækna Þórð af berklunum, þótt hann bæri þess merki alla ævi. Væntanlega hefur þessi umkomu- lausi unglingur fundið til þess hvernig fyrirmaðurinn og yfirlæknirinn Vil- mundur annaðist hann af kostgæfni og mannkærleika. Alla vega varð Þórður afdráttarlaus jafnaðarmaður á þessum árum og efaðist aldrei um yfirburði jafnaðarstefnunnar í stjórn- málum. Ég veit það að það tók hann oft sárt þegar forystumenn jafnaðar- manna í bæjarstjórn eða landsstjórn- inni gengu gegn hugsjónum jafnaðar- stefnunnar vegna pólitískra- eða eiginhagsmuna. Hann naut sigra jafnaðarmanna eins og aðrir Íslendingar, en bað aldr- ei um neitt sérstaklega fyrir sig. Fyrsta verkefni þessa lasburða unglings nýkominn af sjúkrahúsi var að vinna með föður sínum og bræðr- um í grjótnámi í atvinnubótavinnu þess tíma. Líkaminn var veikburða en það var til einskis að kvarta og úr grjótinu kom hann sæmilega stæltur. Tvítugur að aldri hóf hann störf hjá Kaupfélagi Ísfirðinga og vann þar óslitið til áttræðs, eða lengur en nokk- ur annar starfsmaður. Á þeim tíma starfaði hann hjá tíu kaupfélagsstjórum, sem honum líkaði misvel við eins og gengur, en svo góð vinátta og virðing var á milli hans og sumra þeirra að ævilangt hélst. Ég minnist þess til dæmis aldrei að hafa komið inn í Herrahúsið í Reykjavík til Sverris Bergmanns kaupmanns og fyrrverandi kaupfélagsstjóra að fyrstu orð hans væru ekki: ,,Hvernig hefur hann Þórður minn það?“ Ég kynntist ekki Þórði að ráði fyrr en á seinni árum, eftir að hann fór að hægja á sér í Kaupfélaginu. Hann kom þá oft að hitta bróðurdóttur sína og konuna mína Jósefínu Gísladóttur í Hamraborg og var reyndar um tíma starfandi sem póstþjónn fyrirtækis- ins. Hann var aldrei í þeirri aðstöðu að geta safnað fé, en lifði af nægjusemi sinni góðu lífi og kunni að njóta góðra daga. Það sem á fjárauðinn vantaði bætti hann upp með trúnni á algóðan Guð en honum fól hann sitt líf daglega í bæn. Auðurinn sem Jesús Kristur skildi eftir fyrir okkur er öllum öðrum auði æðri og meiri og það vissi Þórður vel. Hann fór tvisvar sinnum með frænku sinni í sumarferðir Sjálfstæð- isflokksins eftir að hann fór að eldast. Gleðin, samveran, söngurinn og dans- inn eru þverpólitísk og með þeim átti hann heima og efalaust dansaði hann við fleiri sjálfstæðiskonur í þessum ferðum en þingmennirnir, þótt ekki væri sérhagsmuni að verja. Við ræddum nokkuð náið um póli- tíkina á meðan foringjar okkar sátu saman í ríkisstjórn. Okkur fannst margt vel gert en annað miður eins og gengur. Þegar við hjónin kveðjum Þórð að leiðarlokum, þökkum við samfylgdina og allt það sem hann hefur gefið okk- ur og verður aldrei frá okkur tekið. Ég veit það núna að Guð var honum góður og gaf honum svo mikið meira en þeim sem nú berjast um völd og peninga í okkar litla samfélagi en eiga hvorki einlæga gleði né innri frið. Við Ína sendum börnum hans Her- manni, Sólveigu og Svönu, mökum þeirra og afkomendum innilegar sam- úðarkveðjur. Það hefur slokknað á veiku skari en birtan lifir í minning- unni. Úlfar Ágústsson. Hann Tóti í Kaupfélaginu var einn af þessum alþýðumönnum sem settu svip á Ísafjörð þegar við systkinin vorum að alast upp. Svo var hann líka nágranni okkar á Hlíðarveginum í mörg ár. Átti heima uppi, ásamt Gurru konu sinni, Svönu dótturinni og svo seinna líka Magnúsi tengda- föður sínum. Þetta voru góðir grann- ar. Eftir á að hyggja svolítið eins og afi og amma okkar krakkanna á neðri hæðinni. Gurra heitin kom stundum stormandi inn ganginn: „Anna mín, Anna mín,“ – snögg upp á lagið með sígarettuna í hendinni. Kom til að fá svolítið spjall og kaffisopa og var stundum töluvert niðri fyrir. Hún saumaði dýrindis flíkur á frúrnar í bænum, og líka stundum eitthvað á heimasætuna á neðri hæðinni. Enn nefnum við mæðgurnar ákveðin kjólasnið „Gurrukjóla“, og alltaf kom- ast slíkir kjólar í tísku aftur og aftur. Tóti var hins vegar í Kaupfélaginu. Var kenndur við Kaupfélagið. Vildi Kaupfélaginu það besta og var kannski bara líka þessi gegnheili kaupfélagsmaður sem harla lítið er orðið eftir af. Kannski vegna þess að hann var í Kaupfélaginu sá Tóti alltaf um öll innkaup til heimilisins sem var ekki algengt að karlar sinntu í þá daga. Kom alltaf heim í hádeginu eins og þá tíðkaðist. Stundum á hjóli en seinna á eðalfínum Moskwitz. Var ekki lipur ökumaður en komst það sem þurfti. Alltaf brosandi og léttur í lund og tók okkur krakkana tali. Allt- af snyrtilegur og vel til fara. Hafði gaman af samskiptum við fólk. Í okkar huga var hann Tóti í Kaup- félaginu einn af máttarstólpunum í þjóðfélaginu. Ekki gírugur eða kröfu- harður fyrir sjálfan sig heldur maður sem undi glaður við sitt og setti svip á umhverfi sitt með framkomu sinni og viðmóti. Hann og hans fjölskylda voru hluti af æsku okkar og þess er gott að minnast. Tóta í Kaupfélaginu eru þökkuð samskiptin, velvilji og góðvild alla tíð. Elín Alma Arthursdóttir. ÞÓRÐUR HELGI EINARSSON Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Elskuleg móðir mín, fósturmóðir, dóttir, systir og mágkona, GYÐA JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 9. maí. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21. maí kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti MS-félag Íslands eða Krabbameinsfélagið njóta þess. Baldur Eyþór Eyþórsson, Valentína Manucci, Birna Gyða Ásmundsdóttir, Jónas Wínell, Birna J. Benjamínsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Jón Þorgrímsson, Birna Ólafsdóttir Nyström, Lars Nyström, Jón Ólafur Ólafsson, Anna S. Jónsdóttir. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.